BIRTINGUR
Úr fréttabréfi maí-mánuðar
2001
Ágæti
félagi.
Eigendaskipti
BIRTINGS hafa gengið eins og best verður á kosið. Tarot-spilin vöktu almenna
ánægju hjá félögum og hafa margir pantað annað eintak til að gefa vinum og
vandamönnum. Enn er nokkur lager fyrirliggjandi, ef einhverjir vilja panta
aukapakka.
Nokkuð hefur verið spurt um afþökkunarþjónustu í sama formi og var
hjá fyrri eigendum. Því er til að svara að sú þjónusta er ekki fyrir hendi hjá
okkur. Hins vegar kemur fréttabréf á undan hverri bók og ef fólk hefur alls ekki
áhuga fyrir efninu, þá er hægt að skipta henni hjá forlaginu.
Bókaklúbbur
byggist á öruggu félagatali. Til að hægt sé að gefa 30-40% afslátt verður
móttakendafjöldi að vera þekkt stærð. Sá er munurinn á bókaklúbbi og póst- eða
netverslun.
Bókaklúbbar hafa aukið markaðshlutdeild sína verulega hin síðari
ár. Mjög margar fjölskyldur eiga aðild að einum eða fleiri bókaklúbbum af
einhverju tagi. Það er nefnilega með bækur eins og mat, það þarf alltaf meira og
meira. Bækur eru nauðsynleg næring fyrir sálarlífið og þekkingaröflun hvers
einstaklings.
Að lesa er að lifa.
Á Íslandi
og í nálægum löndum er bókakostur heimila yfirleitt allfjölbreyttur og talið er
að mjög fáir hafi minnkað bókakaup hin síðari ár, þó að sjónvarp, myndbönd og
tölvur séu nú orðin hvers manns eign.
Við hjá bókaútgáfunni SKJALDBORG vonum
að bækur BIRTINGS verði kærkomið innlegg í bókasöfn íslenskra heimila og víkki
sjóndeildarhringinn hjá allri fjölskyldunni.
Með kveðju,
Anna Fr.
Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri.
[Tilbaka] [Maí-bók 2001] [Ágúst-bók 2001]