Gagnrýni á fiskveiðistefnu Hafró
Hér má finna gagnrýni á forsendur þeirrar fiskveiðistefnu sem Hafró mótaði í landhelgisstríðunum og byggist fyrst og fremst á því að draga úr veiðum til að stofninn stækki og gefi meira af sér - seinna. Lögð er áhersla á að vernda smáfisk svo hann fái að stækka og leggja hrygningarstofninum lið en eitt markmið er að stækka hann svo hann gefi meira af sér.
- Samantekt á fiskveiðiráðgjöfinni 1978-1985. Fróðlegt er að skoða ráðleggingar Hafró frá þessum árum. Þær eru í tímaröð og taka breytingum eftir aflabrögðum. Á þessum tíma var nefnilega ekki farið eftir ráðleggingum Hafró, þannig að þó lagt væri til að draga stórlega úr afla til að vernda stofninn, var bara haldið áfram að veiða, ofveiðin varð ekki og "spárnar" réttu úr kútnum. Síðar urðu ráðherrar svo ábyrgir að þeir leyfðu sjómönnum ekki að komast upp með að fara fram úr ráðgjöf Hafró og þá fóru spárnar að standast, þær urðu allt í einu "réttar".
- Samantekt á fiskveiðiráðgjöf áranna 1991-2001. Morgunblaðið gerði úttekt á ráðgjöfinni 1991-2001. Hún er afar fróðleg og vekur upp spurninguna: Hafa stjórnmálamenn gleymt öllu sem áður hefur gerst? Er ekki búið að reyna þessa aðferð í þaula? Hvað á þessi vonlausa tilraun að fá að standa lengi? (skrifað 2009, og þá er líka allt við það sama, aflinn kominn í 130 þús tonn!)
- 2001. Úttekt á gagnrýni á fiskveiðistefnu Hafró, sett fram af Tuma Tómassyni skólameistara fiskveiðiskóla SÞ á fyrirspurnaþingi haustið 2001 (Word skjal, 600 kb).
- Fara á forsíðu -