Ólafur Haukur Símonarson

 

 

Ólafur Haukur Símonarson, leikskáld (f. 1947) ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði nám í hönnun, bókmenntum og leikhúsfræðum í Kaupmannahöfn 1965–70, í Frakklandi 1970–71, og síðan aftur í Kaupmannahöfn 1972–74. Ólafur hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, hann var dagskrárgerðarmaður hjá Ríkissjónvarpinu 1974–76 og gerði heimildarkvikmyndir um íslenskt þjóðlíf, en frá árinu 1976 hefur hann eingöngu sinnt bókmenntaskrifum og þýðingum. Hann hefur samið fjölda leikrita fyrir svið, útvarp og sjónvarp sem notið hafa mikilla vinsælda. Nefna má Blómarósir, Hafið, Gauragang, Þrek og tár, Kennarar óskast og Fólkið í blokkinni. Fyrir utan leikrit, ljóð og smásögur hefur Ólafur sent frá sér fjölmargar skáldsögur, svo sem Vatn á myllu kölska, Gauragang og Rigning með köflum. Einnig hefur hann samið og gefið út á hljómplötum fjölda sönglaga sem einkum höfða til ungra hlustenda (Eninga meninga, Hattur og Fattur, Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, Fólkið í blokkinni). Ólafur Haukur hefur þýtt fjölda bóka, leikrita og kvikmynda.

Ólafur Haukur var leikhússtjóri Alþýðuleikhússins árin 1980–82. Hann var formaður Leikskáldafélags Íslands frá 1986 til 1998, varaformaður Rithöfundasambands Íslands 1994-2004, hefur setið í stjórn STEFs á Íslandi frá 1986, gegndi embætti varaforseta Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins I.T.I. 1993-2002, var kjörinn heiðursfélagi Leikskáldanefndar Alþjóðaleiklistarsambandsins I.T.I. 2006, og sat í verkefnavalsnefnd Leiklistarhátíðarinnar í Bonn (Bonner Theater Biennale) árin 1992 og 1994.  

Go toprevious La Ronde site
[<< Prev]

Member of: La Ronde--the Playwrights' Ring.
Go to Infopage on La Ronde--the Playwrights' Ring
Click this graphic for membership info

Go to nextLa Ronde site
[Next >>]

Fáeinar ljósmyndir úr handraðanum.

Unglingarnir í eldofninum, ljóðabók, Helgafell 1970.

Andrókles og ljónið (eftir smásögu Guðbergs Bergssonar), leikrit, Leikhópurinn Andrókles 1972.

Má ég eiga við þig orð, ljóðabók, SÚR 1973 og 1976.

Blái fíllinn, barnaleikrit með söngvum, Leikhópurinn Andrókles 1973.

Dæmalaus ævintýri, smásögur, SÚR 1973.

Svarta og Rauða bókin, ljóð, SÚR 1974.

Haustsýning '74, ljóðmyndir, SÚR 1974.

Krakkarnir í Kringlugötu, sjónvarpsleikrit í þremur þáttum fyrir börn, RÚV 1975.

Eninga meninga, hljómplata, ljóð og lög, ÁÁ-hljómplötur, 1975,  SENA  2007.

Hattur og Fattur, leiknir sjónvarpsþættir fyrir börn, RÚV 1975.

Rauði svifnökkvinn, ljóð og myndir, Mál og menning 1975.

Fiskur undir steini, og fl. Handrit að fjórum heimildarmyndum fyrir RÚV, 1976.

Kvöldfréttir, hljómplata, ljóð og lög, Gagn og Gaman 1977.

Vélarbilun í næturgalanum, smásögur, SÚR 1977.

Vatn á myllu kölska, skáldsaga, Mál og Menning 1978.

Vand på fandens mølle, tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, lögð fram í þýðingu Peters Rasmundsen. Nordisk Kulturfond 1979.

Hattur og Fattur, hljómplata, ljóð og lög, Steinar h.f. 1979.

Blómarósir, leikrit, Alþýðuleikhúsið 1979.

Galeiðan, skáldsaga, Mál og menning 1980.

Grettir, söngleikur, Leikfélag Reykjavíkur 1980.

Grettir, hljómplata, SS-hljómplötur 1980, CD SENA 2007.

Almanak jóðvinafélagsins, ljóðsaga, Mál og menning 1981.

Vík milli vina, skáldsaga, Mál og Menning 1983.

Hattur og Fattur, barnasaga, Iðunn 1984.

Milli skinn og hörunds, þríleikur, Þjóðleikhúsið 1984.

Milli skinns og hörunds, leikrit í bókarformi, Mál og menning 1984.

Unter die Haut, (Milli skinns og hörunds 1. og 2. hluti), leikgerð fyrir útvarp, WDR, Köln, 1984.

Ástin sigrar, leikrit, Leikfélag Húsavíkur 1985, og Leikfélag Reykjavíkur 1985.

Borgarbragur, ljóð á samnefnda hljómplötu og geisladisk við lög Gunnar Þórðarsonar, Steinar h.f., SENA, 1985/1988/1994.

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, leikrit, Leikfélag Akureyrar 1985, Alþýðuleikhúsið 1986 .

Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, hljómplata, ljóð og lög, Hitt leikhúsið 1986.

