BIRTINGUR
BÓK ÁGÚST-MÁNAÐAR 2001
TÆRNAR
SPEGILL
PERSÓNULEIKANS
Höf.: Imre Somogyi ; þýðing: Fríða Júlíusdóttir.
Þegar Imre Somogyi vann sem blaðamaður
og framleiðandi sjónvarpsefnis, fékk hann áhuga á heilun. Hann kynnti sér, meðal
annarra meðferða, smáskammtalækningar, grasalækningar og punktanudd. Á þessum
tíma bjó hann til kenningu um að tærnar á fólki væru nokkurs konar spegill þess
og að lögun þeirra og staða sýndi hvernig persónuleikar það væri.
Eftir að
hann hafði uppgjötvað þetta varð hann mjög undrandi þegar hann komst að því að
aldrei hafði verið neitt gefið út um þetta efni.
Tuttugu árum síðar fór hann sjálfur að
rannsaka kenningu sína og setti upp próf fyrir sjálfan sig. Hann ákvað að
rannsaka 40 manns og ef niðurstöður hans yrðu fyrir neðan 90% hvað nákvæmni varðaði,
þá ætlaði hann ekki að hlusta frekar á þá sem kröfðust þess að hann skrifaði
bók um efnið.
Það er óþarft að taka fram að hann stóðst próf sitt með
mestu ágætum, og hann leggur jafnan mikla áherslu á að hann hafi ekki svindlað í
neinu atriði þess.
Táalestur er skemmtileg en engu að síður raunveruleg
aðferð til að greina persónuleika og hegðunarmynstur.
Upphafið að þessu var
þegar þau hjónin, Margriet og Imre Somogyi fóru að kynna sér segullækningar og
komust þá að því að meðferð á fótum fólks gat kallað fram vissar tilfinningar
hjá því. Þau segja t.d. að sorg setjist að í hálsinum og sönnun þess fengu þau
þegar kona öskraði hástöfum þegar stóra táin á henni var nudduð mjúklega. Ástæða
þess var uppsöfnuð sorg innra með henni. Þau komust einnig að því að viðkvæm
litla tá á vinstra fæti gefur til kynna svartsýni og oft á tíðum kynferðisleg
vandamál.
Þau hjónin fengu mikinn áhuga á þessu fyrirbæri og tóku að leita að
fleiri tengslum á milli tilfinninga og verkja í fótum. Þau ræddu ítarlega við
félaga sína á námskeiðum og gerðu tilraunir á þeim, og komust að því að svæðin,
sem kölluðu fram verki, sögðu ekki bara til um tilfinningar, heldur gaf staða og
lögun tánna líka til kynna hvernig við tökumst á við tilfinningarnar.
Eftir
þessa uppgötvun og þegar þau höfðu þróað hana nánar, varð mjög vinsælt að fá
hjónin í partí og á ýmsar samkomur til að lesa í tær, enda var fólk gjarnan
opnara þar og tilbúið í eitthvað nýtt og forvitnilegt.
Þetta spurðist æ
hraðar út og alltaf var verið að spyrja þau um hvaðan þau hefðu þetta og hvar
þau hefðu lesið sér til um það. Svarið var alltaf "hvergi," þau fundu þetta út
sjálf. Og vegna sífelldra fyrirspurna endaði það á því að þau ákváðu að skrifa
bók um fyrirbærið og hér er hún komin, væntanlega eina bókin í heiminum, sem
skrifuð hefur verið um táalestur.
Nokkur dæmi um lestur úr útliti táa:
Þybbnar og
stórar tær: Fólk, sem er með svona tær, er mjög vel máli farið og talar
mikið og lengi.
Snúin tá gefur til kynna að stefnubreyting sé í
vændum.
Hallandi tá: Þarna kemur eitthvað annað í ljós en það sem
eigandi táarinnar hugsar og finnur í raun og veru. Halli veldur ólíkri hegðun,
ólíkri meðhöndlun orkunnar en ætlað var í upphafi. Kræktar tær: Tær, sem
eru kræktar þannig að þær eru jafnar táalínunni (þ.e. á milli litlu táar og
þeirrar stóru) sýna tilhneigingu til óheilinda.
Tá, sem vísar upp í
loftið: Þessi tá er ekki jarðtengd. Þarna er á ferðinni tilhneiging til
ástæðulausra rifrilda, ímyndunar og dagdrauma. Þessi staða táar veldur svo sem
ekki neinum vandamálum en býður oft upp á flótta frá raunveruleikanum.
Kreppt tá: Þetta skeður þegar hinn ytri heimur hefur neytt hömlum upp
á eigandann eða stjórnsamur aðili viðurkennir ekki einhvern tjáningarmáta
hans.
Í bókinni er fjöldi mynda með skýringum og
dæmum um margvíslegt útlit táa og hvað það merkir.
Heimasíða höfundar
bókarinnar er:
www.readingtoes.com
[Birtingur-titilsíða] [Febrúarbók-2001] [Maíbók-2001]