Var að enda við að setja inn nýjar sumar myndir en það hefur verið nóg um að vera hjá okkur í sumar :) Eins og áður, ýtið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar :) bæbæ
Þá er ég loksins búin að setja inn nýjar myndir, ekki alveg búin að standa mig en það hefur verið nóg um að gera hjá okkur í vinnu og skóla og öðru skemmtilegu :)
Endilega kíkið á myndirnar en ýtið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar :)
Þá er kominn nóvember og hann rúmlega hálfnaður meira að segja úfff :) Það hefur verið nóg um að vera hjá okkur hér á Kirkjustétt en pabbinn á heimilinu hefur verið á ferðalögum undanfarið meðan við höfum haft nóg fyrir stafni hér heima. Dagný Björk stendur sig alveg eins og hetja á öllum vísgstöðum, líkt og alltaf, og ekki að sjá að hún hafi nokkurn tímann búið annarstaðar en hér í Grafarholti. Hún á fullt af vinum, sinnir tómstundum af fullu kappi og fékk fyrsta einkunnapjaldið í vikunni og það var vægast sagt frábært. Hún er ótrúlega duglega og flott stelpa :)
Veigar Már blómstrar á Maríuborg og er svooo ánægður með það að vera kominn aftur heim. Hann á fullt af vinum og hefur náð að tengjast bæði starfsmönnun og börnum á leikskólanum ótrúlega vel. Hann er svo sæll með lífið og er farinn að æfa fótbolta með Fram og hefur mjög gaman af.
Annars erum við bara ótrúlega sæl, þrátt fyrir þau áföll sem nú dynja yfir þjóðina. Mitt í hremmingunum fékk frúin á heimilinu vinnu ... og hefur því ákveðið að hægja ögn á framgangi meistaranámsins. Ég starfa nú sem verkefnastjóri hjá Framvegis - miðstöð um símenntun og er það í raun algjör draumur í dós fyrir uppeldis- og menntunarfræðing í meistaranámi í fullorðinsfræðslu :) Mér líst ótrúlega vel á þetta og er að fara til Spánar á sunnudag í viku vinnuferð þar sem ég ætla m.a að kynna mér símenntun á Spáni.
Stefnan er sett á að setja inn myndir þegar ég kem heim ... enginn tími til neins núna en ég er svo bjartsýn að ég ætla mér að halda áfram í MA náminu út önnina og sjá svo til með framhaldið .. en smá pússl :)
Síðustu daga er ég búinn að vera á ferðalagi og er núna staddur í London, að bíða eftir flug til Rhodos. Þar verður viku prógram þar sem við reynum að krækja okkur í nýja viðskiptavini. Það þurfa jú allir að hjálpast að að fá inn gjaldeyri fyrir Davíð guðfaðir okkar allra. Þegar maður er svona einn á ferðalagi er heilmikill tími til að velta hlutum fyrir sér. Ég held ég hafi sökkt mér ofaní alla þessa bankakrísu síðusu daga og kominn með algert ógeð á henni. En niðurstaðan mín var að við erum Argentína norðursins og ekkert betur settari en þeir voru í byrjun þessarar aldar. En nóg með það, ég held ég sé kominn yfir reiðitímabilið og við tekur ... veit ekki alveg. Bíðum þangað til að rykið sest og þá er hægt að sjá hvað við erum búin að skuldsetja börnin og barnabörnin okkar mikið. Mig langaði að skrifa smá puntablogg, því er svo agalega samhengislaus og útum allt :) - áður en ég fór til Pólands þá hafði ég einhverja smá fyrirfram ákveðna ímynd af þeim. Þeir væru soldið mikið sovíet en samt komnir með annan fótinn inní Evrópu. Ég held að það hafi sannast þegar til Póllands kom, en hlutföllin voru kannski ekki eins og ég hélt. - í Varsjá fannst mér fólkið, 3 lödur, strætisvagnarnir, lestarvagnarnir, byggingarnar og minnismerki um stríðsátök vera soldið mikið "sovíet". - það sem var ekki "sovíet" var bílarnir, restaurantarnir og búðirnar. Greinilegt að kapítalisminn er að riðjast yfir markaðinn með öllum sínu "brand" dóti, Carrefour, Zara, H&M, Holmes