Golf.is vefur golfarans
Evróputúrinn
Heimasida Titleist
16.7.05
Mótinu lokið á Ítalíu - Birgir Leifur í 40. til 44. sæti
Birgir Leifur lék á 73 höggum í dag eða einu höggi yfir pari og var því samtals á 5 höggum undir pari í mótinu. Á hringnum í dag var hann með 3 fugla, tvo skolla og einn skramba. Sigurvegari mótsins var Fredrik Widmark frá Svíþjóð á 19 höggum undir pari.

[Lokastaðan]
[Skorkortið]



15.7.05
Tveir ernir í dag og Birgir klífur upp listann
Birgir lék vel í dag og var á þremur höggum undir pari. Hann var með 2 erni, 3 fugla, 1 skramba og 1 skolla. Birgir náði heldur betur að hefna sín á 5. holunni þar sem hann fékk þrefaldan skolla í gær en örn í dag. Hann er samtals á 6 höggum undir pari í 22. til 23. sæti eftir þrjá daga. Michael Hoey frá Norður Írlandi er í fyrsta sæti á 14 höggum undir pari.

[Staðan]
[Skorkortið]



Tveir ernir í dag og Birgir klífur upp listann
Birgir lék vel í dag og var á þremur höggum undir pari. Hann var með 2 erni, 3 fugla, 1 skramba og 1 skolla. Birgir náði heldur betur að hefna sín á 5. holunni þar sem hann fékk þrefaldan skolla í gær en örn í dag. Hann er samtals á 6 höggum undir pari í 22. til 23. sæti eftir þrjá daga. Michael Hoey frá Norður Írlandi er í fyrsta sæti á 14 höggum undir pari.

[Staðan]
[Skorkortið]



14.7.05
Birgir í góðum málum á Ítalíu
Birgir lenti í vandræðum á fimmtu holu í dag og lék hana á þremur yfir pari og var á þremur yfir eftir níu holur. Þá ákvað hann að bíta í skjaldarrendur og lék stórkostlegt sóknargolf á seinni níu holunum í dag. Hann fékk hvorki fleiri né færri en 6 fugla og skilaði sér í hús á tveimur undir pari. Sannarlega glæsileg endurkoma. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari eftir tvo daga en hann lék öruggt og gott golf í gær á einu höggi undir pari.

Fjölmargir kylfingar eiga enn eftir að fara út og óvíst í hvaða sæti Birgir verður en hann er sem stendur í 30. til 40. sæti og öruggur um að komast í gegnum niðurskurðinn eftir daginn í dag.

[Staðan]
[Skorkortið]



10.7.05
Mótinu lokið í Frakklandi - Birgir í 5.-9. sæti!
Birgir Leifur var rétt að ljúka leik á síðasta hring á Open des Volcans mótinu í Frakklandi. Hann lék gríðarlega stöðugt og gott golf í dag á tveimur undir pari og því samtals 7 undir pari í heildina. Hann endaði í 5. til 9 sæti og fyrir það ætti að gefast um 400.000 krónur í verðlaunafé. Ilya Goronenskoul frá Frakklandi sigraði á mótinu á 13 höggum undir pari.

Þetta er glæsilegur árangur hjá Birgi og gefur góð fyrirheit um komandi átök á áskorendamótaröðinni. Hann var að leika gríðarvel í þessu móti og var í efsta sæti eftir fyrsta hringinn sem var draumahringur fimm undir pari. Í mótinu var hann alls með einn örn, 18 fugla, 41 par, 11 skolla og einn skramba.

Næsta mót sem Birgir tekur þátt í hefst næstkomandi miðvikudag 13. júlí og er haldið á Garda á Ítalíu, en staðurinn þykir einn af þeim allra fegurstu í heiminum.

[Staðan]
[Skorkortið]



9.7.05
Birgir í 6. til 10. sæti á fimm undir pari
Birgir lék mjög vel í dag og var á tveimur undir pari vallarins. Hann er því samtals á 5 höggum undir pari. Nicolas Joakimides frá Frakklandi leiðir mótið á 11 höggum undir pari.

[Staðan]
[Skorkortið]



8.7.05
Birgir er í 11. til 18. sæti
Birgir Leifur lék á 73 höggum í dag eða á tveimur yfir pari vallarins. Hann var með 4 fugla, 4 skolla og einn skramba. Í fyrsta sæti er Nicolas Joakimides frá Frakklandi á 8 höggum undir pari.

