UMFANG ALKÓHÓLISMA

Á VESTURLÖNDUM OG 

ALCOHOLICS ANONYMOUS

 

LÖGMÁL BILL W. :

ÞEGAR AÐ BATALAUSNUM FRÁ ALKÓHÓLISMA KEMUR,
ER: „HIÐ NÆSTBESTA ÓVINUR HINS BESTA“.
ÞAÐ NÆSTBESTA DREPUR ALKÓHÓLISTANN
ÞAR SEM ÞAÐ LEIÐIR FRÁ HINNI EINU RÉTTU LAUSN.

 

Samantekt þessi er gerð um aldamótin 2001 og er hún byggð á ýmsum þáttum og upplýsingum sem á boðstólum eru og koma úr hinum ýmsu áttum. Hins vegar, þegar að alkóhólisma kemur verða allar statistískar upplýsingar óáreiðanlegar og er þar sérstaklega afneitunin sem kemur í veg fyrir hvers konar nákvæmni í yfirlitsgerðum um virkni sjúkdómsins.

 

Hversu margir alkóhólistar eru á Vesturlöndum um aldamótin 2001?

Almennt er talið, meðal þeirra sem rannsaka alkóhólisma á Vesturlöndum, að sjúkdómurinn nái til 25% Vesturlandabúa. Í byrjun 20. aldarinnar var talið, með nokkurri ónákvæmni, að um 5% alkóhólánetjaðra einstaklinga væri um að ræða en lítið var um læknalyf á þessu sviði og sömuleiðis tiltölulega lítið um ólögleg eiturlyf. Þegar talað er um alkóhólisma er um að ræða 3. og 4. stig sjúkdómsins, en almenningur og mikill fjöldi lækna eru yfirleitt óupplýstir um, og þ.a.l. illa meðvitaðir um þróunareðli sjúkdómsins og sjá einungis 4. stigið, þ.e. það síðasta, sem alkóhólisma. Er skipting neysluánetjanna er sem hér segir: 

Alkóhól : ……………15%.

Lögleg læknalyf: …….5%.

Ólögleg götulyf: ……..5%.

Þetta þýðir að fjórði hver einstaklingur er ánetjaður á „ónáttúruleg gervitaugaboðefni“, en vísindin vita enn ekki til fulls hvað gerist í taugkerfi slíkra einstaklinga. En minna er vitað um hinar gífurlegu heildrænu samfélagslegu afleiðingar þessa sjúkdóms. (Í Rússlandi og mörgum fyrrverandi Sovétlöndum eru þessi hlutföll talin vera jafnvel enn hærri).

Hvað þýðir þetta fyrir 270.000 manna samfélag Íslendinga?
Það þýðir 270.000 x 25% = 67.500 alkóhólistar!

Hvað þýðir þetta fyrir 270.000.000 manna samfélag Bandaríkjamanna?
Það þýðir 270.000.000 x 25% = 67.500.000 alkóhólistar!

 

Hversu margir aðstandendur eru á Vesturlöndum um aldamótin 2001?

Í meðferðum hefur verið kennt að fyrir hvern alkóhólista sé um að ræða 5 meðvirka aðstandendur, en með hinum nýju niðurstöðum er þetta ekki lengur mögulegt og getur hér einungis verið um 3 meðvirka aðstandendur að ræða, eða 75%. Af þeim er stórt hlutfall ungabörn. Einstaklingar þessir eru þjakaðir af alkóhólísku hugarfari og öllum þeim skýkótísku kvillum sem því fylgja, án þess að þeir séu yfirleitt sjálfir neytendur „ónáttúrulegra gervitaugaboðefna“. Í verstu tilfellunum leiðir þetta til þunglyndis, sjálfsmorðshugsanna, sjálfsmorða og geðsjúkdóma sem eru illa rekjanlegir til meðvirkni vegna hinna óbeinu sálrænu tengsla, afneitunarinnar í aðstandendunum og sömuleiðis þeim sem eru að fást við að greina ástand þessara einstaklinga.

 Hvað þýðir þetta fyrir 270.000 manna samfélag Íslendinga?
Það þýðir 270.000 x 75% = 202.500 aðstandendur!

Hvað þýðir þetta fyrir 270.000.000 manna samfélag Bandaríkjamanna?
Það þýðir 270.000.000 x 75% = 202.500.000 aðstandendur!

  

Hver er árangur AA, „Alcoholics Anonymous“, um aldamótin 2001?

Eins og fram kemur í AA-bókinni, „Alcoholics Anonymous“, (Á ensku „The Big Book“) blaðsíðu xx og í grein þeirri sem hér fylgir á eftir, var árangur AA-samtakanna fyrstu 20 árin sá að 50% þeirra sem leituðu til þeirra náðu bata strax, en 25% eftir einhver föll. Á seinni hluta aldarinnar hefur dregið verulega úr þessum upphafsárangri og er nú talað um að einungis 5% til 10% þeirra sem leita til samtakanna fái fullan bata til æviloka. Þetta eru nokkuð óljósar upplýsingar og er nákvæmari skilgreiningin sú að af hverjum 36 alkóhólistum leita einungis 15 til AA-samtakanna og af þeim 15 er einungs 1 bjargað. Þetta samsvarar til þess að 58% alkóhólista leita aldrei til AA-samtakanna en 42% leit hjálpar þeirra. Þetta þýðir svo aftur að 6.66% af þeim sem leita til AA-samtakanna fái bata, sem almennt er talað um sem 5% til 10% (Sem er u.þ.b. 3% allra alkóhólista). Í þessu samhengi er athyglisvert að SÁÁ talar um að einungis 3% þeirra sem koma í meðferð til þeirra nái því að vera frá neyslu í 10 ár eða lengur, en 97% komi aftur í meðferð eða látist af völdum neyslu.  

Þetta þýðir að af u.þ.b. 67.500 íslenskum alkóhólistum hafa um 42% eða 28.350 leitað til AA-samtakanna
og  6.66% náð varanlegum bata eða um 1.890 alkóhólistar!

Af u.þ.b. 67.500.000 bandarískum alkóhólistum hafa því um 42% eða 28.350,000 leitað til AA-samtakanna
og  6.66% náð varanlegum bata eða um 1.890.000 alkóhólistar!

Hversu nákvæmar þessar tölur eru er ekki vitað en þær eru hins vegar ekki fjarri því sem þekkt er, eins og til dæmis þeim fjölda er leitað hafa og eru að leita í meðferðir, u.þ.b. 13.000 hjá SÁÁ og u.þ.b. 15.000 hjá ríkisspítölunum. Ekki er heldur ólíklegt að „fastur kjarni“ AA-samtakanna á Íslandi telji nálægt 1.900 einstaklinga. Í Bandaríkjunum telur hann einmitt um 1.900.000 einstaklinga.

Þetta ætti að segja þeim, sem náð hafa svo kölluðum viðvarandi bata og teljast til hins „fasta kjarna“ AA-samtakanna, að mögulegt væri að ná aftur þeim 75% sem upphaflega voru þekkt í samtökunum. Þetta bendir einnig á að því fé sem varið er í hroka þvætting eins og „Vímulaust Ísland“, væri betur varið í að leiðrétta og bæta núverandi meðferðarleiðsögn. Greinin: Lögmál Greshams staðfestir þetta rækilega.