Place, Intersport McDonalds, Statoil og m.m.m. fleira - afhverju er ekkert til að austan eins og McKommonismi eða McPutin ... allt komið frá kapítalismanum. - Þeir virtust ekki vera í sömu bankakreppu og við Íslendingar, kannski er hún rétt við bæjardyrnar hjá þeim. - Helsta áhyggjuefnið hjá þeim sem voru á skrifstofunni var loftþrýstingurinn og rigningin, það fór eitthvað illa í þau, voru þreytt og sváfu illa. Þeir eru eins og margar aðrar þjóðir mjög uppteknar af veðrinu. - Ég held að þau ættu ekkert að vera að væla yfir veðrinu, í þessari viku var yndislegt haustveður, með örlítilli rigningu, alskýjað og ótrúlega flottum haustlitum í náttúrunni. - Það flottasta við Varsjá var nefnilega haustið. Með alla sína liti alveg meiriháttar. Þetta er eitt af því sem ég sakna við Evrópu, langt og litríkt haust. Ekki eins og á klakanum þar sem haustið gengur yfir á ca 4 tímum. - Þarna var þó hægt að vera úti þó svo að það rigndi, enda rigndi beint niður, þar sem regnhlífar komu að góðum notum. - Loftslagið þarna er mjög svipað og í norður-Þýskalandi þar sem ég var fyrir 13 árum, shit hvað tíminn líður :) - Á litlum bar í miðbænum heyrði ég ótrúlega hluti. Á næst borði við mig voru erlendur hópur að spjalla saman á ensku. Ég heyrði óminn af samtalinu hjá þeim og þeir nefndu "icesave" og "landsbankinn" á nafn. Ég lét lítið fyrir mér fara og hafði engan áhuga að blanda mér í samræðurnar. En venjulega hefði maður hrópað upp yfir sig að maður væri frá Iceland, en ekki í þetta skiptið. Þetta er eitt af þeim fáum mómentum sem ég skammaðist mín fyrrir að vera Íslendingur. - Í miðbænum var hvarvetna verið að sýna gamlar ljósmyndir af síðari heimstyrjöldinni. Varsjá hafði greinilega verið rústir einar eftir áhlaup Þjóðverja, en þeir virtust hafa endurreist borgina algerlega í fyrra horf. - Í morgun lagði ég í'ann til Grikklands, þar sem reynir fyrst almennilega á nýja starfið mitt, "Company Representative" eins og tengdapabbi vildi meina að ég væri. - Ég vaknaði hálf 4 og skellti mér í eitt af mörgum gripaflugunum sem maður hefur lagt í á síðustu og verstu tímum. Þetta Easyjet og Wizzfly eða hvað þetta heitir nú allt saman. Þar er manni staflað í flugvél eins og kjúklingum, í sæti sem eru 10cm of lítil. Á svona stundum hugsar maður fallega til Icelandair, maður fær þó vatn að drekka hjá þeim. - Eins og Pólverjar eru nú auðþekkjanlegir hvar sem maður fer, nær allir eins, kallarnir rakaðir með lítinn og flatann haus og konurnar aflitaðar og með rússneska brosið sitt, þá eru Bretar ekki betri. Saman safn af frekar ófríðu fólki sem talar endalaust hátt og með þennan yndislega hreim. Þetta minnti mig á litlu bresk/hollensku/sænsku vinkonu Dagnýjar Bjarkar, sem sagði með svo skemmtilegum breskum hreim "may I please leave the table" (svaka breskur hreimur) - En mikið er leiðinlegt að ferðast einn og vera einn á hótelherbergi. Maður hefur allan tímann til að hugsa um allt og ekkert og stundum getur það verið alveg meira en nóg af því góða. Sakna besta vinar minns (konunnar) og barnana minna :) - Er maður ekki hættur að lifa þegar maður hættir að læra og takast á við nýjar áskoranir???? ... nei bara smá pæling :) - Það er stundum fínt að kunna Þýsku, var að fatta það. Mjög margar sjónvarpsstöðvar, matseðlar og leiðbeiningar eru á þýsku. Gat nýtt mér það helling. - Facebook er bara snilld. Kemur í staðinn fyrir gömlu góðu þorrablótin, spilavistirnar og jafnvel bara ungmennafélögin ... veit ekki hvort það sé samt góð þróun. Án Facebook væri maður ekki