Ýtið á fyrirsögnina til að komast á myndasíðuna en þar er að finna myndir frá mánuðinum sem var að líða.
Allt gott að frétta af okkur, við erum ótrúlega ánægð að vera komin heim og látum ekki kreppu- og bölsýnistal draga úr ánægjunni :) Börnunum gengur svo vel í bæði skóla og leikskóla og eru mjög kát með lífið og tilveruna eins og alltaf. Dagný Björk er farinn að æfa ballet aftur og hefur áhuginn ekkert minnkað með pásunni, frekar öfugt. Hún er líka farin að æfa handbolta með Fram og finnst það bara nokkuð skemmtilegt, enda nánast allar vinkonurnar saman í þessu. Veigar Már er farinn að æfa fótbolta með vinum sínum og ef marka má fyrstu æfinguna þá líkar honum bara þrusuvel. Hann getur stundum verið svo þveröfugur barnið að það er ekkert hægt að eiga við hann og sannaðist það þegar hann átti að byrja í dansskóla. Það var ekki nokkur leið að draga hann með í það, enda harðákveðinn í að byrja ekkert fyrr en hann væri orðinn 5 ára en þá ætlar hann að dansa breakdans ... flisss. Þannig að dansinn er lagður á hilluna þangað til að hann getur farið að dansa break.
Endilega kíkið á myndirnar, en þar er að finna nýjasta fjölskyldumeðliminn hann Juan Carlos :)
hæ elsku frænka og frændi :D takk æðislega fyrir frábærlega skemmtilega næturgistingu. það var rosa gaman hjá okkur og juan carlos er ekkert smá mikið krútt. æðislegar nýju myndirnar. hlökkum til að sjá ykkur mjög fljótt aftur knús og kossar agla bríet & andri snær
Við erum Hörður, Ragga, Dagný Björk og Veigar Már. Skrifaðu endilega í gestabókina okkar eða sendu okkur email.
ragnhildurberta@ hotmail.com og hordurb@gmail.com
hæ elsku frænka og frændi :D takk æðislega fyrir frábærlega skemmtilega næturgistingu. það var rosa gaman hjá okkur og juan carlos er ekkert smá mikið krútt. æðislegar nýju myndirnar. hlökkum til að sjá ykkur mjög fljótt aftur knús og kossar agla bríet & andri snær