[Skorkortið]
[Staðan]



7.7.05
Birgir Leifur í fyrsta sæti í Frakklandi!
Birgir lék frábærlega vel fyrsta hringinn á eldfjallamótinu í Frakklandi (Open des Volcans) sem hófst í dag, en mótið er liður í áskorendamótaröð evrópumótaraðarinnar. Hann lék á hvorki fleiri né færri höggum en 5 undir pari og er einn í efsta sæti. Næstur á eftir honum eru þeir Miguel Carballo frá Argentínu og Johan Edfors frá Svíþjóð á fjórum undir pari.

Á hringnum fékk hann einn örn, fimm fugla og tvo skolla. Í viðtali við fréttavefinn sagði hann púttin hafa gengið mjög vel en hann hefur verið að vinna hvað mest í þeim upp á síðkastið. Einnig sagðist hann óðum vera að jafna sig af álagsmeiðslum á hálsi sem hann hefur verið að glíma við síðastliðnar vikur. Vegna þeirra hefur hann lítið getað æft en hvíldin hefur engu að síður gert honum gott. Það er vonandi að okkar maður láti kné fylgja kviði og haldi forystunni til loka.

[Stigataflan]



19.6.05
Mótinu lokið í Frakklandi - Birgir í 49. til 53. sæti.
Birgir lék ekki vel á lokadegi St. Omer mótsins í Frakklandi. Hann lék á 77 höggum eða 6 yfir pari. Hann lenti í vandræðum á sjöundu holu þar sem að hann fékk þrefaldan skolla. Á hringnum fékk hann einnig einn fugl, 12 pör og fjóra skolla.

Joakim Bäckstrom frá Svíþjóð varð í fyrsta sæti á fjórum höggum undir pari eftir bráðabana við Paul Dwyer frá Englandi.

[Lokastaðan]



18.6.05
Birgir á tveimur undir í dag
Birgir lék mjög vel í dag á þriðja degi sankti Ómars mótsins í Frakklandi. Hann lék á 69 höggum eða á tveimur undir pari vallarins. Með árangrinum skaut hann sér upp í 11. til 12. sæti. aðeins þremur höggum frá efstu mönnum. Hann er því samtals á tveimur höggum undir pari eftir þrjá daga og spennan orðin óbærileg fyrir lokadaginn.

Það væri einkar öflugt fyrir Birgi Leif ef hann næði að lenda í einu af efstu 10 sætunum í mótinu því tíunda sætið gefur um 650.000 krónur í verðlaunafé og efsta sætið svo mikið sem á sjöttu milljón króna!

[Stigataflan]



17.6.05
Birgir Leifur á parinu eftir fyrstu tvo dagana í Frakklandi
Birgir lenti í örlitlum erfiðleikum á fyrri níu holunum í dag. Hann hóf leik á 10. holu og var fimm höggum yfir pari eftir fyrstu níu holurnar en náði að bíta í skjaldarrendurnar á seinni níu og lék þær öruggt á tveimur undir og endaði því þrjá yfir í heildina.

Eftir tvo daga er hann á parinu í 21. til 35. sæti en um helmingur keppenda á enn eftir að skila sér í hús. Hann er öruggur áfram vegna frábærs árangur í gær og eru æsispennandi lokadagar framundan í mótinu.

[Staðan]
[Skorkortið]



16.6.05
Birgir Leifur í efsta sæti í Frakklandi
Birgir lék mjög vel á fyrsta degi opna sankti Ómars mótinu í Frakklandi. Hann lék á 68 höggum eða þremur höggum undir pari og er hann í 1. til 7. sæti af 155 keppendum. Á hringnum var hann með 5 fugla og tvo skolla.

Mótið er bæði hluti af Evrópumótaröðinni og Áskorendamótaröðinni og er þar með eitt sterkasta mót ársins á Áskorendamótaröðinni.

