Kynningarúrdráttur efni kaflans:
Bataleið AA-samtakanna
"Aðdragandinn að
fæðingu AA-samtakanna."
Höfundur:
Hjalti Björnsson NCAC
Meðgöngutíminn.
Forsögulegt.
Árið 1785 skrifaði Dr. Benjamín Rush, faðir bandarískrar
geðsjúkdómsfræði og ritari sjálfstæðisyfirlýsingarinnar, að alkóhólismi væri
sjúkdómur sem þróaðist og eina lausnin væri algert bindindi. Læknar
þess tíma tóku þessu fálega og samþykktu engan veginn. Flestir töldu alkóhólista
veikgeðja og syndara!
Bindindishreyfingin (Temperance Movement).
Áfengisvandamálið óx mikið seinni hluta 18. aldar og fram á 19.
öldina. Aðgangur að, og framboð á, áfengi, jókst jafnt og þétt. Margir dóu úr
áfengissýki. Við þessar aðstæður varð bindindishreyfingin til árið 1808 í
Saratoga, New York, og 1813 í Massachusetts. Hún ól af sér bandarísku
bindindisamtökin A.T.S. (American Temperance Movement), árið 1826. Upphafleg hugmynd
þeirra (A.T.S.) var að hvetja fólk til hófdrykkju; það er að draga úr eða minnka
drykkju. Þetta var fyrsta tilraun í USA til að fást við afleiðingar
áfengissýkinnar. Þessi hreyfing leiddi síðan til stofnunar hinnar fyrstu
alþjóðlegu bindindishreyfingar árið 1851. Það var í Utica, New York að
International Order of Good Templers, eða I.O.G.T. var stofnað. Upp úr 1936
hafði sú hugmynd þróast í reglum þessum að um algert bindindi yrði að
vera að ræða meðal félaga þeirra.
Maðurinn sem lagði línurnar í þessum samtökum hét Lymon Beecher.
Samtökin töldu sig hafa loforð frá 1/3 hluta þjóðarinnar um að drekka ekki, þegar
veldi þeirra stóð sem hæst. Viðhorf bindindishreyfingarinnar til vandræðadrykkju
var einfalt: Koma í veg fyrir drykkju ungs fólks! Halda hófsömum í hófsemi! Hinir
drykkjusjúku myndu fljótlega deyja (deyja út)! Þeir töldu fylgi við þessa lífssýn
leysa vandamálið. Samtökin byrjuðu þó að missa fylgi strax og þeir tóku að boða
algert bindindi. Sumir af fjárhagslegum stuðningsmönnum hreyfingnarinnar, sem vildu
gjarnan dekka svolítið, drógu úr stuðningi og yfirgáfu hana eftir fyrstu árin, sem
voru þó mjög árangursrík. Samt sem áður ólu þessi samtök af sér aðrar
hreyfingar sem lét sig varða þessi mál.
Hjálpræðisherinn (Salvation Army).
Fimm árum eftir stofnun hins alþjóðlega I.O.G.T. í Bandaríkjunum,
eða árið 1856, stofnar Wiliam Booth í Bretlandi hin alþjóðlegu samtök,
Hjálpræðisherinn. Hjálpræðisherinn kemur síðan til Bandaríkjanna árið 1882. Eru
samtök þessi óbeint til höfuðs alkóhólismanum.
Washington Samtökin.
W.S. hafa verið kölluð brautryðjendur AA-samtakanna. Þau voru
stofnuð af alkahólistum fyrir alkahólista. Samtök þessi voru kraftmikil en skammlíf.
Þann 2. Apríl 1840, sátu sex menn að drykkju á bar í Baltimore, Maryland. Síðar um
kvöldið ætluðu bindindissamtökin að halda fyrirlestur skammt frá. Sér til
skemmtunar og til að sjá hvað þær væri á boðstólum, fóru fjórir af þessum sex
á fundinn. Þeir komu til baka á barinn, djúpt snortnir af því sem ræðumaðurnn
hafði sagt. Þetta leiddi svo til þess að sexmenningarnir fóru að tala um að stofna
sín eigin samtök: Samtök fyrir þá sem vildu hætta að drekka. Hópurinn
velti því fyrir sér að nefna samtökin eftir Thomas Jefferson, en hættu við það og
nefndu þau Washington samtökin í höfuðið á George Washington. Önnur
nöfn festust einnig á samtökunum svo sem Washington templarasamtökin og
Washington - algjört bindindi og fleira, en almennt voru þau kölluð
The Wasingtonians. Samtökin dreifðust og eftir um það bil eitt ár mættu
um 1000 manns reglulega á fundi. Þetta voru fyrstu samtökin stofnuð af alkóhólisum
sem státað gátu af árangri. Á tveggja ára afmælisfundinum ávarpaði Abraham
Lincoln samkomuna. Upp úr þessu voru 5000 deildir stofnaðar. Washingtonsamtökin eru
talin hafa haft um 600.000 félaga í U.S.A. þegar best lét. Miðað við fólksfjölda,
þá hefur það verið gríðarlegur árangur.
