birtme2.JPG - 3078 Bytes  BIRTINGUR    


KYNNINGARKAFLI ÚR BÓKINNI "HUGLÆG VERND," EFTIR WILLIAM BLOOM

Vertu heilbrigður

Að finnast maður vera illa varinn fyrir utanaðkomandi tíðni, kemur fyrir okkur öll, fyrr eða síðar. Flestum okkar finnst við vera lítt varin þegar við erum stressuð, þreytt eða að ganga í gegnum miklar persónulegar breytingar. Við verðum næmari fyrir hvers konar þrýstingi og þolum ekki að hafa fólk nálægt okkur. Við viljum jafnvel að ástvinir okkar haldi sig í ákveðinni fjarlægð. Ef við verðum sérstaklega óvarin þá getum við skynjað of auðveldlega geðbrigði fólks og það getur verið yfirþyrmandi. Kringumstæður, þar sem er margt fólk, geta orðið sérstaklega erfiðar. Að fara í vinnuna þreytir okkur og í versta tilfelli byrjum við að "brenna upp."

Til þess að vera praktískur, þá er fyrsta skrefið í andlegri vernd að sofa vel, hvíla sig og slaka á. Það þjónar ekki neinum tilgangi að horfa framhjá þeim sannindum að stundum erum við magnþrota reköld og þess vegna óvarin andlega. Við þurfum að vera úthvíld og andlega hraust. Ef líkamlegt taugakerfi okkar er veiklulegt, þá erum við einnig andlega veikluð.

Að sjálfsögðu er ég bara að minna ykkur á mjög augljóst atriði, sem er það að þú þarft að fylgjast með þér sjálfur. Það er til líkamlegt heilbrigði og líka andlegt og þau eru samtvinnuð. Mundu það að næmni þín gagnvart andrúmslofti og orku liggur um taugakerfið. Ef það er magnþrota þá getur þú auðveldlega orðið yfirþyrmdur af breytingum í orkuhjúpi þínum, sem undir öllum venjulegum kringumstæðum myndu ekki skapa neina spennu eða erfiðleika.

Fyrsta aðferðin varðandi andlega vernd er því sú að vera heilbrigður. Sofðu. Hreyfðu þig nægjanlega. Borðaðu hollan mat. Hættu að neyta áfengis, reykja eða nota eiturlyf. Skipulegðu tíma þinn betur. Minnkaðu vinnu þína. Beislaðu metnað þinn og vinnufíkn. Notaðu skynsamlegar aðferðir til þess að lifa góðu og mannlegu lífi.

Ég vil ekki að neinn noti þær aðferðir, sem hér eru gefnar, ef það þarf að kosta meiri fyrirhöfn en þá að líta eftir þér með skynsemi. Ég get séð fyrir mér samviskusaman lesanda, sem rembist eins og rjúpan við staurinn við að anda rólega til þess að skapa sér andlega vernd og skýrari vitund, þegar það eina sem hann þyrfti að gera væri að taka sér frí í einn dag, fá sér gönguferð út í sveit, setjast niður við tré, eða sofa.

Að því sögðu, þá eru hins vegar vissulega til þær stundir þegar það er við hæfi að geta varið sjálfan sig frá aðvífandi áhrifum. Fólk er stundum vantrúað á þetta og spyr: "Þýðir þetta ekki að þú sért að hvetja fólk til þess að flýja raunveruleikann og draga sig út úr samböndum?"

Svar mitt við þessu er að lífið er ekki auðvelt. Það koma þær stundir þegar við erum yfirþyrmd og þörfnumst smá aukarýmis. Á slíkum stundum ætti okkur að vera frjálst að nota aðferðir sem munu gera okkur lífið auðveldara, og þá munum við geta betur fengist við það, sem er að eiga sér stað. Við förum í regnkápur þegar rignir. Það er skynsamlegt og við förum úr þeim þegar styttir upp. Á sama hátt hættum við að verja okkur orkulega þegar loftslagið innra með okkur breytist.

Í þessari bók kynni ég þær grunnaðferðir til verndar, sem þú getur notað í hvers konar aðstæðum hversdagsins. Þér kann að finnast þær nytsamlegar, t.d. bara varðandi nýjar aðstæður eða þegar þú ert að fara inn í mannmarga borg eða þá að þú vilt kannski nota þær þegar þú ert að fara á fund þar sem þú veist að er staddur einhver aðili sem er andstæður þér. Ég lýsi því líka hvernig þú getur verndað heimili þitt og hvernig, og einnig annað fólk, ef það á við.

Æfing:

Verndarkúlur

Langþekktasta aðferðin við huglæga vernd er sú að skapa verndarkúlu eða egg utan um sjálfan sig. Þú ímyndar þér og hugsar þig staddan inni í kúlu og að engin leiðinleg áhrif geti komist inn í hana.

Komdu þér þægilega fyrir og slakaðu á. Jarðtengdu þig og beindu andardrætti þínum í þægilegan og slakandi takt. Ímyndaðu þér og finndu að þú sért umlukinn gegnsærri, verndandi ...     (framhald í bókinni).

Þýðing kynningartexta: Guðjón Baldvinsson.


[Tilbaka]     [Birtingur-titilsíða]     [Úr fréttabréfi]