VERUND
FRÉTTAPUNKTAR

but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes


Ljósagangur í Seljalandi

Mikill ljósagangur sást í Seljalandi undir Eyjafjöllum, laust eftir klukkan hálfníu í gærkvöldi. Það voru vegfarendur á leið um þjóðveginn, sem fyrst gerðu lögreglu á Hvolsvelli viðvart, en þeir töldu að um neyðarblys gæti verið að ræða.
Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að íbúar á a.m.k. tveimur bæjum undir Eyjafjöllum höfðu séð grænt ljós koma úr austri og fara mjög hratt yfir, lárétt til vesturs.
Sigurgeir Ingólfsson, bóndi á Hlíð undir Austur-Eyjafjöllum, sagðist í samtali við Morgunblaðið helst geta lýst þessu sem eldhnetti. Hann hafi verið skærgrænn og lýst upp suðurhimininn. Þau hjónin hafi séð hann í 4-5 sekúndur áður en slokknaði á honum. Eftir að hafa heyrt lýsingar sjónarvotta taldi lögregla ekki vera um neyðarblys að ræða.

Heimild: Morgunblaðið 21. febrúar 1997.

 

 
but-tilbaka2.GIF - 973 Bytesbut-tiladalsidu2.GIF - 999 Bytes