Það voru einnig W.S. sem fundu upp á því að vera með
Speaker" fundi, eins og þekktir eru í AA-samtökunum í dag. Sömuleiðis að
fundarmenn stæðu upp og segðu frá reynslu sinni, tengdri áfengisneyslu og
afleiðingum hennar. Þessi hefð er trúlega upphafið að því að alkóhólistar deila
með sér reynslu sinni, trú, von og kærleika, eins og enn tíðkast í AA-samtökunum.
Því miður var ekki boðið upp á neina sérstaka áætlun til að ná andlegum bata
fyrir félaga W.S.
Eftir um það bil þrjú ár byrjaði áhuginn á samtökunum að
dvína. Samtökin blönduðust inn í mjög alvarleg og hatröm deilumál um þrælahald,
sem ollu mikilli upplausn í samtökunum og minnkandi tiltrú fólks á þeim (Ekki var um
að ræða neinar reglur til að verja samtök þessi eins og erfðavenjur AA-samtakanna
verja AA-samtökin). W.S. tengdust einnig bannsamtökunum sem voru löngu úrelt og nutu
ekki virðingar í þjóðfélaginu. Samt sem áður voru þetta merkileg samtök, með
góðar hugmyndir, en höfuð ástæðan fyrir hruni þeirra var að miklu leyti skortur
á framkvæmdaáætlun til að ná settu marki í batanum frá alkahólisma.
Eftir rúm sjö ár höfðu samtökin nokkurnvegin lognast útaf.
W.S. virtust sjá andlega vakningu sem hluta af lausni á vandanum
(trúlega reynslan af fundinum í Baltimore), þá er ljóst að þeir höfðu ekkert
sjúkdómsinnsæi. Þeir litu ekki á alkóhólisma sem sjúkdóm þrátt fyrir að sú
skilgreining hefði verið sett fram af Dr. Rush 1785, eða 55 árum áður.
W.S. voru fyrstir allra til að opna heimili til að meðhöndla
alkahólista árið 1845 fyrstu meðferðarstöðina sem sögur fara af.
Emmanúel hreyfingin.
Þó að Emmanúel hreyfingin sem stofnuð var í Boston árið 1900,
hafi ekki haft skilning á, né notað sjúkdómsskilgreininguna á alkahólismann, þá
var það fyrsta hreyfingin sem taldi sálfræðilega þætti hluta af vandanum.
E-hreyfingin var nær eingöngu í austur fylkjum Bandaríkjanna. Á
blómaskeiði þessarar hreyfingar töldu forsvarsmenn hennar að í þeim væru um 30.000
félagar sem náð hefðu bata eftir þeirra hugmyndum. Bók William James, The
Varieties of Religious Experience hafði mikil áhrif á samtökin. Á sama hátt og
W.S. þá átti Eemmanúel hreyfingin sinn þátt í sumum af þeim hugmyndum sem síðar
ólu af sér AA-samtökin.
Úr þessari hreyfingu er talinn fyrsti formlegi og opinberlega
skráði áfengisráðgjafinn, Courtney Baylor. Baylor kom á fót skrifstofu
til að hitta skjólstæðinga. Hann upplýsti að til hans leitaði fólk öll kvöld og
tók hann 20 dali fyrir viðtalið. Þrátt fyrir það að hann væri sjálfur
endurhæfður alkahólisti deildi hann ekki þeirri staðreynd með skjólstæðingum
sínum. Baylor var mjög farsæll ráðgjafi og hefur trúlega verið fyrstur til að koma
upp hnitmiðuðum og árangursríku meðferðarplani fyrir alkóhólista. Einn af þeim
sem hann vann með var Richard Peabody. Peabody þessi skrifaði síðar bókina The
Common Sense of Drinking, sem útgefin var 1930. Sú bók var notuð af
Oxford-hópnum og lesin af upphafsmönnum AA.
Peabody skrifaði um aðferðir og hugmyndir Courtney Baylor og í
bókinni gefur meðal annars þetta að líta (bls. 10 og 11): Drykkja er greinilega
óskin um að komast undan raunveruleikanum. Hinir villandi töfrar af drykknum stafa af
því að áhrif áfengis eru ótrúlega fullnægjandi fyrir ákveðnar sálrænar
þarfir. Flestir sem taka einn drykk munu lýsa því sem þeir fá út úr því
tilfinningalega á þennan hátt: (1) rólyndi, jafnvægi, stilla og slökun. (2)
sjálfsánægja, sjálfsöryggi og sjálfsmikilvægi. Á meðan þörf meðalmannsins
fyrir hugarró og sjálfsánægju er svalað með neyslu áfengis, ef því er neytt í
hófi, þá eru aðrir, - eðlilegir að öðru leyti, - sem bregðast óeðlilega við
áfengi, eða þannig að áfengi er alltof heillandi fyrir þá. Það eitrar taugakerfi
þeirra. Þeir sem bregðast þannig við áfengi þurfa að útiloka það algjörlega
úr lífi sínu, ellegar hljóta þeir mjög alvarlegar afleiðingar af neyslu
þess. Það er vel mögulegt að athugasemdir Dr. Silkworth í AA bókinni séu að
hluta til tilvitnun í bók Peabodys, þegar Sildworth útskýrir óeðlileg viðbrögð
við áfengi þegar það kemur í líkama alkóhólista. Bók Peabodys átti stóran
þátt í því að koma orðinu alkahólisti inn í orðaforða fólks, í
stað margra annara svo sem róni, úrhrak, drykkjurútur, o.s.frv. Orðið alkahólisti,
eða á ensku alcoholic, varð síðan hluti af nafni alþjóða samtaknna
Alcoholics Anonymous (AA skammstöfunin).
