Jón Kristjánsson fiskifræðingur:
Ég hef fengist svo mikið við fiskveiðimál í Færeyjum að viðeigandi er að hafa sérstaka síðu um málefni Færeyja. Þetta hófst með því að ég hitti Olaf Olsen útgerðarmann á ráðstefnu í Bergen í mars 1998. Á ráðstefnunni flutti ég erindi um tilgátu mína um hvernig skýra mætti sveiflur í þorskstofnum í N. Atlantshafi, en ráðstefnan fjallaði um þau mál. Ég byggði tilgátuna á gögnum úr Færeyska þorskstofninum. Ég taldi að það væri þorskurinn sjálfur sem stjórnaði sveiflunum, þegar fæða var nóg fjölgaði honum hratt og gengi þar með nærri fæðunni og æti sig út á gaddinn. Þá færi hann að horast og drepast, stofninn lagaði sig að nýjum aðstæðum. Þegar stofninn hefði fallið úr hor, ykist fæðan aftur, þorski fjölgaði á ný og þannig koll af kolli.
Í ágúst 1998 átti ég erindi til Færeyja og flutti þá erindi í Þórshöfn um sveiflur í þorskstofnum, fiskifræði og fiskveiðistjórn. Fundurinn vakti nokkra athygli og útvarpið hafði við mig langt viðtal og greinar birtust í færeyskum blöðum og norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren. Það var svo vorið 2001 að sjávarútvegsráðherra Færeyja kallaði mig til ráðgjafar og síðan kom ég að fiskveiðiráðgjöfinni í nokkur ár.
Síðan er í tímaröð og eru elstu atburðirnir fyrst og þeir nýjustu síðast. Greinar og skýrslur eru ýmist á íslensku norsku eða íslensku, en ég hef notað norsku í samskiptum við Færeyinga.
NÝJUSTU FRÉTTIR 2011: Þorskstofninn við Færeyjar er á mikilli uppleið, sjá neðst á síðunni.
Ýsan er falleg og mikið veiðist af smáýsu. Mun meira veiðist af smáufsa en undanfarin ár, minna er um stóran fisk en aflinn er góður. Heldur virðist hafa dregið úr þorskveiði miðað við í fyrra og talsvert ber á horuðum fiski (sjá mynd). Sérstaklega var stærri fiskurinn, yfir 60 sm, horaður og afturmjór. Slíkur fiskur á ekki eftir að vaxa meira, því ég tel að ástandið stafi ekki af minna ætisframboði almennt, heldur sé stofninn kominn í sína hefðbundnu niðursveiflu sem stafar af því að veiðarnar megna ekki við að halda aftur af stækkun stofnsins svo hann étur sig út á gaddinn. Sóknin hefur því verið of lítil undanfarin ár og ekki hægt að ráðleggja annað en að bæta við hana. Ekki geri ég þó ráð fyrir því að eftir því verði farið - núna. Það tekur nokkurn tíma að snúa ofan af sífelldu tali um ofveiði. Ráðherra hefur lagt fram tillögu um óbreytta fiskidagaskipan og verður hún lögð fyrir færeyska lögþingið í þingbyrjun, á Ólavsvöku. Sjómannasamtökin eru óhress með að ráðherrann skyldi ekki hafa lagt til aukningu á dagafjölda. FF blaðið tekur ICES og Fiskirannsóknastofuna í gegn í nýrri grein. Greinin er hér, á færeysku. Fiskirannsóknastofan birti svar við tillögum mínum í grein sem birtist í FF- blaðinu 14. ágúst 2003. Greinin er hér og hún er á færeysku.
síðani 2003, og serliga árini 2006-2008 var lítið at fáa. Men í fjør bragdaði aftur, og úrslitið í ár var uppaftur betri. Hetta stuðlar upp undir framskrivingar, gjørdar í apríl-mai í ár, ið vístu, at toskastovnurin er í góðum vøkstri vegna betri fiskavøkstur og tilgongd (nýliðun); sera lítið varð tó fingið av 0- og 1-ára gomlum toski.