25.4.08
Gleðilegt sumar
Þá eru bara 4 dagar í það að við förum saman fjölskyldan á Tenerife og er mikil tilhlökkun. Bæði yfir því að hitta Haffa og Boggu en einnig að komast í frí saman fjölskyldan og liggja í leti á ströndinni. Væri ekki verra að fá smá lit á kroppinn en veðurguðarnir hafa ekki verið okkur hliðhollir síðustu vikur en það er nú útlit fyrir það að sumarið sé loks komið til Spánar :) Svo voru amma Klara og afi Bolli að panta ferð til Spánar en þau koma í lok maí. Við hlökkum voðalega mikið til að fá þau og sýna þeim fallegu borgina "okkar". Verður fróðlegt að sjá hvernig afa líður í svona miklum hita en hann er ekki mikill sóldýrkandi fliss ... Við erum samt með loftkælingu þannig að þetta reddast vonandi :) Börnin eru mjög spennt að fá afa og ömmu og erum við búin að panta allavegana eitt kvöld í pössun því hjónin á heimilinu orðin ansi svelt á alone time og því kærkomið að fá ömmu og afa til að dekra við ungana.

Af okkur er allt það sama að frétta, Dagný Björk stendur sig em eindæmum vel í skólanum og var í síðustu viku færð í móðurmálskennslu í Spænsku þar sem hún er er löngu hætt að læra eitthvað í hefðbundinni spænskukennslu. Henni finnst það mjög spennandi og mér skildist á kennararnum að það vekju athygli í skólanum þegar ljóshærði engillinn okkar gengur inn í skólastofuna, enda bara spænsk börn sem hafa setið þessa tíma fram að þessu. Hún er líka farin að lesa Don Quijote í stærðfræðitímum en hún er komin svo langt fram úr samnemendum sínum að ákveðið var að hún fengi að nýta einn stærðfræðitíma í viku í að lesa þessa bók á ensku, löngu útgáfuna. Henni finnst þetta voðalegt sport, að fá að lesa fullorðinsbók sem er ekki myndskreytt !!

Veigar Már er búinn að eignast nýjan vin á leikskólanum sem er á sænsku deildinni. Það var óborganlegt að fylgjast með þeim spila fótbolta í gær á vorhátíðinni. Hann íslenskur, Andreas sænskur en þeir tala saman á spænsku :) Annars er Veigar Már alveg tilbúinn að fara heim og er mjög ánægður með að fara aftur á Maríuborg í haust. Hann er kominn með pláss á besta leikskóla í heimi (að okkar mati) og vonum við nú að hann fari á sömu deild og vinir hans af Þúfu. Þegar ég sótti Veigar Má í gær var ég spurð hvaðan barnið hefði þessa þrjósku fliss en kennarinn hans segist sjaldan hafa séð annað eins hjá svona ungu barni. Við tökum undir það hér foreldranir en ef hann er búinn að ákveða eitthvað þá verður honum ekki haggað :)Honum liggur líka mjög svo á að verða stór eins og systa og finnst ekki skemmtilegt að geta ekki gert allt eins og hún. Hann liggur því yfir bókstöfunum núna og systir hans er dugleg að búa til stafaleiki þegar við keyrum í skólann en við eyðum drjúgum hluta af deginum í Volvoinum í og úr skóla.

Annars erum við komin í smá flutningarhugleiðingar, farin að íhuga hvað við ætlum að taka með okkur heim, hvað þarf að kaupa þegar við komum heim og svo framvegis. Umfram allt hlakkar okkur rosalega til að koma heim og hitta fólkið okkar aftur. Mikið verður nú gott að bruna á Bakkastaði í sunnudagskaffi í ágúst weeeiiii og hitta frændsystkini okkar aftur og leika saman !!! ´Ég hlakka voðalega til að fara heim og demba mér í að klára mastersnámið mitt og hitta fólk en þetta á ekki alveg nógu vel við mig að vera ein heima alla daga.

Ragnheiður mágkona er svo búin að lofa að bjóða okkur oft í mat og passa fullt þegar við komum heim. Vildi bara setja það hér á veraldarvefinn ef hún skyldi ákveða að guggna á þessu loforði sínu :)
posted by Hörður @ 25.4.08  
3 Comments:
  • At 25. apríl 2008 11:19, Blogger ragnheiður said…

    nei nei ég guggna ekki á því Ragga mín! trúðu mér.. þau meiga koma alltaf þegar ég er ekki að djamma:d
    hehe

    já það er eitthvað í blóðinu hjá okkur að vera þjóskur.. þær eru alltaf að segja það á leikskólanum við mig hvað Hilmar sé þrjóskur.. og ég þykist bara vita hvaðan hann hefur þetta;)

     
  • At 3. maí 2008 23:18, Anonymous christina said…

    Það er svo gaman að lesa og fylgjast með ykkur á Spáni.... Váa hvað það styttist í að þið komið heim. Árið búið að fljúga og ég enn á náttsloppinu að sötra eitthvað fljótandi.. he he en ég verð nú vonandi komin úr honum þegar þið komið.
    Góða ferð til Tenerife og passaðu þig nú Ragga mín að brenna ekki. Sólin er svo ótrúlega lúmsk þar, en maður finnur ekki fyrir því út af hafgolunni. Hlökkum til að sjá myndir.
    Knús,
    Christina og drengirnir 3.

     
  • At 3. maí 2008 23:20, Anonymous Christina said…

    Djók,
    Var að sjá að þið eruð löngu farin til Tenerife. Er með svolítil seinan fattara.. Held að það sé út af því að það er búið að krukka svo mikið í mér. Var að koma úr aðgerð...
    Luv,
    cg

     
Sendu inn athugasemd
<< Home
 
 
Við erum Hörður, Ragga, Dagný Björk og Veigar Már. Skrifaðu endilega í gestabókina okkar eða sendu okkur email. ragnhildurberta@
hotmail.com og hordurb@gmail.com
Flottar síður
Myndir

Hitt og þetta
Síðustu Blogg
Gamalt Blogg
Template by

Free Blogger Templates

BLOGGER