Þrátt fyrir að þeir Cortney Baylor og Richard Peabody kæmu með
margar góðar hugmyndir í útgáfum sínum og vinnu, skildu þeir ekki til fulls að um
sjúkdóm væri að ræða. Sjúkdóm ofnæmis og þráhyggju (obsession). Þeir
voru þó langt á undan samtíð sinni hvað varðar almenn viðhorf til
áfengissýkinnar.
Oxford hreyfingin (Oxford-Groups).
Oxford hreyfingin var trúarleg (andleg) hreyfing stofnuð í
Bandaríkjunum árið 1918. Þrátt fyrir að hóparnir væru ekki eingöngu ætlaðir
alkóhólistum, höfðu þeir greinilega mikil áhrif á þá stefnu sem meðferð
alkóhólisma tók. Dr. Frank Buchman, einn af bandarísku stofnendunum var starfandi sem
skólastjóri við drengjaskóla í Philadelfíu. Hann átti í miklum
samstarfserfiðleikum við meðstjórnendur sína í skólanum, vegna þess að hann fékk
ekki nægt fé til rekstrarins. Þessir erfiðleikar enduðu með því að Buchman sagði
up stöðu sinni í miklu fússi og fór til Englands árið 1908. Kvöld eitt árið
1911, þegar hann var staddur í lítilli kirkju í Cumberland á Englandi, talaði kona
nokkur um kraftin í krossinum og hann upplifði skyndilega og mikla breytingu á sjálfum
sér. Hann snéri heim til Bandaríkjanna og skrifaði bréf til stjórnarinnar í
skólanum sem hann hafði hætt hjá í reiði. Hann skrifaði bréf til að bæta
fyrir mistök sín. Þrátt fyrir að hann fengi engin svör frá stjórninni
losnaði hann við reiðina og sektarkendina.
Buchman byrjaði að starfa með öðrum og ferðaðist til Austurlanda
fjær. Meðan hann var þar hitti hann Sam Shoemaker, sem síðar varð prestur. Upp úr
1920 varð söfnuður Sams, - sem síðar nefndist Calvary House, - höfuðstöðvar
Oxford hópanna í Bandaríkjunum. Eitt sinn er hann ferðaðist í lest með hóp af
stúdentum úr Oxford háskólanum, kom lestarvörðurinn og vildi vita deili á þeim.
Lestarvörðurinn setti skilti á klefa þeirra þar sem á var ritað Oxford
hópur. Þetta varð síðar nafn hópanna og hreyfingarinnar.
Sagt hefur verið að Oxford hóparnir hefðu verið fólk sem var að
reyna að lifa lífinu á sama hátt og fyrstu aldar kristnir menn. Fundir hópanna voru
einskonar heimboð. Samtökin höfðu enga formlega uppbyggingu og meðlimir
borguðu engin gjöld. Í hópnum var fólk með mismundandi trúarskoðanir, sem kom
saman til að þroskast eftir andlegum leiðum. Það var engin félagaskrá og þeir sem
komu hafði oftast verið boðið af öðrum. Heimboðin voru oftast haldin á
vinsælum stöðum, svo sem sumarbúðum, frægum hótelum eða efnameiri heimilum, þar
sem gestirninr borðuðu saman og ræddu andleg málefni. Til eru staðfestar upplýsingar
um eitt slíkt heimboð í Hollywood þar sem 36.000 manns mættu. Margir
áhrifamenn tengdust þessum hóp, meðal annars borgarstjóri New York og Harry Truman
forseti. Þá er talið að Oxford hóparnir hafi haft mikil áhrif á stjórn og umsvif
flestra trúarhópa þessa tíma.
Hugmyndir Oxford hópanna hafa mjög líklega verið upphafið að
félagskap AA-samtakanna. Megin reglur Oxford hreyfingarinnar voru: 1). Skilyrðislaus
heiðarleiki. 2). Skilyrðislaust hreinlyndi. 3). Skilyrðislaus óeigingirni. 4).
Skilyrðislaus ást. Framgangsmáti og sameiginleg markmið þeirra voru: (1) Að deila
syndum sínum og freistingum með annari kristini manneskju sem hefði falið líf sitt
Guði, og að nota það sem hjálpartæki fyrir þriðja aðila til að koma auga á
sínar eignin syndir og freistingar, og geta létt á samviskunni. (2) Að afsala sér
allri stjórn á lífi sínu í fortíð, nútíð og framtíð, og fela stjórnina Guði.
