candleinholder.gif - 21864 Bytes     Verund

heimasíða um andleg málefni

 

10. spurning:  Hvaðan kom þekking Egygpanna?

Sv.: Það er erfitt að útskýra það, en vissir kynþættir jarðar komu á vissan hátt með þekkingu með sér og öfluðu sér þekkingar, urðu, ef svo má segja, ekki efnisþéttir á jörðinni, heldur héldu eftir þessari þekkingu. Mikið af henni hefur líka komið frá eldri menningarskeiðum. Löngu liðnum menningarsamflélögum sem minnst er á í dag af fólki, sem veit afskaplega lítið um þau, en veit þó að þessi samfélög voru til.

Sp.: Er þarna um að ræða einhver tengsl við Atlantis?

Sv.: Já, Atlantis og Lemuria.

Sp.: Var Lemuria á Kyrrahafi eða í Miðjarðarhafinu?

Sv.: Ja, bæði samfélögin hafa verið nefnd á mörgum stöðum. Á Kyrrahafinu, Atlantshafinu og í Miðjarðarhafinu. Jörðin hefur mikið breyst á þessum árum og öldum sem liðnar eru. En ef þið hafið séð gamlar myndir af jörðinni ykkar eins og hún var þegar meginlöndin lágu saman, þá vitið þið að höfin voru ekki eins þá og þau eru nú.

Sp.: Eins og fyrir tvö hundruð milljónum ára?

Sv.: Fyrir löngu síðan. Löngu síðan. En tíminn er ekki til, vinur minn.

Sp.: Sólin er smám saman að kólna.

Sv.: Auðvitað, því ekkert stendur í stað. En hafðu ekki áhyggjur vinur minn, hún mun ekki kólna alveg á meðan þú ert á jörðinni.