VERUND
ORKUMÁL

Tilbaka     Andleg málefni     Til aðalsíðu     Hvað er nýjast


Hvað er orkuhreinsun ?

Mörgum er ljós sú staðreynd að allt rými hefur orku. Allt á heimili okkar er samansett úr orku í mismunandi formi. Margir kannast við það þegar þeir koma inn í íbúð eða herbergi að þeir verða varir við þá orku sem þar er ríkjandi. Áhrifin geta verið með ýmsum hætti, stundum finnur fólk fyrir léttleika og þægilegu andrúmslofti og í annan tíma virkar orka staðarins neikvætt á viðkomandi, hann verður niðurdreginn og orkulaus.Orka eftir t.d. rifrildi, getur haldist í langan tíma í herbergi, eftir að rifrildið hefur átt sér stað, svo dæmi sé tekið. Þá getur orka líka orðið stöðnuð eða þung af ýmsum ástæðum, svo að fólk sem dvelur í henni verður þreytt og leitt.
Þannig finnur fólk stundum meðvitað og ómeðvitað fyrir þeirri orku sem ríkir í því rými, sem það er að koma inn í eða dvelur í.
Til er fólk sem hefur haldið því fram að hægt sé að hreinsa neikvæða orku og breyta henni í jákvæðari, þannig að viðkomandi líði betur á þeim stað sem hann dvelur.
Aðferðirnar til þess eru ýmsar og tíðkuðust flestar á öldum áður. Eru þær nokkuð mismunandi, eftir því í hvaða heimshluta er borið niður. Frumbyggjar Ameríku notuðu til dæmis trommur, hringlur og brennandi jurtir, en Kínverjar slagverkshljóðfæri, söngl og reykelsi. Í Evrópu var á miðöldum notast við salt og bænir til þess að hreinsa orku. Austurlandabúar notuðu hinsvegar glóðarkol, reykelsi og myrru, til þess að blessa heimilið.
Margir hafa á síðari tímum farið að kynna sér þessi fornu fræði og komist að því að þau eru ekki alveg út í bláinn og geta gert gagn, jafnvel nú, á þessari miklu tækniöld.
Fólk er því farið að notfæra sér í vaxandi mæli þjónustu þeirra sem bjóða upp á orkuhreinsun af ýmsu tagi, og á það jafnt við um skrifstofur fyrirtækja sem heimili, auk þess sem það hefur kynnt sér þessar aðferðir sjálft og annast eigin hreinsun á þeirri orku sem því finnst það hafa ama af.
Svo eru þeir, sem leita sér aðstoðar handanheims, ýmist með sínum eigin aðferðum eða aðstoð huglækna.
Leiðirnar eru margar og aðferðirnar, og svo er að sjá að flestir þeirra sem þær prófa, séu þeirrar skoðunar að þær virki og séu til gagns.

Tilbaka     Andleg málefni     Til aðalsíðu     Hvað er nýjast