(3) Að gera upp sakir við alla sem þeir höfðu gert á hlut, beint eða óbeint. (4)
Að hlusta á, samþykkja og treysta á stjórn Guðs og lúta henni í öllu sögðu og
gerðu, stóru og smáu.
Við nánari skoðun þessara markmiða má sjá í þeim hugmyndir sem
síðar uðru að 12-spora kerfi AA-samtaknna. (1) Fyrstu aðferðinni (deila syndum
sínum), má líkja við 4. og 5. sporið. (2) Annari aðferðinni (afsala sér), má
líkja við 3. sporið. (3) Þeirri þriðju (gera upp sakir) við 8. og 9. sporið og
þeirri fjórðu (að treysta á Guð) við 11. sporið.
Ritmál Oxford hreyfingarinnar lagði til að með orðinu
synd væri átt við sjálfselskulegt atferli. Þar eð fáir alkóhólistar
gátu sætt sig við þessi hefðbundnu trúarlegu skilyrði, endurritaði Bill Wilson
þessar aðferðarlýsingar þannig að: í stað að deila syndum sínum, kom
við gerðum rækileg og óttalust siðferðileg reiknisskil í lífi okkar
(4. sporið). Á sama hátt var það að játa og við játuðum
afdráttarlaust fyrir Guði, sjálfum okkur og trúnaðarmanni yfirsjónir okkar (5.
sporið). Að lúta stjórn annars í stóru og smáu og aðrar álíka
hugmyndir voru mjög óaðgengilegar fyrir nýendurhæfða alkóhólista. Þar sem fáir
alkóhólistar vildu lúta stjórn, eða fela sig á vald varð sú aðferð
að: Við tókum þá ákvörðun að leita Guðs og láta vilja okkar og líf lúta
handleiðslu hans, samkvæmt skilningi okkar á honum (3. sporið). Þessi skilyrði
voru mun aðgengilegri og ásættanlegri fyrir alkóhólista.
Eitt af skilyrðum Oxford hreyfingarinnar var að gera upp sakir
við aðra og þar eins og víðar í þeirra ritum átti þetta að gerast
afdráttarlaust, eða skilyrðislaust. Þessu gátu alkóhólistar ekki tekið
og því breytti Bill W. þessu í tvö spor til að auðvelda alkóhólistum þennan
þátt. Þessi tvö spor voru að: Skrá misgjörðir okkar gegn náunganum
(8. sporið), og við bættum brot okkar milliliðalaust, þar sem það var
hægt (9. Sporið). Þessi spor stóðu undir því sama og númer (3) í aðferðum
Oxford hreyfingarinnar.
Lokafasinn í prógrammi Oxford hreyfingarinnar var að taka
ábendingum (leiðsögn). Enginn sjálfmiðaður alkóhólisti vill þiggja leiðsögn
frá annarri manneskju. Þess vegna var þeirri aðferð breytt í AA á þann hátt að
við skyldum biðja um skilning, og það þá með bæn og
hugleiðslu, og þannig komast að því hver væri vilji Guðs fyrir okkur (11
sporið). Fyrsta og síðasta sporið (1. og 12. sporið) voru upphaf og endir
AA-prógrammsins. Í fyrsta sporinu viðurkenndi alkóhólistinn vanmátt sinn gagnvart
áfengi og í því 12. var boðið upp á hugmyndina um að deila reynslu sinni, og vinna
með alkóhólistum, væri besta tryggingin fyrir því að um áframhaldandi edrúmensku
yrði að ræða hjá alkóhólistanum. Fullkominn, skipulögð áætlun um hverning ætti
að öðlast bata, var orðin raunveruleg staðreynd.
Við getum auðveldlega séð að bataáætlun AA-samtakanna, fær
mikið frá Oxford hreyfingunni. Stofnendur og upphafsmenn AA-samtakana, Bill W., Dr. Bob,
Ebby T. og Rowland H., voru allir meðlimir AA-Oxford hópsins.
Bannárinn.
Meðan þessi þróun átti sér stað, settu stjórnmálamenn, sem
voru undir miklum þrýstingi ýmissa trúarhópa, lög sem bönnuðu framleiðslu,
dreyfingu og sölu áfengis í Bandaríkjunum. Tóku lög þessi gildi 29. janúar 1919 og
urðu með þeim mikil tímamót í sögu þjóðarinnar. Er lagasetning þessi í dag
talin vera meðal mestu stjórnunarlegra mistaka síðari tíma í sögu Bandaríkjanna.
Urðu Bandaríkin með þessu fordæmi fyrir önnur ríki, - þar á meðal Ísland, - sem
einnig settu lög um áfengisbann. Banninu var aflétt í Bandaríkjunum árið 1933, af
einni ástæðu, - skatttekjur af sölu áfengis töpuðust við bannið og sá biti var
orðin of stór fyrir ríkiskassann. Landið var í mikilli efnahagskreppu og Roosvelt
forseti vissi að skattur af áfengisölu gæti hjálpað mikið við að rétta af
fjármálin. Áfengið varð þannig samþykkt aftur og skattar af því eru enn í dag
stór liður í tekjum hins opinbera. Áfengisneysla varð því aftur opinber en
skilningsleysi og fáfræði um áfengismálinn höfðu lítið breyst, - og ekkert hafði
verið gert til að takast á við hið raunverulega vandamál, - alkóhólisma.
Fæðingin.
Rowland Hazard og Dr. Carl Gustav Jung.
Rowland Hazard, áberandi bankaeigandi í Vermont, var búinn að reyna
allt til að hafa stjórn á drykkju sinni. Á árinu 1930 fór hann til Zurich, í Swiss
til meðferðar hjá Dr. Carl G. Jung, geðlækni. Carl Jung var einn af vitrari
geðlæknum þess tíma. Hugmyndir hans og rannsóknir á mannshuganum höfðu mikil
áhrif í greininni og hafa enn í dag. Þetta var á svipuðum tíma og Dr. Silkworth
byrjaði að vinna á Towns Hospital. Rowland var í meðferð hjá Dr. Jung í um það
bil eitt ár, en snéri að því loku til síns heima. Fljótlega var hann farinn að
drekka aftur. Rowland snéri þá aftur á fund Dr. Jung og ráðfærði sig við hann.
Spurði hann Dr. Jung hvort nokkur leið væri til að ná tökum á alkóhólinu. Dr.
Jung sagði honum að hann væri með hugsun krónísks alkóhólista og að hann ætti
sér enga von nema að verða fyrir þýðingarmikilli andlegri reynslu, eða
á ensku; vital spiritual experience, sem bæri með sér róttækar
hugarfarslegar breytingar. Þessa staðhæfingu hafa AA-samtökin gert að höfuð inntaki
viðleitni sinnar og hefur hún orðið þess valdandi að milljónir manna hafa öðlast
bata frá alkóhólisma um allann heim.
Dr. Carl Jung sagði Rowland frá alkóhólistum sem hefðu náð bata,
en að það væri sjaldgæft og ætti sér ekki stað nema eftir víðtæka trúarlega
reynslu sem innihéldi hugarfarsbreytingu. Hann lagði til við Rowland að hann reyndi
að koma sér inn í eitthvert trúarlegt umhverfi með von um hið besta.
Skömmu síðar var Rowland komin í samband við Oxford hreyfinguna og losnaði þar
undan drykkjuáþján sinni. Dr. Jung ráðlagði Rowland einning að lesa bókina
The Varieties of Religious Experience eftir William James. Þegar Rowland kom
til New York varð hann virkur meðlimur á Oxford fundunum sem voru haldnir í Calvary
krikjunni.
Ebby Thatcher.
E.T. hafði verið nokkuð vel stæður, en 1934 riðaði hann á barmi
gjaldþrots. Í júlí ákvað hann að fara í sumarbústað fjölskyldunar í
Manchester, Vermont. Þetta var eina athvarf þessa brotna manns. Bústaðurinn hafði
verið í niðurníðslu mjög lengi og hann ákvað að reyna að viðhalda honum
svolítið. Meðan hann var þarna versnaði drykkja hans stöðugt. Rowland Hazard var í
sumarbústað sínum nálægt Manchester þar sem hann frétti af drykkjvandamáli Ebby.
Tveir af gestum Rowlands, þeir Shep Cornell og Cebra G. heimsóttu Ebby og sögðu honum
frá Oxford hópunum. Nokkrum dögum seinna heimsótti Rowland Ebby og sagði honum frá
sínu áfengisvandamáli, og hverning hann hefði tekist á við það og náð bata.
Innan fárra daga var Ebby í vandræðum aftur vegna drykkju. Ebby
hafði verið að mála þak á bústaðnum þegar fuglahópur kom og settist á það
nýmálað. Hann sótti byssu sína í húsið og byrjaði að skjóta stjórnlaust á
þessa fiðruðu óvini. Nágrannar hrigndu á lögregluna sem handtók Ebby og setti í
fangelsi. Við réttarhöldin var dómarinn (faðir Cebra G.) tilbúin að setja Ebby á
hæli fyrir drykkjusjúka. Rowland sem hafði fylgt Ebby fyrir dóm kom á málamiðlun.
Eftir að hafa sagt frá því hverning hann hefði náð bata frá alkóhólisma,
sannfærðist dómarinn um að sleppa Ebby, gegn því að Roweland hefði eftirlit með
honum. Ebby gisti þá nokkurn tíma hjá Rowland, eða þar til hann fór til New York,
og þá með Shep Cornell. Þar bjó Ebby hjá einum meðlima Calvary safnaðarins. Ebby
fór fljótlega að starfa í söfnuðinum við að hjálpa öðrum, samhliða því að
honum var hjálpað. Þetta varð honum góð aðstoð í bataþróuninni.
Þegar Ebby hafði verið ódrukkinn í nokkra mánuði hitti hann
gamla kunningja sem sögðu honum þær fréttir að gamall skólafélagi hans og vinur,
Bill Wilson væri í miklum vandræðum út af drykkjuskap. Ebby hafði samband við Bill.
