candleinholder.gif - 21864 Bytes     Verund

heimasíða um andleg málefni

 

17. spurning:   Geturðu varpað einhverju ljósi á fóstureyðingar?

Sv.: Það er stórt málefni. Ég gæti sagt að það sé afar rangt að eyða lífi þegar það einu sinni hefur byrjað ferð sína. Vegna þess að strax við getnað er sálin komin í sinn líkama eða myndun. En til eru margar slíkar kringumstæður, þar sem það hefur verið og mun verða, betra að eyða þessu lífi heldur en að það komi í heim þar sem það myndi þjást mjög mikið, líkamlega og andlega, vegna truflunar á starfsemi líkamans eða heilans. Eða þar sem ekki væri tekið á móti barninu með ástúð, heldur myndi það verða pyntað og meitt. En það er líka erfitt að segja þetta, því ég er ekki dómari. Ég get aðeins haft mína skokðun, eins og hvert ykkar hlýtur að hafa. Það væri mjög yndislegt og þá væri heimurinn ef til vill fullkominn, ef hlúð væri að öllum börnum af ástúð og tekið á móti þeim á jörðinni af kærleika. En þetta er ekki svo. Og þangað til maðurinn lærir að skilja meira af lögmálum náttúrunnar eða andans, þá munu fóstureyðingar vera að eiga sér stað. Sálir munu snúa aftur til himna áður en þær hafa komist til jarðarinnar, sumar vaxa um stund í andlega heiminum og þroskast, aðrar koma aftur til jarðarinnar við betri kringumstæður. En ég get ekki svarað öllum spurningum um þetta, því eitt og sérhvert tilfelli er einstakt og ólíkt, eins og við erum öll.

Og nú, vinir mínir, verð ég að fara. Ég treysti því að ég hafi orðið ykkur til dálítillar hjálpar. Ég hef notið félagsskaparins við ykkur og vona að við eigum eftir að hittast aftur. Og ég vil þakka ykkur kærleiga fyrir vinsemd ykkar og gestrisni við miðilinn ykkar og minn, það hefur náð til mín líka. Ég býð ykkur góða nótt.

/ Yfirlit spurninga /     / Heildarsíða með efni frá Tutu /     / Til aðalsíðu /