21.10.08
Bloggað frá Póllandi og London
Hæ, hæ

Síðustu daga er ég búinn að vera á ferðalagi og er núna staddur í London, að bíða eftir flug til Rhodos. Þar verður viku prógram þar sem við reynum að krækja okkur í nýja viðskiptavini. Það þurfa jú allir að hjálpast að að fá inn gjaldeyri fyrir Davíð guðfaðir okkar allra.
Þegar maður er svona einn á ferðalagi er heilmikill tími til að velta hlutum fyrir sér. Ég held ég hafi sökkt mér ofaní alla þessa bankakrísu síðusu daga og kominn með algert ógeð á henni. En niðurstaðan mín var að við erum Argentína norðursins og ekkert betur settari en þeir voru í byrjun þessarar aldar. En nóg með það, ég held ég sé kominn yfir reiðitímabilið og við tekur ... veit ekki alveg. Bíðum þangað til að rykið sest og þá er hægt að sjá hvað við erum búin að skuldsetja börnin og barnabörnin okkar mikið.
Mig langaði að skrifa smá puntablogg, því er svo agalega samhengislaus og útum allt :)
- áður en ég fór til Pólands þá hafði ég einhverja smá fyrirfram ákveðna ímynd af þeim. Þeir væru soldið mikið sovíet en samt komnir með annan fótinn inní Evrópu. Ég held að það hafi sannast þegar til Póllands kom, en hlutföllin voru kannski ekki eins og ég hélt.
- í Varsjá fannst mér fólkið, 3 lödur, strætisvagnarnir, lestarvagnarnir, byggingarnar og minnismerki um stríðsátök vera soldið mikið "sovíet".
- það sem var ekki "sovíet" var bílarnir, restaurantarnir og búðirnar. Greinilegt að kapítalisminn er að riðjast yfir markaðinn með öllum sínu "brand" dóti, Carrefour, Zara, H&M, Holmes Place, Intersport McDonalds, Statoil og m.m.m. fleira
- afhverju er ekkert til að austan eins og McKommonismi eða McPutin ... allt komið frá kapítalismanum.
- Þeir virtust ekki vera í sömu bankakreppu og við Íslendingar, kannski er hún rétt við bæjardyrnar hjá þeim.
- Helsta áhyggjuefnið hjá þeim sem voru á skrifstofunni var loftþrýstingurinn og rigningin, það fór eitthvað illa í þau, voru þreytt og sváfu illa. Þeir eru eins og margar aðrar þjóðir mjög uppteknar af veðrinu.
- Ég held að þau ættu ekkert að vera að væla yfir veðrinu, í þessari viku var yndislegt haustveður, með örlítilli rigningu, alskýjað og ótrúlega flottum haustlitum í náttúrunni.
- Það flottasta við Varsjá var nefnilega haustið. Með alla sína liti alveg meiriháttar. Þetta er eitt af því sem ég sakna við Evrópu, langt og litríkt haust. Ekki eins og á klakanum þar sem haustið gengur yfir á ca 4 tímum.
- Þarna var þó hægt að vera úti þó svo að það rigndi, enda rigndi beint niður, þar sem regnhlífar komu að góðum notum.
- Loftslagið þarna er mjög svipað og í norður-Þýskalandi þar sem ég var fyrir 13 árum, shit hvað tíminn líður :)
- Á litlum bar í miðbænum heyrði ég ótrúlega hluti. Á næst borði við mig voru erlendur hópur að spjalla saman á ensku. Ég heyrði óminn af samtalinu hjá þeim og þeir nefndu "icesave" og "landsbankinn" á nafn. Ég lét lítið fyrir mér fara og hafði engan áhuga að blanda mér í samræðurnar. En venjulega hefði maður hrópað upp yfir sig að maður væri frá Iceland, en ekki í þetta skiptið. Þetta er eitt af þeim fáum mómentum sem ég skammaðist mín fyrrir að vera Íslendingur.
- Í miðbænum var hvarvetna verið að sýna gamlar ljósmyndir af síðari heimstyrjöldinni. Varsjá hafði greinilega verið rústir einar eftir áhlaup Þjóðverja, en þeir virtust hafa endurreist borgina algerlega í fyrra horf.
- Í morgun lagði ég í'ann til Grikklands, þar sem reynir fyrst almennilega á nýja starfið mitt, "Company Representative" eins og tengdapabbi vildi meina að ég væri.
- Ég vaknaði hálf 4 og skellti mér í eitt af mörgum gripaflugunum sem maður hefur lagt í á síðustu og verstu tímum. Þetta Easyjet og Wizzfly eða hvað þetta heitir nú allt saman. Þar er manni staflað í flugvél eins og kjúklingum, í sæti sem eru 10cm of lítil. Á svona stundum hugsar maður fallega til Icelandair, maður fær þó vatn að drekka hjá þeim.
- Eins og Pólverjar eru nú auðþekkjanlegir hvar sem maður fer, nær allir eins, kallarnir rakaðir með lítinn og flatann haus og konurnar aflitaðar og með rússneska brosið sitt, þá eru Bretar ekki betri. Saman safn af frekar ófríðu fólki sem talar endalaust hátt og með þennan yndislega hreim. Þetta minnti mig á litlu bresk/hollensku/sænsku vinkonu Dagnýjar Bjarkar, sem sagði með svo skemmtilegum breskum hreim "may I please leave the table" (svaka breskur hreimur)
- En mikið er leiðinlegt að ferðast einn og vera einn á hótelherbergi. Maður hefur allan tímann til að hugsa um allt og ekkert og stundum getur það verið alveg meira en nóg af því góða. Sakna besta vinar minns (konunnar) og barnana minna :)
- Er maður ekki hættur að lifa þegar maður hættir að læra og takast á við nýjar áskoranir???? ... nei bara smá pæling :)
- Það er stundum fínt að kunna Þýsku, var að fatta það. Mjög margar sjónvarpsstöðvar, matseðlar og leiðbeiningar eru á þýsku. Gat nýtt mér það helling.
- Facebook er bara snilld. Kemur í staðinn fyrir gömlu góðu þorrablótin, spilavistirnar og jafnvel bara ungmennafélögin ... veit ekki hvort það sé samt góð þróun. Án Facebook væri maður ekki að hitta gamla félaga, sem maður hefur ekki séð í mörg mörg ár og eru búsettir erlendis.
- jæja, núna er ég að undirbúa mig undir Grikkland. Veit ekki alveg á hverju ég á von. Kebab, grískt skyr, Aþena með alla söguna (sem ég kann bara ekkert í, guðina og allt þetta:(, skamm)
- En ég ætti örugglega að vera kominn á botn væntinganna eftir næsta 4 tíma gripaflug. Eftir það verður allt frábært ... eða ég vona það. Tökum bara síkret á þetta, "þetta verður frábært og allt æðislegt :)"
- Á Bretlandi er allt skítugt, svo ég haldi nú áfram að alhæfa. Klístrað og grátt, æi þá eru nú Þjóðverjarnir betri með allt sitt Uber-hreinlæti.
- Má bjóða þér Betware penna, Betware stressbolta, nafnspjalið mitt, eitt leikjaplatform með nokkrum leikjum eða kannski bara M&M merkt Betware ... ég á eftir að massa þetta WLA dæmi, alla þessa CEO-a og hvað þeir heita allir.
- Hlakka samt mest til að hitta einhverja frá spænska lottóinu og heyra frá þeim hvernig kerfinu okkar vegnar á Spáni.
- Verð að koma því að, Sigur Rós er bara snilld, hefur haldið mér kátum alla ferðina, algerir snillingar.
- Sigur Rós og Björk er það eina sem fólk í Póllandi veit um Ísland, fyrir utan þá sem eru vinnandi á Íslandi, skilst að það sé 20.000 manns, það er ágætis slatti. Sigur Rós er ótrúlega þekkt band, maður gerir sér ekki alveg grein fyrir því.
- Er að glugga í athyglisverða bók þessa dagana, Fiskur heitir hún, um einstaka leið til að auka vinnugleði og bæta starfsárangur.

