Kynningarútdráttur efni kaflans:
Sjúkdómurinn Alkóhólismi

"Alkóhól drepur dómgreind, huga og anda mannsins."

14-4-horsemen.gif (140667 bytes)


Alkóhólismi er eini “sjúkdómurinn” í mannkyninu sem er seldur á flöskum. Þú getur ekki öðlast þennan “sjúkdóm” nema að borga fyrir hann. Það er eini “sjúkdómurinn” sem er löglega framleiddur með leyfisbréfi yfirvalda! Hann er seldur almenningi af heiðarlegum borgurum, með samþykki stjórnmálamanna sem hlotið hafa löglega kosningu. Þessi “sjúkdómur” fyllir dómsalina og fangelsin, og sér um að halda í fullu starfi, bæði þeim sem vinna í “handtöku og refsiiðnaðinum,” sem og í “skaðabótaiðnaðinum,” sjálfstætt eða á vegum hins opinbera. Hann sér um að koma fólki á atvinnuleysistryggingabætur, sjúkratryggingabætur og örorkubætur. Hann kemur fólki um óákveðin tíma í umsjá hins “samfélagslega hjálpariðnaðar,” svo sem félagsmálastofnunar og annarra opinbera velferðarstofnana. Hann tryggir og þeim iðnaði sem fæst við “starfrænar truflanir mannsheilans,” að nóg sé að gera. Hér geta þeir sem starfa sem geðlyfjaframleiðendur, sálfræðingar, geðlæknar og starfsmenn geðsjúkrahúsa, þakkað “sjúkdómnum” næga viðskiptavini.

Þetta er og eini “sjúkdómurinn” sem notast við risastórar verksmiðjur, sem svo aftur nýta sér nýjustu tækni og vísindi, sem og færustu vísindamenn, í framleiðslu sinni. “Sjúkdómur” þessi velur sér bestu svæðin í tímaritum og dagblöðum, notar útvarp og sjónvarp til að efla sjálfan sig. Þetta er eini “sjúkdómurinn” sem ríkistjórnir leggja skatt á! Þú verður að fá leyfisbréf yfirvalda til að selja “sjúkdóm” þennan. Þetta er svo slungin “sjúkdómur” að mestu vísindasnillingar mannkynsins geta ekki sagt þér hvernig hann verður til í heilanum, eða hverjar sameiginlegar afleiðingar hans eru fyrir þjóðirnar og mannkynið í heild. Þetta er eini “sjúkdómurinn” sem táningar verða að sækja í til að geta losað um persónuhömlur sínar og “skemmt” sér. Sömuleiðis getur stór hluti hinna fullorðnu ekki tekið neinar þýðingarmiklar ákvarðanir í lífi sínu, nema með hjálp “sjúkdóms” þessa, og lendir síðan í vandræðum með að láta fjármál sín ganga upp vegna slíkrar ákvörðunatöku og kostnaðar við að leita á náðir “sjúkdómsins.”

Þetta er eini “sjúkdómurinn” sem mengar heila þinn þannig að þú munt sjá snáka og skorkvikindi skríða um líkama þinn, og síðan fá þig til að öskra í angist, án þess að nokkur fótur sé fyrir skynjunum þessum. Þetta er vissulega furðulegasti “sjúkdómur” mannsins, og um leið algert einsdæmi og óútskýranlegur, þar sem hann er allt öðruvísi en allir aðrir sjúkdómar sem hrjá manninn. Það alfurðulegasta við “sjúkdóm” þennan er að ekki er hægt með nokkru móti að hræða þá sem af honum þjást, nægilega með hryllings-staðreyndunum um hann, til að þeir hætti að kaupa meira af honum.

Lausnin á “sjúkdómnum” er í samræmi við þetta; Mjög óvanaleg og furðuleg. Eina leiðin til að afgreiða “sjúkdóm” þennan er fólgin í því að sjúklingurinn neiti að borga fyrir hann. Neiti að opna flöskur sem inniheldur hann. Fari að biðja Guð að hjálpa sér og hætti að horfa á flísina í auga náungans, en fari að snúa sér að því að skoða bjálkana í eigin augum.

Fyrir nokkrum árum var unnið að því í matvæla- og lyfjaeftirliti bandaríska heilbrigðiseftirlitsins, að skilgreina fyrir löggjafarvaldið, hvaða eiginleikar efni yrðu að hafa til þess að þau yrðu skilgreind sem eitur, eða eiturlyf. Þegar skilgreiningin hafði verið gerð, kom í ljós að hún átti við um alla alkóhólíska drykki. Kom þá í ljós að alkóhól var ólöglegt samkvæmt gildandi lögum. Urðu flestir þeir sem störfuðu við stofnun þessa sammála um að sú staðreynd skipti engu máli. Alkóhólismi væri sá “sjúkdómur” samfélagsins sem menn óskuðu eftir að fá að hafa frjálst val um. Hvort þeir hefðu svo frjálsan vilja til að velja hann, varð ekki svarað. Á hinn bóginn gerðu menn sér ljóst að algert samfélagslegt efnahags- og atvinnuhrun myndi eiga sér stað, ef menn hættu að kaupa sér “sjúkdóm” þennan. (PJE)

Engill Afkimans bls. 70

Forsíða
Sjúkdómurinn Alkóhólismi
Aðdragandi AA-samtakanna
Bataleið AA-samtakanna
Annar stuðningur og hvatningar
Ýmislegt um yoga og yogatækni

 

Hin ánetjunarsjúka sál

Þar sem virkir alkóhólistar, eða einstaklingar sem háðir eru hverkyns taugahemlandi, eða örvandi efna neyslu, eru í afar stjórnlausu ástandi sem fyrst og fremst einkennist af stjórnun í gegnum hvatir og tilfinningar, þykir okkur sambærileg mynd úr Bhagavad-Gita lýsa því einkar vel í andlegu og myndrænu líkingarmáli.
 

18-A_bjargbrun.gif (66605 bytes)


Andleg líkingarmálsmynd sem sýnir sjúklegt andlegt ástand og virkni meðvitundar virks alkóhólísks hugarfars.

Sálin/undirmeðvitundin er illa haldinn farþegi í vagni efnis/rökhyggju egósins sem er ekillinn.

Vagninn/hugurinn er dreginn áfram af hinum fimm hestum skynjananna sem eiga rætur sínar í hvötum og löngunum, sem svo aftur mynda hina mannlegu bresti.

Einstaklingurinn er einn á ferð og sveiflast af nautnum og þjáningu.

Líkingin er tekin úr trúarljóðum Hindúa sem gengu milli manna í formi sagna í margar aldir þar til þær voru skráðar á fyrstu eða annari öld e. K.