Verund
heimasíða um andleg málefni
9. spurning: Hvernig finnst þér jarðsviðið vera í dag, samanborið við það sem var fyrir 3000 árum síðan? Hefur orðið fram- eða afturför?
Sv.: Ef til vill framför á margan hátt. En þó bjuggum við yfir mikilli þekkingu á þeim tíma þegar ég var á jörðinni, bæði um lífið og hinn svokallaða dauða. Og á margan hátt vorum við nær náttúrunni og skilningi á lögmálum hennar. Til voru þeir tímar í sögu Egyptalands þegar þrælar voru notaðir, en það var ekki alltaf þannig, því margir prestanna í hofunum vissu um og þekktu mikið til lögmála náttúrunnar. Margar hinna miklu bygginga okkar eða minnismerkja, eins og þær eru kallaðar í dag, voru ekki gerðar af þrælum, heldur frekar með notkun náttúrulögmála. Ég hugsa að það komi ykkur ekki á óvart.
Sp.: Nei. Var það efnisbirting og afefnun?
Sv.: Auðvitað.