Tilbaka
Andleg málefni
Til aðalsíðu

 

 

 

Ilmur

VERUND
ORKUMÁL






Að hreinsa herbergi með reykelsi 
Ilmur reykelsis fyllir herbergið angan og hjálpar til við að hreinsa rýmið. Ilmtegundin skiptir máli því orkan er breytileg og þess vegna þarf breytilegar tegundir af reykelsi. Rétt er að fara með bæn eða jákvæða staðhæfingu um leið og kveikt er á hverju reykelsi.

Ilmolíur
Margir vilja meina að ilmolíur hafi áhrif á orku. Hefur jafnvel verið talið að sumar tegundir þeirra geti flýtt fyrir árangri heilunar og einhvers staðar höfðu skólakrakkar fundið það út að með því að bera á sig lavender-olíu áður en þau fóru í próf, þá náðu þau betri árangri, að þeim fannst. Líklega fólst það nú samt í því að lavender-olía er venjulega notuð til slökunar og það kann að hafa nægt til þess að bæta árangurinn. Lavender og Sandalwood eru tegundir sem gott er að nota við hugleiðslu t.d.

Ilmur eða lykt, er áhrifaríkur þáttur í umhverfi okkar og nægir þar að nefna hversu mikið ilmur hefur að segja í mannlegum samskiptum. Sérhvert heimili hefur sinn sérstaka ilm og hefur hann mikið að segja varðandi einkenni og heildaráhrif þess. Með léttum ilmi er hægt að hafa áhrif á það hvernig gestum líður er þeir koma inn í íbúð og einnig hvernig fólki almennt líður í því rými sem það dvelur í.

... meira síðar ...