BIRTINGUR
BÓK FEBRÚARMÁNAÐAR 2001
![]()
Aðgengilegur, myndskreyttur leiðarvísir um leyndardóma tarotspilanna.
Höf.: Jonathan Dee. Shirley Barker myndskreytti spilin.
Ísl. þýðing: Anna María Hilmarsdóttir.
Tarotspil hafa öldum saman verið notuð til að sjá fyrir það sem framtíðin ber í skauti sér og örlög manna. Þessi gullfallega, litla bók hefur að geyma lýsingar og merkingu allra 78 tarotspilanna. Hún er auðveldur og aðgengilegur leiðarvísir að heillandi heimi spilanna.
Hvað eru Tarotspil ?
Nú á tímum eru margar gerðir spáspila í boði en það eru ekki allt tarotspil. Tarotspilin eru sérstök spil sem eiga sér langa sögu. Sumir halda því jafnvel fram að þau eigi rætur að rekja til fornegypskrar menningar en líklegra er að þau séu evrópsk að uppruna og afsprengi dulspekihefða frá tímum krossfara.
Tarotspilin eru ekki ósvipuð venjulegum spilum. Hvor tveggja hafa að geyma fjóra liti, sem eru tölusettir frá ás upp í tíu. Í tarotspilunum kallast litirnir hinar lægri launhelgar og í stað laufs, hjarta, spaða og tíguls, eru litir tarotspilanna nefndir stafir, bikarar, sverð og skildingar. Ólíkt venjulegum spilum eru fjögur mannspil í hverjum lit: kóngur, drottning, riddari og skjaldsveinn, og eru þá fimmtíu og sex spil sem tilheyra hinum lægri launhelgum.
Auk hinna lægri launhelga eru önnur tuttugu og tvö spil í tarotspilunum og nefnast þau hinar æðri launhelgar. Þau tilheyra ekki neinum sérstökum lit og hafa eigin tölur (að undanskildum Glópnum), táknmynd og nafn.
Þegar fleiri lægri spil birtast í spádómi en æðri, eru örlögin að mestu í höndum spyrjandans. Ef því er á hinn veginn farið, ráða forlögin framtíð hans.
Í köflum bókarinnar er fjallað um merkingu einstakra spila ásamt hugsanlegum tengingum, og spádómsaðferðir. Bæði rétt og gagnstæð merking sérhvers spils er sýnd til að hægt sé að túlka bæði jákvæð og neikvæð áhrif spilsins. Leyfilegt er að nota eingöngu rétta merkingu ef sú gagnstæða reynist byrjandanum of erfið.
Verð til félaga í bókaklúbbnum:.
kr. 1.690.-
Burðargjald innifalið.
(Búðarverð kr. 2,980,-)