Í loftinu, hljómplata, ljóð, Steinar h.f. 1987.

Bílaverkstæði Badda, leikrit, Þjóðleikhúsið 1987–1989.

Líkið í rauða bílnum, skáldsaga, Sögusteinn 1987.

Sögur úr sarpinum, úrval smásagna, Mál og menning 1988.

Gauragangur, skáldsaga, Mál og menning 1988.

Hundheppinn, leikrit, Nemendaleikhús Leiklistarskóla Íslands 1989.

Kjöt, leikrit, Leikfélag Reykjavíkur 1990.

Kjöt, leikrit í bókarformi, Menningarsjóður 1990.

Ryð, kvikmyndahandrit; kvikmyndin frumsýnd 1990.

Á köldum klaka, söngleikur, Leikfélag Reykjavíkur 1991.

Á köldum klaka, geisladiskur, ljóð við lög Gunnars Þórðarsonar, Leikfélag Reykjavíkur 1991.

Meiri gauragangur, skáldsaga, Forlagið 1991.

Happadrættisvinningurinn, útvarpsleikrit, RÚV 1992.

Hafið, leikrit, Þjóðleikhúsið 1992–93.

Hafið, leikrit í bókarformi, Forlagið 1992, SKRUDDA  2001.

Hafið, sjónvarpsupptaka, Stöð 2, 1993.

Stormur strýkur vanga, ævisaga Guðjóns Símonarsonar, Forlagið 1992.

Tumult, Gauragangur í danskri þýðingu Erik Skyum Hansen, Amanda forlag 1992.

Gauragangur, leikrit með söngvum byggt á skáldsögunni Gauragangur, Þjóðleikhúsið 1993–94.

Gauragangur, geisladiskur, Skífan 1994.

Söngvarinn, leikrit 1994, Ríkisútvarpið 1994, Vestur-þýska útvarpið (WDR) 1994, Slóvenska útvarpið 1994.

Þrek og tár, leikrit 1994, Þjóðleikhúsið 1995

Þrek og tár, leikrit í bókarformi, Ormstunga 1995.

Ævintýri á harða diskinum, leikrit fyrir unga leikara, samið að tilmælum NTU, Nordisk teater union, frumsýnt af leikfélagi Mosfellssveitar 1995. Danmörk 1996.

Kennarar óskast, leikrit, Þjóðleikhúsið 1996 .

Rigning með köflum, skáldsaga, Ormstunga 1996.

Meiri gauragangur, leikrit, Þjóðleikhúsið 1997.

Úr hugarheimi – ævirolla Sigurðar Þóris Sigurðssonar listmálara, 1998.

Hattur & Fattur, barnaleikrit með söngvum, Loftkastalinn 1999.

Nú er ég hissa! Söngvar úr Hatti & Fatti, geisladiskur, Loftkastalinn 1999.

Líkið í rauða bílnum, útvarpsleikrit í 12 þáttum, RÚV 1999.

Bjallan, sjónvarsleikrit, RÚV 2000.

Fólkið í blokkinni, ljóð og lög, geisladiskur, Skífan 2000.

Vitleysingarnir, leikrit, Hafnarfjarðarleikhúsið 2000.

Fólkið í blokkinni, smásögur, Mál & Mynd 2001.

Boðorðin 9, leikrit, Leikfélag Reykjavíkur 2002.

Victoría og Georg, leikrit, Þjóðleikhúsið 2002-2003.

Gaggalagú, barnaleikrit með söngvum, Hafnafjarðarleikhúsið, 2003.

Græna landið, leikrit, Þjóðleikhúsið 2003.

Æskuljóð hvíta mannsins, úrval ljóða, Skrudda 2004.

ÞORPIÐ, sjónvarpssería í 12 þáttum, 2004.

Allt í góðu, ljóð og lög, CD, 2005.

Halldór í Hollywood, leikrit, Þjóðleikhúsið 2005.

KRUMMASKUÐ, óbirt skáldsaga,  2005-6.

JANIS SEGIR FRÁ. Leikrit um ævihlaup amerísku söngkonunnar Janis Joplin, 2006.

ÞAÐ VANTAR SPÝTUR, úrval barnalaga Ó. H. Símonarsonar, 12 Tónar 2006.

UPP ÚR DÚRNUM,  40 lög og textar eftir Ó. H. Símonarson, SENA 2007.

MILLI SKINN OG HÖRUNDS, þríleikur , RÚV hljóðvarp 2007.

JANIS 27, leikrit með söngvum, Íslenska óperan,  2008.

FÓLKIÐ Í BLOKKINNI, leikrit með söngvum, Borgarleikhúsið, 2007.

FLUGA Á VEGG, skáldsaga, Skrudda bókaútgáfa, 2008.

FÓLKIÐ Í BLOKKINNI heildarsafn. Öll lögin af  FÓLKIÐ Í BLOKKINNI og ALLT Í GÓÐU. Auk þess 4 ný lög. Sena, 2008.

Auk þessa smásögur í safnritum innlendum og erlendum, söngtextar á mörgum hljómplötum, sönglög við ljóð annarra, þýðingar á skáldsögum, leikritum, söngtextum og kvikmyndum og fleira.