Verund
heimasíða um andleg málefni
15. spurning: Geturðu varpað einhverju ljósi á tilganginn með því að endurholdgast í þennan efnisheim?
Sv.: Þetta er skóli til þess að læra í. Þá reynslu, sem maður gengur í gegnum á jörðinni er ekki hægt að finna annars staðar. Það er sú ástæða, sem sálin hefur fyrir því að endurholdgast og þó að dvölin virðist stundum ósköp ábata- og tilgangslaus, þá er það ekki svo. Þegar þú kemur yfir í andlega heiminn og verður fær um að sjá líf þitt líða framhjá þér eins og við lestur bókar, þá muntu gera þér grein fyrir tilgangi þessa alls.
/ Yfirlit spurninga / / Heildarsíða með efni frá Tutu / / Til aðalsíðu /