VERUND
FRÉTTAPUNKTAR

but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes

 

Ítalía:
Konan með röntgenaugun

Hún getur varla lesið dagblað, en furðu lostnir sérfræðingar segja að hún geti lesið í líkama manna betur en opna bók, hún sjúkdómsgreinir fyrir lækna til að nefna nýrnasteina og krabbameinsæxli með ótrúlegri nákvæmni.
Reyndar hefur Pasqualina Pezzola, en það heitir hún, hjálpað skurðlæknum við aðgerðir og sagt þeim hvar best sé að gera skurð.
"Hún hefur alltaf rétt fyrir sér, verð ég að viðurkenna," segir Dr. Edoardo Landi, prófessor í skurðlækningum við háskólann í Ancona.
"Ég bað hana nýlega að vera viðstödd uppskurð og hún var fær um að segja mér nákvæmlega hvar ætti að skera til þess að taka æxli sem hún hafði sjálf sjúkdómsgreint."
Og hann heldur áfram:
"Þegar ég kom fyrst til Ancona fyrir 15 árum, var ég mjög tortrygginn á sjúkdómsgreiningar hennar. En ég varð að láta í minni pokann þegar hún sjúkdómsgreindi án fyrirhafnar bólgur, nýrnasteina og margt fleira, sem sérfræðingar fundu ekki. Hún getur einnig reiknað út tölu rauðra blóðkorna í sjúklingi nákvæmlega áður en tekið er úr honum blóð."
Þrátt fyrir hæfileika sinn býr Pasqualina við bágan efnahag. Hún fær lítið greitt fyrir sjúkdómsgreiningar sínar, vill ekki þiggja fé fyrir.
"Ég veit ekki hvernig ég fer að þessu, þetta er að ég held guðdómleg gjöf. Þegar einhver kemur til mín vil ég ekki heyra lýsingu þeirra á veikindunum. Ég fer í trans og eftir að ég fæ meðvitund segi ég þeim einfaldlega það sem ég sá í þeim, innvortis. Ég sé líffærin, hjarta, lungu og lifur, inn í þau, og alla liti líka. Það er mjög auðvelt fyrir mig að sjá hvað er ekki eins og það á að vera."
Flestir þeir sem koma til hennar eru þeir sem ekki hafa fengið bót meina sinna hjá læknum, og ekki hefur tekist að sjúkdómsgreina. Í meira en 50 ár hefur hún séð allt að 50 sjúklinga á dag. En nú er hún orðin 80 ára að aldri og vill aðeins sjá 10 sjúklinga daglega með þessum augum. Mestum tíma vill hún nú eyða í barna- og barnabarnabörnin.

Heimild: Morgunblaðið, 1988.

 

 
but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes