candleinholder.gif - 21864 Bytes     Verund

heimasíða um andleg málefni

 

13. spurning:     Mig langar að spyrja þig að því hvort vinir okkar, sem komnir eru yfir í andlega heiminn, þurfi að vinna eitthvað að því sérstaklega, að fá að sjá hvað við erum að gera. Þurfa þeir að vera skyggnir eða hafa hæfileika til ...

Sv.: Spurðu ekki frekar, ég skal svara barnið mitt. Já, það ríkir mikill misskilningur um þetta atriði. Margir halda að fólkið fyrir handan geti séð allt, hvenær sem er. Það verður að eiga sér stað okkurs konar stefnumót heimanna tveggja eða andans, við einstaklinga, vin eða fjölskyldu á jörðinni. Okkur er ekki leyft að góna á ykkar heim hvenær sem er, frekar en ykkur er leyft að góna á okkar. Við opnum ekki dyr ykkar svo heimurinn geti séð inn í híbýli ykkar, og hvers vegna skyldum við gera það. Það verður að hafa fyrir þessu. Við verðum að koma á framfæri þránni til manneskjunnar, sem við viljum hafa samband við. Stundum er hægt að koma á beinu sambandi en oftar þurfum við þó að nota miðil, tengilið heimanna tveggja, ef svo má segja. Svo vertu ekki hrædd ef þú ert að bralla eitthvað, við getum ekki alltaf séð. Þú heyrir líka að við missum ekki kímnigáfuna. Það væri enda mjög sorglegt, því allar tilfinningar hafa ákveðinn tilgang. En tilfinningum, eins og öllu öðru, ætti að halda innan vissra takmarka.

 

/ Yfirlit spurninga /     / Heildarsíða með efni frá Tutu /     / Til aðalsíðu /