the Showspace Galleries
Guðrún Vera Hjartardóttir
Gallery 20m2 5. 4. - 26. 4. 1997
Sýninguna nefnir hún "það er engill á þakinu og áhorfendur" og er innsetning í rými sem þýðir að inni í sýningarrýminu er áhorfandinn inni í verkinu. "Það sem vakti fyrir mér við gerð verksins var að gera innsetningu með ljósi og myrkri. Titillinn skýrskotar til huglægs og hlutlægs veruleika þar sem heimurinn fer á flug og ímyndunaraflið fær frelsi. Skuggar fortíðar og baráttan við að lifa í núinu. Verkið er endurunnin minning sem er látin saman á ný í gegnum nýja upplifun. Er ég lít til baka þá man ég eftir pappahúsi sem faðir minn gerði fyrir mig sem ég breytti fljótlega í bát því húsið var svo lítið að ég gat engum boðið inn til mín, kannski hefur þetta atvik minnt mig á aðskilnað sem manneskjan upplifir í þjóðfélaginu". Guðrún útskrifaðist úr myndlista og handíðaskóla íslands 1991 og lauk framhaldsnámi í Hollandi 1994. Þetta er fyrsta einkasýning hennar hér á landi en hún hefur áður verið með þrjár einkasýningar í Hollandi og tekið þátt í fjölda samsýninga í Hollandi, Englandi og Íslandi.
<return 20m2>