Manni - kveðskapur Jóns Snæbjörnssonar
Út er komin bók með ljóðum Jóns Snæbjörnssonar, sem væntanlega var best þekktur sem Manni
í Mýrartungu. Hann var fæddur á Stað á Reykjanesi í Reykhólasveit 29. ágúst 1941 og
andaðist í Reykjavík 24. janúar 2000. Foreldrar hans voru Snæbjörn Jónsson, bóndi á Stað,
og kona hans, Unnur Guðmundsdóttir. Manni var næstelstur fimm bræðra. Elstur er hálfbróðirinn Sigurvin
Ólafsson og yngri bræðurnir eru þeir Árni, Friðgeir og Eiríkur.
Manni útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri vorið 1962. Þann 17. júní 1964 kvæntist
hann Aðalheiði Hallgrímsdóttur (Heiðu) frá Dagverðará í Breiðavíkurhreppi á
Snæfellsnesi. Hann var ráðsmaður í Tilraunastöðinni á Reykhólum frá 1964 til 1967 og
síðan bóndi í Mýrartungu II í Reykhólasveit og frjótæknir til ársins 1988, þegar
þau hjónin þurftu að bregða búi sökum þverrandi heilsu hans.
Manni hafði alltaf mikinn áhuga á félagsmálum. Hann vildi hag allra sem bestan og jafnastan. Meðal annars var hann
formaður Búnaðarfélags Reykhólahrepps í 12 ár, sat í stjórn Kaupfélags
Króksfjarðar og var fulltrúi á fundum Stéttarsambands bænda. Hann var um tíma í stjórn
Ungmennafélagsins Aftureldingar í Reykhólasveit og formaður þess í nokkur ár.
Ungur fór Manni að yrkja og til er að minnsta kosti eitt ljóð eftir hann 13 ára gamlan. Hann orti gjarnan erfiljóð um sveitunga sína og þær eru ófáar afmælisvísurnar hans og brúðkaupskvæðin. Ósjaldan var hann beðinn um að yrkja ýmis tækifærisljóð og aldrei fór neinn bónleiður til búðar.
Í ljóðum Manna er gjarnan ádeila á það sem honum fannst betur mega fara, hvort heldur það tengdist stjórnmálum, hersetu, ástinni eða virðingu fyrir hinu liðna.
Eitt er sem ég eftir tók
– að því flestir leita:
Þeim sem lesa þessa bók
það mun blessun veita.
Þeir sem vilja kaupa bókina geta lagt inn 2.900 krónur inn á reikning nr. 0324-13-008811, kt. 191275-4119, og sent staðfestingu á Ólínu Kristínu - olinak@vortex.is Við getum svo annaðhvort sent ykkur bókina eða þið nálgast hana hjá Heiðu, Snæbirni, Ingu Hrefnu eða Ólínu. Einnig má borga bókina um leið og hún er sótt. Það er auðveldast að hitta á Heiðu heima, síminn hjá henni er 567 0904 og netfangið heidahallgrims@vortex.is
Bókin hefur sína eigin fésbókarsíðu, Manni – kveðskapur Jóns Snæbjörnssonar
(4/1 2012)
Ættarmótið sumarið 2012
Nú eru línur teknar mjög að skýrast með væntanlegt ættarmót. Frá ættarmótsnefnd hafa borist þær fréttir að mótið verður haldið í Brautartungu í Borgarfirði helgina 6.-8. júlí. Þar hefur félagsheimili verið tekið á leigu með tilheyrandi lóð og lítilli sundlaug. Nefndin mun hittast fljótlega á nýju ári og móta dagskrána.
Nú er um að gera að taka helgina frá (þeir sem eru ekki þegar búnir að því!) og fara að hlakka til. Það er tilvalið að nota komandi jólaboð til að kynna fagnaðarerindið!
(6/12 2011)
Friðgerður á Fossi 120 ára
![]() |
Friðgerður á Fossi hefði orðið 120 ára 18. september síðastliðinn og af því tilefni komu nokkrir afkomendur hennar saman í Perlunni og drukku saman síðdegiskaffið. Þarna munu hafa komið um 30 manns. Þarna voru m.a. nokkrir nefndarmenn næsta ættarmóts og fluttu þær fréttir að ákveðið hefði verið að halda ættarmótið fyrstu helgina í júlí 2012. Mótsstaðurinn var hins vegar ekki ákveðinn enn en væntanlega berast fréttir um hann áður en langt líður. (20/10 2011) |
Faxi Friðgeirs Guðmundssonar, Skjaldvararfossi
Faxi var fremur lítill vexti, grár að lit, dökkur í andlitinu sem líktist helst blesu. Faxi var frá Kollufossi í Miðfirði. Friðgeir fékk hann 1941 eða 1942, þá fimm vetra gamlan, taminn. Friðgeir átti hann í fjögur eða fimm ár, missti hann þá úr einhvers konar fóðureitrun. Það dóu þrír eða fjórir hestar úr því sama á Barðaströnd sama veturinn.