Segi þetta gott í bili.
Sakna konunnar og barnana minna alltof mikið og vildi helst bara vera hjá þeim á Kirkjustéttinni.
En ég þarf að bíða í 7 daga þangað til af því verður :(
Vona að einhver lesi þetta sér til hægðarauka (afhverju segir maður "til hægðarauka", skil ekki alveg)
Sendið mér línu ef þið eruð að spá eitthvað svipað eða eitthvað allt annað.

kveðja
Hörður
posted by Hörður @ 21.10.08  
4 Comments:
  • At 26. október 2008 04:27, Blogger lkristin said…

    Sæll Hörður
    Ég er sammála með Varsjá, hún kom mér mikið á óvart (það sem ég sá af henni). Gamli miðbærinn er mjög flottur og kósí. Er líka á sama máli með Sigurrós, miklir snillingar þar á ferð. Voru tónleikar með þeim hérna um daginn. Löngu uppselt en hefði getað fengið miða á "gráa markaðnum" á mörg hundruð dollara.
    Gangi þér vel á Rhodos.
    Kveðjur til familyunnar frá okkur í Seattle.
    Auf wiedersiehn (öruuglega ekki rétt skrifað)

    P.s. Hvernig komið þið BETWARE fyrir á einu M&M-???

     
  • At 26. október 2008 04:27, Blogger lkristin said…

    Þetta var semsagt Indriði sem skrifaði þetta, ekki lkristin.

     
  • At 26. október 2008 20:03, Blogger Hörður said…

    hæ, gaman að heyra að einhver les þetta:) Þegar maður setur svona á blað þá er annaðhvort að setja það á bloggið eða senda sjálfum sér email, kýs frekar að setja þetta á public dagbókina okkar.
    Jú, það er allt hægt í Ameríku, lógo, texti, myndir, allt sett á M&M, alveg brilliant. Þetta vakti gríðarlega lukku, ásamt ant-stress boltunum, veit ekki hvort að það seldi kerfið okkur, en allavega kom fólk á básinn okkar. Fyrsta spurning var alltaf "hvað gerið þið" og svo næsta var "er ekki allt á hausnum á Íslandi".
    Bið að heilsa til US and A

     
  • At 26. október 2008 20:03, Blogger Hörður said…

    hæ, gaman að heyra að einhver les þetta:) Þegar maður setur svona á blað þá er annaðhvort að setja það á bloggið eða senda sjálfum sér email, kýs frekar að setja þetta á public dagbókina okkar.
    Jú, það er allt hægt í Ameríku, lógo, texti, myndir, allt sett á M&M, alveg brilliant. Þetta vakti gríðarlega lukku, ásamt ant-stress boltunum, veit ekki hvort að það seldi kerfið okkur, en allavega kom fólk á básinn okkar. Fyrsta spurning var alltaf "hvað gerið þið" og svo næsta var "er ekki allt á hausnum á Íslandi".
    Bið að heilsa til US and A

     
Sendu inn athugasemd
<< Home
 
 
Við erum Hörður, Ragga, Dagný Björk og Veigar Már. Skrifaðu endilega í gestabókina okkar eða sendu okkur email. ragnhildurberta@
hotmail.com og hordurb@gmail.com
Flottar síður
Myndir

Hitt og þetta
Síðustu Blogg
Gamalt Blogg
Template by

Free Blogger Templates

BLOGGER