Verund
heimasíða um andleg málefni
16. spurning: Getur þú sagt okkur hver ákveður hver skuli deyja og hver ekki og hvers vegna hefur ungt fólk ...
Sv.: Nei, nei, þú þarft ekki að spyrja frekar, ég skal svara spurningunni, barnið mitt. Enginn ákveður það nákvæmlega. Með öðrum orðum: Samkvæmt bókinni ykkar ætti ferðalag ykkar á jörðinni að vara í 70 ár. Það er ágætis líftími. Í dag hafa læknavísindin gert mannkyni mögulegt að lifa mikið lengur og njóta góðrar ævi. En líkaminn er háður margvíslegum sjúkdómum. Ekki andinn, heldur líkmaninn. Og stundum verður truflun í eðlilegri starfsemi jarðlíkama mjög ungra barna og ungs fólks, svo vírusar, gerlar og alls konar sjúkdómar ráðast á hann. Og stundum er líkaminn ekki nógu sterkur til þess að hamla á móti eða yfirvinna þetta, svo hin unga sál flyst yfir í andlega heiminn. Mjög oft ber það ferðalag að á afar hörmulegan hátt. Þar komum við að ómannúðleika mannsins gagnvart sjálfum sér. Bílarnir, sem aka eftir vegunum, eru yndisleg uppfinning. En stundum hlýðir ekki sá, sem situr undir stýri, lögunum, eins og þeim ber að hlýða, lögunum um að aka þessu farartæki með aðgát gagnvart öðrum. Stundum drekkur ungt fólk sterka drykki, sem gerir þa ófært um að gera sér grein fyrir því sem það er að gera. Ef þú beitir huga þínum, barnið mitt, og reynir aðfinna út fyrir sjálfa þig, hvers vegna þessi eða þetta fór til himna, þá muntu mjög oft geta fundið svarið sjálf. Hef ég veitt þér svolitla innsýn?
Sp.: Já, ég held það.
Sv.: En þú ert ekki ánægð með svarið? Þér myndi líka það betur ef ég segði ti.d. að það væri guð sem sæti í hásæti og segði: Í dag átt þú að koma og á morgun þú? Nei, nei, þetta er lögmál, náttúrulegt lögmál. Þegar manneskja hefur lifað lífi sínu, fulla lífdaga, hvort sem það nú eru 70, 90 eða 50 ár, heild líf, þrungið reynslu, þá er það samkvæmt náttúrulögmáli eða með notkun slíks lögmáls, að harmleikir eða slys eiga sér stað. Það verður líka vegna ómannúðar mannsins gagnvart sjálfum sér, þegar ungt fólk eyðileggur eigið líf. Þá eru ekki neinir til saðar til þess að kenna þeim, hjálpa þeim til þess að skilja, til að leiðbeina þeim, annast þau. Raddir hrópa í eyðimörkinni, en þar er enginn til þess að heyra. Það er margt ranglætið á jörðinni ykkar í dag. Mörg skref hafa verið stigin í átt til betrunar á ýmsan hátt, en alltaf á efnislegan máta, ekki andlegan. Þið getið ekki skilið að, andann og efnið. Þau haldast í hendur. Og þeir sem eru á andlega sviðunum eru nálægir jörð ykkar, nálægir þeim sem í jarðlíkömunum búa. Og ef þessi tengsl væru eins og þau ættu að vera, þá væri ekki allt þetta ranglæti að finna á jörðinni ykkar. Ranglætið er vegna fákænsku, skorts á þekkingu.
/ Yfirlit spurninga / / Heildarsíða með efni frá Tutu / / Til aðalsíðu /