Annar eins gæðingur og Faxi veit ég ekki til að verið hafi á Barðaströnd fyrr eða síðar. Það var allt sem prýddi hann, fagurt útlit og frábær skapgerð. Hvert mannsbarn gat leikið sér við hann að vild, beislað hann og lagt á hann hnakk, en þegar komið var á bak var fjörið svo mikið að það var ekki þörf á því meira. Svo var hann taumléttur að þeir sem eitthvað voru hestvanir gátu ráðið ferðinni. Svo mikið var gangrýmið að ég veit ekki hvar takmörkin voru í þeim efnum. Það var unun að horfa á hann taka töltið fram af fetinu og síauka ferðina á því, og margur hesturinn mátti hafa sig allan við til að fylgja honum þegar hann tók skeiðið. Þótt gaman væri að sjá hann leika þessar listir sínar, þá var að sjálfsögðu enn meira gaman að sitja á honum í þeim hamförum. Það fékk ég að reyna nokkrum sinnum en það var of sjaldan þar sem hann varð ekki nema níu eða tíu vetra gamall en ég fór ekki vestur nema í sumarfríum. Ég held að enginn sem sá hvað í Faxa bjó gleymi honum nokkurn tíma. Marga hef ég heyrt hafa orð á því.
Ég myndi, ef ég fyndi mig mann til, yrkja honum verðugt erfiljóð en ég get aðeins sagt:
Þessi fákur bar mig best,
betur öllum vonum.
Aldrei þekkti ég annan hest
eitthvað líkan honum.
Hafsteinn Guðmundsson
| Þennan pistil sem Hafsteinn Guðmundsson skráði um Faxa, hinn margrómaða gæðing Friðgeirs bróður síns, rak á fjörur vefsins fyrir tilstilli Jónínu Hafsteinsdóttur. Guðmundur H. Friðgeirsson lagði til myndina hér til hliðar, af þeim Friðgeiri og Faxa. Kunnum við þeim báðum bestu þakkir fyrir. (20/10 2011) |
Ný gestabók
Eins og mörg ykkar hafa væntanlega tekið eftir hefur gestabókin verið óvirk að undanförnu. Eftir dálítið stapp tókst að ná efni gömlu gestabókarinnar og koma því fyrir í sérstöku skjali og um leið var sett upp ný gestabók. Sú er mjög áþekk hinni fyrri enda grunar umsjónarmann að þetta sé í rauninni sama fyrirtækið en virðist nú vera staðsett í Hollandi. Hún hefur þó þann galla umfram hina að nú verðum við að sætta okkur við að settar séu á hana auglýsingar eða borga 10 dollara á ári ella. Við skulum sjá hversu mikið það fer í taugarnar á okkur.
Verið endilega dugleg að nota gestabókina!
(18/2 2011)
Næsta ættarmót
Vefnum hefur borist eftirfarandi tilkynning frá ættarmótsnefnd:
Elskulega frændfólk!
Þegar við hittumst á Reykhólum fyrir 3 árum var talað um að halda ættarmót í sumar þar sem í ár eru 20 ár síðan við byrjuðum að hittast í tilefni af 100 ára afmæli Friðgerðar Marteinsdóttur, formóður okkar, og höfum síðan hist reglulega til að minnast hennar og afa, Guðmundar Jónssonar. Nefndin, sem var valin þá til að sjá um undirbúning, var búin að hittast fyrir áramót og við ætluðum að reyna að vera snemma í því að ákveða hvernig þessu skyldi hagað. Ýmsar ástæður urðu til þess að við ákváðum á fundi s.l. sunndag að fresta þessu um ár og stefna að því að hittast í byrjun júlí næsta ár. Vinsamlegast látið ykkar fólk vita af þessu við munum láta vita tímanlega um tíma og staðsetningu.
