Steinar Guðmundsson:

Ferillinn er þessi

Ég er fæddur í Reykjavík 15. febr. 1917 -- nánar tiltekið, í bakhúsi að Laugavegi 19. Foreldrar mínir eru Margrét Árnadóttir, Jóns dannebrogsmanns og útvegsbónda í Þorlákshöfn, fædd að Laugavegi 21 í Ólanorska húsinu, og Guðmundur Kr. Guðmundsson, í heiminn borinn í Steinbænum að Laugavegi 18, þar sem nú stendur stórhýsið sem hýsir Mál og Menningu. Pabbi og afi voru báðir kenndir við Steinbæinn, Guðmundarnir á Vegamótum, eldri og yngri, en ættin liggur austur í Meðalland í vestursýslunni og út á Seltjarnarnes.

Átta ára gamall var ég kominn niður á Lækjartorg, en þar eignuðust foreldrar mínir stórhýsið Thomsenshús, og starfræktu þar hótel, Hotel Heklu, fram í stríð, og naut sú starfsemi starfsorku minnar eftir að ég hafði lokið skólagöngu, sem hófst í Landakoti og lauk við Woods College í Hull.

Tvenn mikilvæg tímamót hefi ég lifað. Það fyrra hófst þegar ég, 28 ára gamall, kvæntist Jósíönu Magnúsdóttur, ættaðri úr Bolungavík og Súgandafirði, en við bárum gæfu til að eignast fjögur börn, Þórdísi og Margréti sem nú eru látnar, en hin tvö lifa enn, bæði andlega og líkamlega góðu lífi, Anna uppi í Mosfellsdal og Magnús suður í Kópavogi.

Hin tímamótin í lífi mínu urðu þegar ég af illri nauðsyn gekk til liðs við AA-samtökin, og ílentist þar. Þá var ég 38 ára gamall, en er nú orðinn áttræður. Allan þennan tíma hefi ég hangið þar í stiga, sem kallaður er Tólfsporastiginn, og þar hefi ég notið þess að vera hvorki einn né einangraður. Ég er búinn að semja og koma á prent einum 6 eða 7 bókum og fjölda bæklinga, auk blaðagreina, um sameiginlegt áhugamál okkar, sem í stiganum veltumst.

Þar er ég og þar líður mér vel.

Steinar,

 

.