Verund
heimasíða um andleg málefni
11. spurning: Þurfið þið að vinna fyrir ykkur í andlega heiminum eins og við gerum hérna og hafið þið náttúrlegt ljós, eins og við höfum hér?
Sv.: Má ég reyna að svara spurningum þínum einni í einu. Þú spurðir um ljós, var það ekki? Já, við höfum það... Eða, ég ætla að byrja svarið upp á nýtt: Heimur andans, þeir heimar eða sá heimur, andlegi heimur, sem næstur er jörðinni ykkar, kallið hann fyrsta heiminn ef ykkur sýnist svo, er nánast eftirmynd ykkar heims, með margvíslegum löndum sínum og fólki. En við höfum ekki nein landamæri á milli landa, þar sem maður þarf að sýna vegabréf. Þannig að ef einhver frá Afríku kýs að búa í landi eins og Íslandi, þá væri hinum sama alveg frjálst að gera svo. Og ljósið er þar alltaf. Það er ekki endurspeglun eða eftirmynd ykkar sólar á andlegan hátt, það er hið upprunalega ljós. Áður en ljósið kom þar, var myrkur og tóm, ekki síður en á jörðinni og í himingeimnum í kring. Og þar sem menn ferðast með tilliti til langana sinna og möguleika, þá breytast hlutirnir svolítið, alveg eins og á jörðinni, þar sem yfirborð hennar breytist fyrir áhrif athafna ykkar, sem geta verið ýmist fallegar eða bjánalegar. Þannig er það líka í andlega heiminum. Hlutum má breyta með hinum ksapandi krafti eða þeim neikvæða, því báðir eru til þar líka. Það eru ekki allir englar sem ganga um í andlega heiminum. En hið mikla eftirbreytnilögmál, líkur sækir líkan heim, er til í öllum hinum skapaða heimi, þeim andlega sem og á jörðinni.
Þú spyrð hvort við vinnum. Við þurfum ekki að vinna fyrir mat okkar í andlega ehiminum, vegna þess að við þörfnumst ekki matar. En þeir sem hafa starfsaman huga, geta ekki setið í iðjuleysi en bera með þér mikla þrá eftir að læra meira og snúa aftur til jarðar, annað hvort í gegnum endurholdgun eða á þann hátt sem ég hef valið, að vera öðrum til hjálpar og það er sú vinna sem við stundum. En hún er ekki til þess að afla sér launa eða stöðuhækkunar. Hún er tilkomin vegna þess kærleika sem kennarar og leiðbeinendur hér bera með sér til bræðra okkar og sytra á jörðinni. Því við erum öll ein stór fjölskylda. Engu máli skiptir hvaðan við komum eða hvert við förum, við erum ein fjölskylda eða einn skapandi kraftur.
/ Yfirlit spurninga / / Til aðalsíðu / / Heildarsíða með efni frá Tutu /