candleinholder.gif - 21864 Bytes Verund

heimasíða um andleg málefni


Tutu svarar spurningum:

1. Geturðu sagt okkur hver eru takmörk þekkingar þinnar?

Sv.: Því er erfitt að svara, því allt sem ég segi, þarf að miða við takmörk þrívíddarheims ykkar. Ykkur er vel kunnugt um að til eru fleiri víddir og þið komist í snertingu við þessar víddir hvenær sem þið tengist heimi andans, hvort semþ ið eruð áheyrendur, kennarar, að rannsaka eða heila, hver svo sem tengsl ykkar við veröld andans eru, þá komist þið í snertingu við þessar víddir. En þið getið samt ekki meðtekið og skilið, því sú þekking sem ég hef, er fengin með reynslu, sem ég hef gengið í gegnum á sama hátt og ykkar þekking er reynsla. Árin sem þið hafið lifað, þau verk sem þið hafið unnið, þau lönd sem þið hafið heimsótt, fólkið sem þið hafið talað við, könnun ykkar á þessari heimsspeki, takmörk reynslu minnar eru mjög lík þessu. En það á einnig við um þá reynslu sem ég hef áunnið mér með dvöl minni innan heims andans eða annarra vitundarvídda vítt og breitt.

 

Tilbaka     [2. spurning]     [3. spurning]     [4. spurning]     [5. spurning]