að hitta gamla félaga, sem maður hefur ekki séð í mörg mörg ár og eru búsettir erlendis. - jæja, núna er ég að undirbúa mig undir Grikkland. Veit ekki alveg á hverju ég á von. Kebab, grískt skyr, Aþena með alla söguna (sem ég kann bara ekkert í, guðina og allt þetta:(, skamm) - En ég ætti örugglega að vera kominn á botn væntinganna eftir næsta 4 tíma gripaflug. Eftir það verður allt frábært ... eða ég vona það. Tökum bara síkret á þetta, "þetta verður frábært og allt æðislegt :)" - Á Bretlandi er allt skítugt, svo ég haldi nú áfram að alhæfa. Klístrað og grátt, æi þá eru nú Þjóðverjarnir betri með allt sitt Uber-hreinlæti. - Má bjóða þér Betware penna, Betware stressbolta, nafnspjalið mitt, eitt leikjaplatform með nokkrum leikjum eða kannski bara M&M merkt Betware ... ég á eftir að massa þetta WLA dæmi, alla þessa CEO-a og hvað þeir heita allir. - Hlakka samt mest til að hitta einhverja frá spænska lottóinu og heyra frá þeim hvernig kerfinu okkar vegnar á Spáni. - Verð að koma því að, Sigur Rós er bara snilld, hefur haldið mér kátum alla ferðina, algerir snillingar. - Sigur Rós og Björk er það eina sem fólk í Póllandi veit um Ísland, fyrir utan þá sem eru vinnandi á Íslandi, skilst að það sé 20.000 manns, það er ágætis slatti. Sigur Rós er ótrúlega þekkt band, maður gerir sér ekki alveg grein fyrir því. - Er að glugga í athyglisverða bók þessa dagana, Fiskur heitir hún, um einstaka leið til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur.
Segi þetta gott í bili. Sakna konunnar og barnana minna alltof mikið og vildi helst bara vera hjá þeim á Kirkjustéttinni. En ég þarf að bíða í 7 daga þangað til af því verður :( Vona að einhver lesi þetta sér til hægðarauka (afhverju segir maður "til hægðarauka", skil ekki alveg) Sendið mér línu ef þið eruð að spá eitthvað svipað eða eitthvað allt annað.
Ýtið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna en þar er að finna myndir frá mánuðinum sem var að líða.
Allt gott að frétta af okkur, við erum ótrúlega ánægð að vera komin heim og látum ekki kreppu- og bölsýnistal draga úr ánægjunni :) Börnunum gengur svo vel í bæði skóla og leikskóla og eru mjög kát með lífið og tilveruna eins og alltaf. Dagný Björk er farinn að æfa ballet aftur og hefur áhuginn ekkert minnkað með pásunni, frekar öfugt. Hún er líka farin að æfa handbolta með Fram og finnst það bara nokkuð skemmtilegt, enda nánast allar vinkonurnar saman í þessu. Veigar Már er farinn að æfa fótbolta með vinum sínum og ef marka má fyrstu æfinguna þá líkar honum bara þrusuvel. Hann getur stundum verið svo þveröfugur barnið að það er ekkert hægt að eiga við hann og sannaðist það þegar hann átti að byrja í dansskóla. Það var ekki nokkur leið að draga hann með í það, enda harðákveðinn í að byrja ekkert fyrr en hann væri orðinn 5 ára en þá ætlar hann að dansa breakdans ... flisss. Þannig að dansinn er lagður á hilluna þangað til að hann getur farið að dansa break.
Endilega kíkið á myndirnar, en þar er að finna nýjasta fjölskyldumeðliminn hann Juan Carlos :)
Loksins erum við lent á áfangastað. Allir mjög mjög fegnir að vera komnir aftur heim, á Kirkjustéttina. Dagný er byrjuð í Ingunnarskóla og Veigar fór á Maríuborgina. Þau eru yfir sig ánægð með þetta allt enda mjög vel tekið á mótið þeim. Við settum inn myndir frá seinasta áfanga ferðarinnar, sjá link hérna til hægri "Spánn - Sverige og ferðin heim". Þarna eru myndir frá heimsókninni í Sverige og ferðlaginu til Noregs, með Norrænu og brunið alla leið á suð-vestur hornið.
