Kíkt
í Biblíuna
Ekki leita ég
í Biblíuna í von um að finna þar
beina lausn á áfengisvandamálinu, en
krókaleiðina má fara með því
að reyna að taka til sín boðskap Guðspjallanna.
Rétt er að hafa það hugfast, að
grundvallarmarkmið AA-stefnunnar er, að sá
sem leitar bata frá drykkjuskap reyni að þroska
sjálfan sig, en að velta fyrir sér orðum
Frelsarans hlýtur að bæta hvern þann
sem eftir leitar.
Í þessum tilgangi verður nú gripið
niður í Matteusarguðspjallið á
fjörutíu stöðum og aðeins einni
tilvitnun otað fram við hvern smell, en með
tilliti til eðlis málsins er rétt að
byrja hér, byrja á fjórða versi
í fjórða kafla:: Matteus, 4.kafli,
4.vers.
Ritað
er:
Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði,
heldur á hverju því orði sem fram
gengur af guðs munni.