| 25.5.08 |
| Áfram Ísland |
Æðisleg vika að baki. Foreldrar mínir, amma Klara og afi Bolli, eru búin að vera hjá okkur hér í Madrid og áttum við æðislega daga saman. Börnin fengu að vera í fríi og voru hér heima í góðu yfirlæti. Amma og afi búin að dekra þvílíkt við þau og verður sennilega erfitt að ná ungunum niður eftir þetta. Við fórum með ömmu og afa í dýragarðinn, tókum rúnt í miðbænum og skoðuðum það helsta, fórum út að borða Tapas að hætti Spánverja, spiluðum fótbolta, dönsuðum, spiluðum og nutum þess að vera saman :) Takk æðislega fyrir komuna afi og amma, kunnum svo sannarlega að meta það að fá heimsóknir. Börnin orðin svolítið leið á okkur foreldrunum enda alltaf með okkur og því kærkomið að fá heimsóknir. Okkur Herði fannst líka ekki slæmt að fá pössun eitt kvöldið og nýttum við tækifærið og fórum niður í bæ og leiddumst og tókum hallærislegar sjálfsmyndir á Plaza Mayor.
Afi og amma fóru svo á föstudaginn og þá tók við station Íslendingahelgi ... horfðum á Eurovision hjá hinu ísfólkinu á vegum Betware og fórum svo í dag til Pinto í suður Madrid að horfa á "strákana okkar" spila æfingarleik við Spánverja. Hrikalega mikið stuð og flestir vel raddlausir hér .. Veigar Már orgaði úr sér lungun enda finnst honum allt íslenskt æði.
Nú eru bara 47 dagar í ferð okkar gegnum Evrópu og flestir hér á bæ mjög spenntir. Erum búin að panta hótel og gera ferðaplan og því næst á dagskrá að pakka, senda dótið okkar heim og njóta þess að vera í fríi með börnunum síðustu vikurnar fyrir brottför. Setjum inn myndir í vikunni. |
posted by Hörður @ 25.5.08   |
|
| 1 Comments: |
-
Hæ elskan,
Gaman að heyra :) Er ferðaplanið kanski komið inn í excel?? Það styttist óðum í heimkomu ykkar, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða... Hlakka til að sjá nýjar myndir, við förum svo að henda inn nýjum myndum. Knús á línuna, Cg
|
| |
| << Home |
| |
|
|
Hæ elskan,
Gaman að heyra :)
Er ferðaplanið kanski komið inn í excel??
Það styttist óðum í heimkomu ykkar, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða...
Hlakka til að sjá nýjar myndir, við förum svo að henda inn nýjum myndum.
Knús á línuna,
Cg