Þá erum við loks komin til Sverige eftir meiriháttar reisu gegnum Evrópu. Við fengum það staðfest að við eigum bestu og skemmtilegustu börn í heimi :) Set inn ferðasögu seinna en nú ætlum við að njóta þess að vera í dekri í faðmi fjölskyldunnar hér í Stokkhólmi áður en lagt verður af stað heim á leið 11. ágúst.
Eins og áður þarf að ýta á fyrirsögnina til að komast í albúmið, svolítið margar en það var afar erfitt að velja :)
Smellið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar en ég var að enda við að setja inn nýjar myndir. Ótrúlegt hvað maður finnur sér alltaf mikið að gera þegar maður stendur í flutningum og þrifum :)
Var að enda við að setja inn nýjar myndir, sennilega næst síðasta skiptið sem ég set inn Spánarmyndir en nú fer aldeilis að styttast í heimferðina. Það þarf eins og áður að ýta á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar.
Við ætlum að keyra frá Madrid til Barcelona sem verður fyrsta stoppið okkar. Þaðan förum við á frönsku rivieruna og stoppum nokkrar nætur, svo er förinni heitið til Sviss þar sem við stoppum á tveimur stöðum en við ætlum að stoppa lengst við Am bodensee sem er vatn sem hefur landamæri að þremur löndum og við hjónin erum mjög spennt að sjá. Þaðan förum við til Bremen í Þýskalandi en við komum til með að gista hjá vinafólki Harðar í nokkrar nætur. Þaðan verður farið til Billund í Danmörku og svo endum við ferðina hjá fjölskyldu minni í Sverige :) Svo verður brunað til Norge en þar tökum við norrænu og stígum að öllu óbreyttu í land á Seyðisfirði 14. ágúst. 15. ágúst fáum við svo Kirkjustéttina okkar afhenta wíhí ...
En fyrst þurfa börnin að klára skólaárið og frænka mín, Michelle, ætlar að koma frá Svíþjóð 17. júní og vera hjá okkur í smá tíma og halda mér og ungunum félagsskap þegar sumarfrí þeirra hefst.
Æðisleg vika að baki. Foreldrar mínir, amma Klara og afi Bolli, eru búin að vera hjá okkur hér í Madrid og áttum við æðislega daga saman. Börnin fengu að vera í fríi og voru hér heima í góðu yfirlæti. Amma og afi búin að dekra þvílíkt við þau og verður sennilega erfitt að ná ungunum niður eftir þetta. Við fórum með ömmu og afa í dýragarðinn, tókum rúnt í miðbænum og skoðuðum það helsta, fórum út að borða Tapas að hætti Spánverja, spiluðum fótbolta, dönsuðum, spiluðum og nutum þess að vera saman :) Takk æðislega fyrir komuna afi og amma, kunnum svo sannarlega að meta það að fá heimsóknir. Börnin orðin svolítið leið á okkur foreldrunum enda alltaf með okkur og því kærkomið að fá heimsóknir. Okkur Herði fannst líka ekki slæmt að fá pössun eitt kvöldið og nýttum við tækifærið og fórum niður í bæ og leiddumst og tókum hallærislegar sjálfsmyndir á Plaza Mayor.
Afi og amma fóru svo á föstudaginn og þá tók við station Íslendingahelgi ... horfðum á Eurovision hjá hinu ísfólkinu á vegum Betware og fórum svo í dag til Pinto í suður Madrid að horfa á "strákana okkar" spila æfingarleik við Spánverja. Hrikalega mikið stuð og flestir vel raddlausir hér .. Veigar Már orgaði úr sér lungun enda finnst honum allt íslenskt æði.
Nú eru bara 47 dagar í ferð okkar gegnum Evrópu og flestir hér á bæ mjög spenntir. Erum búin að panta hótel og gera ferðaplan og því næst á dagskrá að pakka, senda dótið okkar heim og njóta þess að vera í fríi með börnunum síðustu vikurnar fyrir brottför. Setjum inn myndir í vikunni.