Nokkru síðar bauð Bill honum í heimsókn og hlakkaði til að fá sér í glas með
sínum gamala vini. Bill til mikillar undrunar kom Ebby edrú og færði honum sama
boðskap og Shep, Cebra og Rowland höfðu flutt Ebby áður. Það var í nóvember 1934,
heima í eldhúsinu hjá Bill að Ebby flutti honum boðskapinn sem síðar varð lausn á
alkóhólisma hans. Sami boðskapur og Dr. Jung hafði fært Rowland fjórum árum áður.
Það fór hrollur um Bill þegar Ebby nefndi Guð, en þá stakk Ebby upp á því að
hann reyndi að trúa samkvæmt sínum eigin skilningi á Guði. Á þessari
stundu breyttist boðskapurinn úr trúarlegri reynslu í
andlega reynslu.
Bill Wilson (William Griffith Wilson).
Bill W. og Ebby T. hittust fyrst og urðu vinir þegar þeir gengu
saman í skóla í Manchester, Vermont. Sem ungir menn vissu þeir hvorugur hve mikilvægu
hlutverki þeir ættu eftir að gegna í lífi hvers annars síðar á lífsleiðinni.
Bill var kallaður í herinnn í fyrri heimsstyrjöldinni. Eftir þjálfun var hann
staðsettur í Ft. Rodman herstöðinni í New Bedford, Massachusetts. Þar fór hann í
partý og var boðið í glas sem hann þáði. Hann var þá tuttugu og tveggja ára
gamall. Bill var mikill drykkjmaður frá byrjun. Hann var aldrei á neinu meðalstigi í
drykkju og hann drakk aldrei sócialt. Eftir heimsstyrjöldina vann hann í
Wall Street sem verðbréfasali. Hann þótti snjall sem slíkur og duglegur. Velgengni
hans var þó fljótlega ógnað af versnandi drykkju.
Haustið 1933 leitaði hann sér í fyrsta sinn aðstoðar á Towns
Hospital í New York. Spítali þessi hafði sérhæft sig í meðferð á áfengis- og
vímuefnafíklum. Þar hitti hann Dr. William D. Silkworth, sem hafði unnið þar siðan
1900. Til meðferðar hjá W. Silkworth komu alls um 50.000 alkóhólistar, meðan hann
vann að þessum málum. W. Silkworth taldi að einungis tvö prósent hefðu náð bata
af þessum stóra hóp sem hann hafði til meðferðar. Silkworth sagði Bill frá
kenningum sínum um alkóhólismann. Taldi hann að hér væri um að ræða
ofnæmi, samfara andlegri þráhyggju.
Hjá Silkworth heyrði Bill í fyrsta sinn að alkóhólismi stafaði
ekki af skorti á viljastyrk, og væri heldur ekki merki andlegra vankanta, heldur
sjálfstæður sjúkdómur. Honum leið eins og nýjum manni þegar hann yfirgaf spitalann
og vissi þá að hann gæti aldrei framar tekið eitt glas án þess að eiga það á
hættu að skaðast. Þessi vitneskja dugði stutt og hélt honum ekki edrú frekar en
annað. Sumarið 1934 var Bill aftur kominn inn á spítalann og þá komin með sterk
einkenni starfrænna truflanna á heilastarfseminni. Dr. Silkworth sagði Louis, konu
Bills, að hann gæti ekki haldið út eitt ár til viðbótar eins og hann væri á sig
kominn, og að trúlega þyrfti að loka hann inni til þess eins að hann færi sér ekki
að voða. Bill yfirgaf spítalannn og óttinn hélt honum edrú í smá tíma. Hann féll
aftur í drykkju vopnahlésdaginn þann 11, nóvember 1934.
Í lok nóvember 1934 fékk Bill símtal frá Ebby, sem vildi koma í
heimsókn. Það fannst Bill góð hugmynd og hlakkaði til að fá einhvern til að
drekka með. Hann hafði ekki séð Ebby í fimm ár en þá höfðu þeir báðir verið
drekkandi. Bill hafði einnig frétt að Ebby hefði verið lokaður inni á
drykkjumannahæli og velti því fyrir sér hverning honum hefði tekist að sleppa
þaðan. Hann vildi heyra Ebby segja frá því. Bill hafði ennig fyrir mörgum árum
sett sér þau mörk að ef hann ætti eftir að drekka eins og Ebby, þá ætlaði hann
að hætta. Bill til mikillar undrunar þá var Ebby edrú þegar hann kom og vildi ekki
þiggja drykk þegar hann bauð honum. Bill tók einnig eftir því að Ebby bæði leit
út, og hagaði sér örðuvísi, en hann var vanur. Ebby sagði Bill frá því hverning
hann hefði orðið edrú, og héldi sér þannig. Bill hélt áfram að drekka meðan
Ebby talaði og þegar Ebby nefndi Guð, fór hrollur um Bill. Hann þoldi hvorki
trúarboð né skipulögð trúarbrögð. En einu gat hann ekki neitað: Ebbý var edrú,
en hann, Bill, var það ekki.
