Verund
heimasíða um andleg málefni
Tutu svarar spurningum:
4. sp.: Geturðu útskýrt eitthvað tímann í þinni vídd?
Sv.: Tími er ekki til. En samt verðum við að nota það orð þegar við tölum við fólk á jörðinni. Ef til vill veist þú eitthvað um reikistjörnurnar sem ganga í kringum sólina ykkar. Það tekur jörð ykkar 24 klst. að snúast einn hring um öxul sinnog heilt ár að fara hring um sólina sína, sólina ykkar. En til eru aðrar reikistjörnur í ykkar sólkerfi sem eru heilt ár að snúast um sinn öxul og langan, langan tīlima að fara í kringum sólir sínar. Er tíminn eitthvað mismunandi á þessumreikistjörnum? Eða er tíminn bara ekki til?
(Innskot fyrirspyrjanda): Þetta er allt afstætt!
Það er afstætt já, allir hlutir eru afstæðir. En tími er nokkuð sem maðurinn hefur þurft að nota við störf sín á jörðinni, frá því fyrir mörgum öldum síðan, sólin kemur upp og hnígur til viðar, svo maðurinn geti plægt akur sinn, sáð í land sitt, rækktað og uppskorið fyrir skepnur sínar á réttum tíma.
Sp.: Ég var að hugsa um eitthvað áþekkt og tímann á milli endurfæðinga þinna, því þú dvelur ekki á ÞESSUM stað endalaust.
Sv.: Ja, það er nú nokkuð sem jafnvel hinir miklu kennarar hérna megin lífsins hafa skiptar skoðanir um. Og það er einnig atriði sem ég og miðillinn minn höfum kosið að nota ekki í því starfi sem við erum að inna af hendi á jörðinni. Það er staðreynd að endurholdgun á sér stað en maður skutlast ekki á milli jarðar og andlega heimsins eins og jó-jó í bandi. Og fyrir marga er það ekkert nauðsynlegt að snúa aftur til jarðar eða að snúa yfirleitt aftur innan einhvers gefins tíma. Sumir leita ekki alltaf eftir því að endurfæðast í líkama, en vilja heldur starfa á þann hátt sem margir kennarar og leiðbeinendur gera, með notkun á eð afenginn að láni öllu heldur, huga og heila miðils. Það eru ekki til neinar fastmótaðar reglur um endurholdgun, því alveg eins og þið hafið frjálsan vilja á jörðinni, þá mun sá frjálsi vilji fylgja ykkur yfir á hinar víddirnar, hringferðirnar, á hin sviðin. Og hann mun starfa á þann hátt sem þið viljið að hann geri.
Sp.: Geturðu þá talað um hinn frjálsa vilja sem eitthvað frekar takmarkað?
Sv.: Hann er takmarkaður á jörðinni já, vegna þess að þú verður að vera bundinn innan lögmáls lands þíns að vissu leyti og líka vegna þess að þú ert takmarkaður af jarðlíkamanum. Og allt er þetta vegna þess að jörðin er úr þungu efni. Þess vegna tölum við um þungar bylgjur á jörðinni og léttari í heimi andans. En þetta þýðir þó ekki að andlegu bylgjurnar séu alltaf betri. Það á aðeins við um þær hröðustu. Hugsaðu um það. Það þýðir að hinar andlegu bylgjur eru léttari og hraðari vegna þess að þær eru ólíkar. Við höfum ekki þung atóm efnisins, þetta er líkara orkunni sem er leyst úr atóminu. Það er ekki auðvelt að koma orðum að þessu svo að þið skiljið það, og fyrirgefið mér, ég á ekki við að þið séuð eitthvað treggáfuð. En það skapar viss vandkvæði fyrir mig líka, að koma orðum að umfjöllun um aðra vídd, fyrir þrívíddarheim.
[1. spurning] [2. spurning] [3. spurning] [5. spurning] [Yfirlit spurninga] [Til aðalsíðu]