Birgir Leifur sagði að aðstæður væru nokkuð erfiðar sökum vinds og völlurinn væri mjög sérstakur að því leyti að hæðarmunur væri mikill á mörgum brautanna. Hann sagði að ,,mikið landslag" væri bæði á brautum sem og flötunum og gaman væri að kljást við þennan völl. Hann sagði að það hefði oft reynst erfitt að velja kylfur vegna hæðarmismunarins en allt hafi þó gengið að óskum bæði í lengra spilinu sem og því stutta. Ennfremur sagði hann að síðasta mót í vindasömu Danmörku hefði verið góður skóli og væri hann búinn að æfa púttin grimmt síðan þá sem væri að skila sér í þessu móti.

[Staðan]
[Skorkortið]



12.6.05
Thomas Björn mótinu lokið
Birgir Leifur lék sinn besta hring í dag á tveimur yfir pari og hífði sig upp um 10 sæti frá því í gær. Hann var samtals á 14 höggum yfir pari í mótinu, í 31. til 36. sæti, sem verður að teljast ágætt miðað við aðstæður. Kylfingar í mótinu voru mjög glaðir að koma í hús í dag eftir eitt erfiðasta mót sem þeir hafa tekið þátt í.

Birgir sagðist vera ánægður með marga hluti, sérstaklega í sveiflunni sem er á réttu róli m.t.t. tæknilegra þátta. Hann var feginn í leikslok og sagðist ætla að eyða kvöldinu undir sæng með rjúkandi heitan kakóbolla og fara yfir hvaða þætti hann ætli að vinna helst í fyrir næsta mót.

Toni Karjalainen frá Finnlandi náði að halda forystunni til enda en hann lék á fjórum höggum yfir pari í dag og samtals á fjórum yfir í mótinu.

[Lokastaðan]



11.6.05
Ekkert lát á veðurhamnum í Danmörku
Birgir lék prýðilega miðað við aðstæður í dag og endaði á fjórum höggum yfir pari. Hann var með einn fugl, tvo skolla og einn tvöfaldan-skramba. Hann er því samtals á 12 höggum yfir pari í 41. - 45. sæti og hefur híft sig upp um fjögur sæti frá því í gær.

Toni Karjalainen leiðir enn mótið en hann lék á tveimur höggum yfir pari í dag og er því samtals á einu höggi undir pari. Karjalainen lét hafa það eftir sér í gær á vef Evrópumótaraðarinnar að honum þætti hreint ótrúlegt að þeir skyldu vera látnir leika við þessar aðstæður en var þó sáttur við að vera í fyrsta sæti. Í öðru sæti er Jamie Elson frá Englandi á þremur höggum yfir pari. En vonandi slotar veðrinu eitthvað á morgun svo kylfingar geti sýnt almennilega hvað í þeim býr.

[Staðan]



10.6.05
Birgir Leifur áfram
Veðrið hefur heldur betur reynst keppendum í Thomas Björn mótinu erfiður ljár í þúfu og fréttaritari hljóp ögn á sig fyrr í dag þegar hann taldi skor Birgis líklega ekki nægja til þess að komast áfram. Birgir er í 45. til 56. sæti á átta höggum yfir pari. Aðeins einn keppandi er undir pari eftir tvo fyrstu dagana, en það er Toni Karjalainen frá Finnlandi sem leiddi einnig mótið í gær.

Birgir sagði að það væri nú ekki algengt að menn kæmust áfram á þetta mörgum höggum yfir pari en aðstæður vegna vonskuveðurs hafi hins vegar bara ekki boðið upp á betra skor. Hann ætlar að reyna að nýta það sem eftir er af deginum á púttflötinni til að koma vel undirbúinn til leiks fyrir erfiða tvo daga sem framundan eru.

[Staðan]



Erfiður dagur á skrifstofunni
Birgir Leifur lenti í hremmingum í dag á Thomasar Björn mótinu í Danmörku. Hann lék alls á 76 höggum eða 5 yfir pari. Samtals er hann því á 8 höggum yfir pari fyrstu tvo dagana og er sem stendur í 102. til 110. sæti. Ólíklegt verður að teljast að hann nái í gegnum niðurskurðinn. Hann sagðist hafa lent í töluverði basli á flötunum en lengra spilið hafi verið alveg prýðilegt. Birgir var með tvo fugla á hringnum í dag og 7 skolla.

[Staðan]



Gestabók
Skoða / Skrifa
 
Bakverðir Birgis Leifs
 

 

 
Nevada Bob
 
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur
 

 
 
 

 
This page is powered by Blogger. Isn't yours?