Bill drakk í nokkra daga eftir þetta, en ákvað síðan að fara á
einn af þessum Oxford fundum sem Ebby hafði sagt honum frá. Hann kom við á bar á
leiðinni á fundinn og hitti þar mann að nafni Alec og bauð honum með sér á
fundinn. Báðir komu illa drukknir á fundinn í Calvary söfnuðinum. Tekið var vel á
móti þeim, borinn fyrir þá matur og kaffi til að reyna að hressa þá við. Það
bar lítin árangur og á miðjum fundi eftir að hafa heyrt nokkura menn tala um reynslu
sína, bæði í drykkju og frá henni, vildi Bill tala líka. Hann stóð upp, fór í
pontu og tjáði sig! Hann gat aldrei síðar munað hvað hann hafði sagt. Bill var
lagður inn á Towns Hospital þann 10. dessember 1934. Á leiðinn þangað hafði hann
keypt sér nokkra bjóra og var að drekka þá þegar hann talað við Silkworth við
innskráninguna. Þar sagði hann honum að nú hefði hann loks fundið
nokkuð sem myndi hjálpa honum til að verða ódrukkinn. Silkworð sagði honum
að fara í rúmið. Daginn eftir, þann 11. desember, drakk Bill síðasta bjórinn sinn.
Hann vissi ekki þá að þetta átti eftir að verða síðasta afeitrun hans. Varð
því 12. 12. 1934 fyrsti dagurinn sem hann varð ódrukkinn, einn dag í einu, í
samfellt 36 ár. Hér er gaman að skoða það að þetta leiðir síðan til 12 spora og
12 erfðvenja.
Næstu daga var Bill í mikilli áfengisþoku. Ebby heimsótti hann og
stappaði í hann stálinu. Bill fór í mikið þunglyndi þegar runnið var af honum. Á
fyrstu klukkustundum þess 14. desember 1934 var Bill kominn í ástand þar sem hann var
fullur sektar og iðrunar, hjálparvana og vonlítill, og grét hann mikið þar til hann
lagði ráð sitt í hendur Guðs eins og hann lýsir því í bókinni
Lífsviðhorf Bills, (As Bill Sees It): Hugarangur mitt varð
óbærilegt og loks fannst mér ég vera sokkinn til botns. Í bili fannst mér síðasta
vígi þrjósku minnar og stolts hrunið til grunna. Ég vissi ekki fyrr en ég var farinn
að hrópa; Ef Guð er til þá sanni hann sig. Ég er reiðurbúin til að gera
hvað sem er! Skyndilega birti og sjúkrastofan varð böðuð hvítu, skæru
ljósi. Mér fannst sem um mig léki andblær sem ekki var af þessum heimi. Mér fannst
allt í einu ég vera frjáls maður. Smám saman hvarf sýnin. Ég lá eftir í rúminu
en góða stund var ég í öðrum heimi, nýjum vitundarheimi. Ég var fullur
vellíðunar og fann enn návist HANS og hugsaði með mér: Svo þetta er þá Guð
predikaranna.
Eftir þetta urðu rótækar breytinga á verðmætamati, viðhorfum og
hugmyndum Bills. Fór hann að hugsa og hegða sér öðruvísi enn áður. Má skoða
reynslu þess sem hinar raunverulegu fæðingu hugmyndanna að því sem síðar verður
kveikjan að AA-samtökunum. Bill Wilson var þrjátíu og níu ára þegar þetta átti
sér stað. Hann andaðist 24. janúar 1971, þá sjötíu og sex ára.
Starfað með öðrum.
Bill Wilson útskrifaðist frá Towns Hospital 18. desember 1934 og
hófst strax handa. Hann fór reglulega á fund í Oxford hópunum í Calvary
söfnuðinum. Oxford hópurinn var ekki eingöngu fyrir alkóhólista og leiddi það til
þess að alkóhólistarnir tóku að mynda hóp innan hópsins. Þeir gerðu sér fljótt
grein fyrir því að það að aðstoða aðra við að verða edrú hjálpaði þeim
sjálfum að vera ódrukknum. Bill sannfærði Silkworth um að hann gæti aðstoðað
menn sem væru á spítalanum. Hann fékk leyfi til að koma þangað og deila reynslu
sinni með alkóhólistum sem þar voru. Fljótlega lenti Bill í vandræðum þar sem
honum fannst engin hlusta á sig. Að lokum benti Silkworth honum á hvað hann gerði
rangt. Hann sagði honum að hætta að predika yfir mönnunum. Reyna heldur að útskýra
fyrir þeim hverning þetta var hjá honum sjálfum, og hvað hefði gerst. Bill
fylgdi ráðum Silkworths og þá fóru hlutirnir að gerast.

Dr. Bob Smith (Robert Holbrook Smith).
