birtme2.JPG - 3078 Bytes  BIRTINGUR    

                           lines_blue_002.gif - 1026 Bytes 

 

BÓK MAÍ-MÁNAÐAR 2001

 

HUGLÆG VERND

Höf.: William Bloom; þýðing: Anna María Hilmarsdóttir.

Í þessari bók er fjallað um það hvernig hægt er að styrkja sig og vernda gegn ýmsum óæskilegum áhrifum úr umhverfinu. Ertu næmur fyrir tíðni andrúmsins í kringum þig? Ertu samvistum við fólk sem þér finnst tæma þig orkulega eða espa þig upp? Ertu smeykur við að yfirgefa óvarið heimili þitt? Er auðvelt að særa þig?

Við erum öll næm fyrir orku og andrúmi bæði fólks og hluta.

Í bókinni er bent á hvernig við getum varið okkur andlega í óþægilegu umhverfi, verndað okkur gegn sterkum persónuleikum, hreinsað tíðnisvið heimilis okkar og vinnustaðar, skapað kærleiksríkar bylgjur í kringum fólk, staði og hluti, jafnað andrúm eftir róstur og skapað jákvæða orku, sem gerir okkur hamingjusamari, sjálfsöruggari og árangursríkari í flestu því sem við tökum okkur fyrir hendur.

banlesvernd.gif - 9369 Bytes

Ef þú vilt kynnast efni bókarinnar nánar, þá geturðu lesið valinn kafla úr henni með því að klikka HÉR

Verð til félaga Birtings er kr. 2,496,-

         

lines_blue_002.gif - 1026 Bytes

[Birtingur-titilsíða]     [Febrúarbók-2001]     [Ágústbók-2001]     [Úr fréttabréfi]