the Showspace Galleries

Bjarni Sigurbjörnsson



20m2: "Erting inn við beinið", 14. 6. -29. 6. 1997

Arftakar vitsmunaverunnar - Fjölskyldan að Staðarhóli tuttugu fermetrum

Þórður Pétursson, Guðríður Pálsdóttir, Pálína Þórðardóttir, Pétur Þórðarson, SNATI



Öll eru þau í þjóðkirkjunni þrátt fyrir ýmsa vankanta en þykir jógúrt og rúsinur góðar.
Snata finnst rækjur ofsa mikið lostæti.
Alltaf fara þau í bað á laugardögum en eiga erfitt með að synda, þegar rignir mikið úti og þá líður þeim eins og fiskum á þurru landi. Þau eru vistvænni en forfeður þeirra vegna þess að þau langar ekki í sólberjagraut á sunnnudögum.
Þórði finnst kaffi og cheerios gott á morgnana.
Snati hinn alvitri færist nær alsælu ástandi, er eflaust á æðsta vitsmunastigi þar sem fortíð og framtíð trufla ekki.
Guðríður svitnar svolítið þegar hún fær sér gúrku með hamborgaranum.
Á kvöldin eru þau í næði í náðhúsinu nema á mánudögum þegar hreinsun fer fram.
Þau eru það sem þau láta oní sig, öll losun óþörf.




<return 20m2>