Í maí 1935, lenti Bill Wilson í miklum vandræðum vegna
viðskiptasamninga sem mistókust. Hann var þá staddur í Akron, Ohio. Velgengni hans í
einkalífinu var ógnað og honum fannst hann standa tæpt gagnvart áfenginu. Hann reyndi
að hafa upp á einhverjum alkóhólista sem hann gæti talað við. Prestur á staðnum,
Tunks að nafni, lét hann fá nokkur símanúmer sem hann gat hringt í og eftir
krókleiðum nái hann sambandi við Henríettu Sieberling. Hún hafði verið gift
alkóhólista, en var skilin við hann. Bill sagði henni erindi sitt og hún kom honum í
smband við Dr. Robert Holbrook Smith, sem hún hafði reyndar lengi, - án árangurs, -
reynt að aðstoða í gegnum Oxford hreyfinguna, sem hún var meðlimur í. Dr. Bob Smith
og Anne kona hans voru búin að vera lengi viðloðandi Oxford hópinn þar í bæ. Bob
hafði lesið mikið um hugmyndir þeirra og stundað fundi hjá hópnum til að komast
að því hverning þeir virkuðu, eins og hann sjálfur lýsti því. Hann drakk þó
reglulega.
Henrietta bauð Bill heim til sín. Þegar hann kom hringdi hún í
Anne og ætlaði að bjóða henni og Dr. Bob að koma. Smitty var þá
útúrdrukkinn og þau gátu ekki komið. Næsta dag, 12. maí 1935, hittust Bill Wilson
og Dr. Bob Smith í fyrsta sinn. Þegar þeir hittust var Bob órólegur og skalf
talsvert. Hann tilkynnti Bill að hann gæti í mesta lagi stoppað í 15 mínútur, en
róaðist þó þegar Bill stakk upp á því að hann fengi sér í glas. Þeir töluðu
saman í sjö klukkustundir samfleytt. Dr. Bob hafði heyrt flest það sem Bill sagði
áður, en það sem var þó öðruvísi var að nú heyrði hann annann alkóhólista
segja þetta. Það var engin fyrirlestur, heldur persónuleg reynsla.
Bill dvaldi á heimili Bob og Anne í Akron næstu þrjá mánuði. Dr.
Bob hafði verið ódrukkin í tvær vikur þegar hann ákvað að fara á læknaþing í
Atlantic City, fyrstu vikuna í júní. Hann hafði ekki misst af þessu þingi í 20 ár.
Þetta endaði á miklum túr og síðan tók við þriggja sólahringa afeitrun þegar
heim var komið. Dr. Bob drakk í síðasta sinn þann 10. júní 1935. Í dag er sá
dagur skoðaður sem upphafsdagur AA-samtakanna.
AA byrjar.
Þann tíma sem Bill dvaldi á heimili Bob og Anne iðkuðu þau
hugleiðslu og íhugun alla morgna. Það hófst með hljóðri stund. Eftir nokkurn
tíma las Anne kafla úr bókum um trúarleg efni. Síðan fór eitt þeirra með bæn
upphátt og eftir það allir í hljóði. Eftir aðra þagnarstund sögðu þau hvort
öðru frá því sem kom í huga þeirra. Þessar morgunstundir voru í raun hugmyndir
Oxford hópanna. Margar AA deildir hefja fund á svipaðan hátt í dag.
Þegar Bill snéri til New York í ágúst 1935 voru fjórir orðnir
edrú og sá fimmti á snúrunni. Frá því um haustið 1935 til vors 1936
hjálpaði Bill tveimur til að verða edrú í New York. Haustið 1937 voru sjö
endurhæfðir alkóhólistar í Akron og fimm í New York. New York alkóhólistarnir
sögðu skilið við Oxford hreyfinguna 1937. Eftir það héldu þeir fundi á heimili
Bill og Louis Wilson. Í Akron héldu alkóhólistarnir áfram að halda fundi í Oxford
hópnum fram til loka ársins 1939 er þeir skldu sig einnig frá þessari hreyfingu og
stofnuðu deild svipað og alkóhólistarninr í New York. Héldu þeir fundina til að
byrja með á heimili Dr. Bob. Árið 1937 var hafist handa við að skrifa AA bókina.
Bill Wilson var mikið í þeirri vinnu. Handritið var 1200 blaðsíður. Það var
skorið niður í 400 blaðsíður fyrir prentun, enda bókin fljótt kölluð
stóra bókinn. Bókin kom úr prentun 1939 og var AA-samtökunum gefið
nafnið eftir að bókin kom út.
Helstu heimildir:
1. The
Variaety of Religious Experience: William James, New
York, N.Y., Modern Library 1929.
2. The Way it Began: B. Pittmann, Seattle,
Washington, Glen Abby Books 1988.
3. Alcoholics Anonymous Comes of Age: New
York, N.Y., AA World Service Inc. 1957.
4. Pass It On; Bill Wilson and the AA Message:
New York, N.Y., AA World Service Inc. 1984.
5. Dr. Bob And The Good Oldtimers: New York,
N.Y., AA World Service Inc. 1980.
6. Not God. A History of AA: Ernest Kurtz,
Center City, Minnesota Hazelden Educational Services 1979.
HÞB 1993.
|
|