Var að enda við að setja inn nýjar myndir, sennilega næst síðasta skiptið sem ég set inn Spánarmyndir en nú fer aldeilis að styttast í heimferðina. Það þarf eins og áður að ýta á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna okkar.
Við ætlum að keyra frá Madrid til Barcelona sem verður fyrsta stoppið okkar. Þaðan förum við á frönsku rivieruna og stoppum nokkrar nætur, svo er förinni heitið til Sviss þar sem við stoppum á tveimur stöðum en við ætlum að stoppa lengst við Am bodensee sem er vatn sem hefur landamæri að þremur löndum og við hjónin erum mjög spennt að sjá. Þaðan förum við til Bremen í Þýskalandi en við komum til með að gista hjá vinafólki Harðar í nokkrar nætur. Þaðan verður farið til Billund í Danmörku og svo endum við ferðina hjá fjölskyldu minni í Sverige :) Svo verður brunað til Norge en þar tökum við norrænu og stígum að öllu óbreyttu í land á Seyðisfirði 14. ágúst. 15. ágúst fáum við svo Kirkjustéttina okkar afhenta wíhí ...
En fyrst þurfa börnin að klára skólaárið og frænka mín, Michelle, ætlar að koma frá Svíþjóð 17. júní og vera hjá okkur í smá tíma og halda mér og ungunum félagsskap þegar sumarfrí þeirra hefst.
Hæ sæta fjölskylda! Myndirnar eru algjört æði og ég segi bara góða ferð í Evrópuferðalaginu - öfunda ykkur heilmikið!! Alveg yndislegt á frönsku ríverunni og Bodense er algjört heaven. Á yndislegar æskuminningar frá báðum þessum stöðum svo ég efast ekki um að ferðin ykkar verði ekta yndisleg fjölskylduferð!!
Æðislegar myndirnar og alltaf gaman að lesa hvað þið eruð að taka ykkur fyrir hendur. Góða ferð í Evrópureisuna og skemmtið ykkur æðislega vel saman fjölskyldan. Það styttist alltaf í að þið verðið komin aftur á Kirkjustéttina góðu.
Hörður flottur á baksíðunni á blaðinu um daginn :o)
Bestu kveðjur til ykkar kæru vinir Laufey og family á Grettis
Við erum Hörður, Ragga, Dagný Björk og Veigar Már. Skrifaðu endilega í gestabókina okkar eða sendu okkur email.
ragnhildurberta@ hotmail.com og hordurb@gmail.com
Hæ sæta fjölskylda! Myndirnar eru algjört æði og ég segi bara góða ferð í Evrópuferðalaginu - öfunda ykkur heilmikið!! Alveg yndislegt á frönsku ríverunni og Bodense er algjört heaven. Á yndislegar æskuminningar frá báðum þessum stöðum svo ég efast ekki um að ferðin ykkar verði ekta yndisleg fjölskylduferð!!
Bestu kveðjur frá Íslandi
Eva Harðar