Verund
heimasíða um andleg málefni
Tutu svarar spurningum:
5. spurning: Hefurðu einhvern mælikvarða yfir hinn afstæða hraða á hreyfingu atómanna? Þú segir að hún sé hraðari, hefurðu eitthvert hlutfall?
Svar: Nei, vegna þess að það eru til margar víddir og hver þeirra er af ólíkri bylgjuhreyfingu. Nákvæmlega eins og það er á jörðinni hjá ykkur, þá eru öll atóm með mismunandi bylgjuhraða, allt frá mjög þungum atómum eða atómkerfum, til þeirra léttari. Þau léttari eru súrefnið eða loftið, sem umlykur jörð ykkar, hin þyngri eru plútóníum og þeir málmar sem maðurinn hefur lært að nota við bræðslu atóma, sem er honum, enn sem komið er, til skaðræðis, en vegna hins jákvæða og þess neikvæða, þá er hægt að nota atóm eða bræðslu atómanna, til hagsbóta fyrir mannkynið. Og þó það sé svo að vissu leyti við framleiðslu lyfja og orku jarðar, þá skilur mðaurinn ekki atómin til fulls. Hann hefur brotið þau niður í margar, margar einingar, mörg hundruð eininga, en eins og vísindamenn ykkar munu upplýsa, þá hafa þeir enn ekki komist til að framkvæma algjöra sundrungu atómsins. Þegar mannkynið lærir að sundra einingum þess algjörlega, þá munið þið, sem enn eruð á jörðinni þegar það verður, verða vör við þann mismun sem er á heimi andans og efninu, jarðefninu.
[1. spurning] [2. spurning] [3. spurning] [4. spurning] [Yfirlit spurninga] [Til aðalsíðu]