Birkimelur 1999
Sumarið 1999 var enn haldið vestur á Barðaströnd og komið saman á Birkimel dagana 9. - 11. júlí.
87 gestir mættu á ættarmótið sem fór vel fram í alla staði. Rigning og rok varð þó til þess að dagskrá breyttist töluvert. Stór hluti hópsins sleppti því að tjalda og svaf inni vegna veðurs. Á laugardeginum var farið í kirkjugarðinn í Haga og þar voru lögð blóm á leiði Friðgerðar og Guðmundar og samverustund var í kirkjunni. Þá var farið út að Fossi og stoppað þar. Hluti hópsins fór út að Siglunesi. Þegar komið var í Birkimel aftur buðu Jónína og Friðgerður Ben. upp á Tasíutertu í minningu Gyðu Guðmundsdóttur. Um kvöldið voru grilluð lambalæri og eftir mat var kvöldvaka. Þar var dans, söngur, spurningakeppni og ýmis fróðleikur um forfeðurna. Og svo var stiginn dans langt fram á nótt undir stjórn Guðjóns Friðgeirssonar "diskótekara".
Sunnudagur rann upp jafnblautur og dagarnir á undan. Fólk fór að taka saman og tínast af svæðinu fram eftir degi.
(Ættarmótsnefnd 1999)
Nokkrar myndir frá ættarmótinu!
Foss að vetrarlagi
Kolaveiðar