candleinholder.gif - 21864 Bytes     Verund

heimasíða um andleg málefni

 

12. spurning:    Opnast minni okkar á einhvern hátt þegar við komum yfir, hvort sem er við andlát eða í svefni, þ.e. ef við berum í okkur meiri skilning en okkur birtist hér á jörðinni?

Sv.: Ertu að tala um svefn eða andlát?

Sp.: Hvort tveggja.

Sv.: Nefndu annað hvort, því ekki er hægt að tala um þetta sem hið sama.

Sp.: Í svefni?

Sv.: Já, minnið opnast oft. Um verður að ræða meira skynnæmi. En þegar snúið er aftur til jarðlíkamans og hugur hans tekur aftur við stjórninni, þá slævist minnið. Minningin er grafin djúpt í undirmeðvitundina. Ef þú ert að spyrja um innkomu í andlega heiminn þá er það annað mál. Þá verður minningin mjög skýr og sterk, og þau atriði, sem þú ef til vill vildir ekki muna, birtast þá. Þú getur ekki dulið þau. Þú getur ekki ýtt þeim til hliðar. Sama er að segja um yndislegu og fallegu minningarnar. Það er venjulega mjög grunnt á þeim. Það er nefnilega afar mannlegt að reyna að gleyma atriðum sem okkur mislíkar, því sem ekki er gott, það sem gert er á jörðinni og ykkur líkar ekki, en muna aðeins eftir því fallega. Maður man miklu frekar eftir sólskini en rigningu.

/ Yfirlit spurninga /     / Heildarsíða með efni frá Tutu /     / Til aðalsíðu /