Bestu kveðjur frá nefndinni
(
Friðgerður S. Benediktsdóttir,
Hafsteinn Hafsteinsson, Jón Garðar Sigurvinsson, Kristíana Kristjánsdóttir og Rakel Guðmundsdóttir)
(27/1 2011)
Afmælisrit Jónínu Hafsteinsdóttur
Jónína Hafsteinsdóttir, sem hefur verið flestum drýgri við að leggja þessum vef til efni, mun áður en langt líður láta af störfum á nafnfræðasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (áður Örnefnastofnunar). Stofnunin og starfsmenn hennar munu heiðra hana á þessum tímamótum með því að gefa út veglegt afmælisrit með meira en 20 greinum sem flestar tengjast örnefnum á einhvern hátt. Nú er hafin söfnun áskrifenda að ritinu og þess vegna er þetta birt hér á vefnum. Lesendur mættu einnig láta þetta berast til annarra sem kynnu að vilja sinna þessu.
Nánari lýsing á ritinu og því hvernig gerast má áskrifandi er hér fyrir neðan. Ef eitthvað er óljóst er ykkur velkomið að hafa samband við umsjónarmann vefsins sem mun þá gera sitt besta til að skýra málið.
(19/1 2011)
AFMÆLISRIT JÓNÍNU HAFSTEINSDÓTTUR
Jónína Hafsteinsdóttir, starfsmaður á nafnfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og áður á Örnefnastofnun Íslands, verður sjötug 29. mars næstkomandi. Árnastofnun hyggst halda upp á tímamótin og þakka Jónínu farsælt starf um langt skeið með því að gefa út afmælisrit til heiðurs henni. Í ritið skrifa samstarfsmenn og félagar Jónínu, fólk sem hefur komið að örnefnamálum víða um land og fólk sem átt hefur í samskiptum við hana gegnum störf hennar.
Í ritinu verða yfir 20 greinar. Höfundar þeirra eru Ari Páll Kristinsson, Árni Björnsson, Birna Lárusdóttir, Bjarni F. Einarsson, Bjarni Harðarson, Guðlaugur R. Guðmundsson, Guðrún Kvaran, Gunnlaugur Ingólfsson, Hallgrímur J. Ámundason, Haukur Jóhannesson, Helgi Björnsson, Hjörleifur Guttormsson, Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir, Katla Kjartansdóttir, Kjartan Ólafsson, Kristján Eiríksson, Páll Pálsson, Reynir Ingibjartsson, Sigurður Helgason, Sigurjón Páll Ísaksson, Svavar Sigmundsson, Valgarður Egilsson og Ævar Petersen. Umfjöllunarefni greinanna tengist örnefnum á einn eða annan hátt. Fjallað er um örnefni í Drangey og í Mánáreyjum, í Orkneyjum og í Djúpi, á Snæfellsnesi, í Reykjavík, á Ströndum, í Dölum og víðar. Aðrar greinar snúast um aldur örnefna, örnefni kennd við ræningja og paura, örnefni á jöklum, örnefni tengd nykrum, rostungum, draugum og hestum, örnefni í vasabókum, örnefni sem hafa mörg heiti og rithætti örnefna og ríkjaheita.
Ráðgert er að ritið komi út kringum afmælisdag Jónínu 29. mars. Fremst í því verður heillaóskaskrá eða tabula gratulatoria og er móttakendum þessa bréfs nú boðið að heiðra Jónínu með því að gerast áskrifendur að ritinu og fá nafn sitt á heillaóskaskrána. Þeim sem vilja gerast áskrifendur er bent á að senda ósk þess efnis til Kára Kaaber hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á netfangið kari@hi.is . Vinsamlega tilgreinið hvernig nafn eða nöfn einstaklinga eða stofnana eiga að birtast. Aðeins er gert ráð fyrir að birta nöfn en ekki titla eða heimilisföng. Best er að tilkynna þátttöku strax og greiðsla þarf að berast eigi síðar en í byrjun mars
Verð bókarinnar er 4200 kr. og áætlað að hún verði kringum 250 bls. Ganga má frá greiðslu með því að leggja upphæðina inn á reikning Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, kt. 700806-0490, nr. 0137-05-065007. Skýring greiðslu: Afmælisrit Jónínu . Senda má staðfestingu á greiðslu í heimabanka á netfangið kari@hi.is . Einnig má greiða með greiðslukorti og þarf þá að koma upplýsingum um kortanúmer og gildistíma til Kára Kaaber í tölvupósti ( kari@hi.is ) eða í síma 552-8530/525-4443, bréfasíma 562-2699.
Í ritstjórn afmælisritsins eru Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason og Svavar Sigmundsson.
Auglýsingar
Tilefni |
Tengiliður |
|
Viltu auglýsa á vefnum? Skilmálar auglýsinga eru hér (24/3 2007)




Foss að vetrarlagi
Kolaveiðar