Í fjörunni á Fossi

 

Skjöldur í Helgafellssveit 25.-27. júní 2004

 

Afkomendur Friðgerðar og Guðmundar á Fossi komu í fjórða skipti saman á ættarmóti að Skildi í Helgafellssveit 25.-27. júní 2004. Eftir myndum af ættleggjum að dæma voru gestir 84.

Fólk tíndist á staðinn á föstudagskvöld. Margir komu þó seint og vildu sumir kenna um óhóflegum áhuga á Evrópumóti í fótbolta! En Helgafellssveitin tók vel á móti fólki með frábæru veðri og fallegu sólarlagi og það gekk vel að tjalda á ágætu tjaldstæði.

Menn fóru snemma á fætur á laugardagsmorgni því þá skyldi haldið í Flateyjarferð og Baldur lagði úr höfn stundvíslega kl. 9. Þrátt fyrir nokkurn strekking var gott í sjóinn og hópurinn var hinn hressasti þegar stigið var á land í Flatey. Árni Snæbjörnsson lóðsaði fólk um eyna og miðlaði óspart af þekkingu sinni á landi og fólki fyrr og nú. Var þetta í alla staði hin ánægjulegasta og fróðlegasta ferð. Veður var vel viðunandi þótt nokkrir regndropar féllu öðru hverju. Að lokinni skoðunarferð um eyna settist fólk að snæðingi, ýmist úti við eða á veitingahúsinu Vogi. Heimferðin gekk vel og var komið á land í Stykkishólmi skv. áætlun um kl. 15:30.

Matargerð fór hið besta fram, lambalærum og glóandi grillkolum var komið fyrir í gryfju og þaðan kom hin ljúffengasta lambasteik í fyllingu tímans. Borðhald fór hið besta fram í bland við fjöldasöng og skemmtiatriði þar sem fléttað var saman fróðleik og skemmtun. Að því loknu var boðið upp á danstónlist fram eftir nóttu.

Og að sjálfsögðu var skipað í nýja nefnd til að annast næsta ættarmót.

Í fráfarandi nefnd voru Atli Ómarsson, Erla Lúðvíksdóttir, Guðmundur Hafsteinsson, Gyða Björk Jónsdóttir og Snæbjörn Jónsson.

Nýju nefndina skipa: Friðgeir Guðmundsson, Gauti Eiríksson, Ísak Jónsson, Kristín Ármannsdóttir og Marsveinn Lúðvíksson. Marsveinn var þó tilnefndur með fyrirvara um að hann gæti og vildi taka þetta að sér þar eð hann var ekki á staðnum.

Myndir frá ættarmótinu má sjá á myndasíðum:

Bryndís Jónsdóttir

Guðmundur Hafsteinsson

Kristín Ármannsdóttir og fjölskylda

Unnur Helga Jónsdóttir

 

 

|  Umsjónarmaður vefsins   |
| Guðmundur Hafsteinsson |