Forsíða

Hjálp (nótnasíður)

Tengt er beint á nótnasíðuna eins og hún er vistuð úr nótnaskriftarforritinu (Finale Allegro 2001.r1) og til að opna hana þarf eitthvert forrit úr Finale-fjölskyldunni, Finale Reader er ókeypis. Hann getur opnað spilað og prentað nóturnar.  Ef þig langar að skrifa þína eigin tónlist, lumar Finale á mörgum nótnaskriftarforritum í jafn mörgum verðflokkum.   Það ódýrasta er Finale Notepad (útgáfa 2011, kostar $ 9.95 án geisladisks). Finale Notepad getur t.d. tónflutt nóturnar á þessum vef.

Þér er velkomið að hafa samband við mig hvort sem er með tölvupósti eða í síma, ef Þú ert í vandræðum. Farsími: 899 4159 - Heimasími: 483 4594 - Netfang:  thorhrod hjá internet.is

Mér þætti vænt um að frétta hvernig þér líkar og hvernig þér gengur.