|
|
|
Kakó hollara en
rauðvín |
|
Vísindamenn í
Bandaríkjunum hafa komist að þeirri niðurstöðu að bolli af heitu
kakói sé meinhollur og sneisafullur af vítamínum og andoxunarefnum.
Þá kom líka í ljós að í kakóinu eru efni sem hægja á öldrun og geta
komið í veg fyrir alls kyns sjúkdóma. Athygliverðast þykir þó að
einn bolli af súkkulaði á dag er mun hollari en til dæmis grænt te
eða rauðvín. Fyrir ári komust franskir vísindamenn að því að
rauðvínsglas á dag gæti komið í veg fyrir hjartaáföll. Dr. Chang Yon
Lee og kollegar hans í Cornell-háskóla í New York gerðu rannsóknir á
tei, rauðvíni og kakói og fundu út að kakóið er langhollast. Í
kakóbolla er helmingi meira af andoxunarefnum en í rauðvíni og
þrisvar sinnum meira en í grænu tei. En þó að kakó sé að finna í
ýmsum fæðutegundum, eins og til dæmis súkkulaði, mæla
vísindamennirnir ekki með að fólk leggist í súkkulaðiát. Súkkulaði
er ríkt af mettaðri fitu, 40 gramma súkkulaðistykki inniheldur til
dæmis 8 grömm af mettaðri fitu meðan kakóbollinn inniheldur aðeins
0,3 grömm.
Heimild: Fréttablaðið
11/11/2003 |
|
|
|
|
|
|
Hvítlaukur
Hvítlaukurinn Kyolic hefur áhrif á marga
áhættuþætti hjartasjúkdóma, s.s. bóðþrýsting, kólesteról, blóðfitu,
blóðstorku, oxun kólesteróls og fleiri
þætti.
Kyolic hvítlaukur hefur jákvæð áhrif á
fjöldamörg atriði sem tengjast hjarta- og æða-sjúkdómum og í dag er ekki
þekkt nokkurt annað lyf eða náttúruefni sem hefur svo fjölbreytt jákvæð
áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Úrdráttur úr grein skrifaðri af Rafni Líndal lækni.
Birtist í tímaritinu Velferð, 13. árg., 2. tbl., 2001.
Fréttabréf Landssamtaka
hjartasjúklinga.
Heimild: Fréttablað Heilsuhússins,
janúar 2004.
| |
|
Fituvírus? |
|
Einn fylgifiskur nútíma lífshátta, hvað varðar mataræði og
hreyfingu, er sífellt aukin fita á og í líkama fólks. Einhvern tíma
hefði það nú ekki þótt lakara að vera vel í holdum, eins og það er
kallað, og kannski hefur það verið fólki nánast lífsnauðsynlegt. En
nú mun fjölgun í hópi þess fólks sem á við veruleg fituvandamál að
stríða, vera orðin svo mikil og ör, að menn eru farnir að
horfa á þennan þátt sérstaklega og reyna að gera sér grein fyrir
hvað valdi.
Meira ...
|
|
|
|
|
|
|
Kanill lækkar
blóðsykurinn Danska fagblaðið Ingeniø ren segir frá því á
vefsíðu sinni, að hálf teskeið af kanil á dag dugi til að lækka blóðsykurinn hjá
sykursjúkum einstaklingum. Rannsóknir sýna einnig að kanill lækkar
blóðsykur hjá fullfrísku fólki. Ekki er þó ráðlegt að rífa í sig eplapæ og
kanilsnúða en upplagt aðnota kanil út á þann mat sem maður er vanur að
borða, segir í frétt frá Neytendasamtökunum.
Heimild: Fréttablaðið, 29. desember
2003.
|

|
|
Súkkulaði fyrir
hjartað |
|
Hófleg neysla súkkulaðis getur haft góð áhrif á
starfsemi hjartans, að sögn sérfræðinga sem ávörpuðu gesti á
ráðstefnu um kakóplöntuna.
Súkkulaði inniheldur sams konar efni og
finna má í rauðvíni og grænu tei. Rannsóknir hafa sýnt að þessi efni
geta meðal annars örvað blóðstreymið um líkamann og lækkað
blóðþrýsting og þar með dregið úr hættunni á hjartasjúkdómum.
Sérfræðingar benda þó á að í óunninni kakóplöntu sé hlutfall þessara
efna mun hærra en í súkkulaði, sem framleitt er í verksmiðjum. Verið
er að þróa aðferðir til að varðveita efnin betur í unnu
súkkulaði.
Heimild: Fréttablaðið, 12. febrúar
2004.
|
|
|
|
|
| Grænt
te
Sífellt
hlaðast upp stafestingar á virkni græns tes sem vörn gegn ristilkrabba.
Vísindamenn við Lindus Pauling stofnunina í Oregon háskóla í
Bandaríkjunum, komust að því að regluleg neysla græns tes var jafn virk
til varnar ristilkrabba og bólgueyðandi lyf (sulindac). Rod Dash-woodprófessor
við stofnunina segist hafa sannanir fyrir því
að neysla græns tes samtímis inntöku stökkbreytivalda, geti með breytingum
á efnaskiptum komið í veg fyrir áhrif stökkbreytivaldans. Bestur árangur
náðist þó með notkun græns tes ásamt bólgueyðandi lyfi. Vísindamennirnrir
segja þetta einkar spennandi niðurstöðu, þar sem bólgueyðandi lyf valda
oft aukaverkunum, sem grænt te er laust við. Auk þess benda margar
rannsóknir til þess að það sé einnig afar gagnlegt til að fyrirbyggja
hjartasjúkdóma. Grænt te er auðugt af pólífenólum, sem heita katekín og er
talið að krabbameinsvörn tesins sé m.a. þeim að
þakka.
Fréttablað Heilsuhússins í janúar
2004.
|