Þá eru bara 4 dagar í það að við förum saman fjölskyldan á Tenerife og er mikil tilhlökkun. Bæði yfir því að hitta Haffa og Boggu en einnig að komast í frí saman fjölskyldan og liggja í leti á ströndinni. Væri ekki verra að fá smá lit á kroppinn en veðurguðarnir hafa ekki verið okkur hliðhollir síðustu vikur en það er nú útlit fyrir það að sumarið sé loks komið til Spánar :) Svo voru amma Klara og afi Bolli að panta ferð til Spánar en þau koma í lok maí. Við hlökkum voðalega mikið til að fá þau og sýna þeim fallegu borgina "okkar". Verður fróðlegt að sjá hvernig afa líður í svona miklum hita en hann er ekki mikill sóldýrkandi fliss ... Við erum samt með loftkælingu þannig að þetta reddast vonandi :) Börnin eru mjög spennt að fá afa og ömmu og erum við búin að panta allavegana eitt kvöld í pössun því hjónin á heimilinu orðin ansi svelt á alone time og því kærkomið að fá ömmu og afa til að dekra við ungana.
Af okkur er allt það sama að frétta, Dagný Björk stendur sig em eindæmum vel í skólanum og var í síðustu viku færð í móðurmálskennslu í Spænsku þar sem hún er er löngu hætt að læra eitthvað í hefðbundinni spænskukennslu. Henni finnst það mjög spennandi og mér skildist á kennararnum að það vekju athygli í skólanum þegar ljóshærði engillinn okkar gengur inn í skólastofuna, enda bara spænsk börn sem hafa setið þessa tíma fram að þessu. Hún er líka farin að lesa Don Quijote í stærðfræðitímum en hún er komin svo langt fram úr samnemendum sínum að ákveðið var að hún fengi að nýta einn stærðfræðitíma í viku í að lesa þessa bók á ensku, löngu útgáfuna. Henni finnst þetta voðalegt sport, að fá að lesa fullorðinsbók sem er ekki myndskreytt !!
Veigar Már er búinn að eignast nýjan vin á leikskólanum sem er á sænsku deildinni. Það var óborganlegt að fylgjast með þeim spila fótbolta í gær á vorhátíðinni. Hann íslenskur, Andreas sænskur en þeir tala saman á spænsku :) Annars er Veigar Már alveg tilbúinn að fara heim og er mjög ánægður með að fara aftur á Maríuborg í haust. Hann er kominn með pláss á besta leikskóla í heimi (að okkar mati) og vonum við nú að hann fari á sömu deild og vinir hans af Þúfu. Þegar ég sótti Veigar Má í gær var ég spurð hvaðan barnið hefði þessa þrjósku fliss en kennarinn hans segist sjaldan hafa séð annað eins hjá svona ungu barni. Við tökum undir það hér foreldranir en ef hann er búinn að ákveða eitthvað þá verður honum ekki haggað :)Honum liggur líka mjög svo á að verða stór eins og systa og finnst ekki skemmtilegt að geta ekki gert allt eins og hún. Hann liggur því yfir bókstöfunum núna og systir hans er dugleg að búa til stafaleiki þegar við keyrum í skólann en við eyðum drjúgum hluta af deginum í Volvoinum í og úr skóla.
Annars erum við komin í smá flutningarhugleiðingar, farin að íhuga hvað við ætlum að taka með okkur heim, hvað þarf að kaupa þegar við komum heim og svo framvegis. Umfram allt hlakkar okkur rosalega til að koma heim og hitta fólkið okkar aftur. Mikið verður nú gott að bruna á Bakkastaði í sunnudagskaffi í ágúst weeeiiii og hitta frændsystkini okkar aftur og leika saman !!! ´Ég hlakka voðalega til að fara heim og demba mér í að klára mastersnámið mitt og hitta fólk en þetta á ekki alveg nógu vel við mig að vera ein heima alla daga.
Ragnheiður mágkona er svo búin að lofa að bjóða okkur oft í mat og passa fullt þegar við komum heim. Vildi bara setja það hér á veraldarvefinn ef hún skyldi ákveða að guggna á þessu loforði sínu :)
Nóg að gera hjá okkur eins og alltaf eins og sést á þeim myndum sem ég var að setja inn. Þetta eru myndir frá mars og apríl en við fengum góða gesti og erum búin að bralla fullt saman.
Ýtið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar.
Við erum Hörður, Ragga, Dagný Björk og Veigar Már. Skrifaðu endilega í gestabókina okkar eða sendu okkur email.
ragnhildurberta@ hotmail.com og hordurb@gmail.com