heimasíða um andleg málefni
Hvers vegna eruð þið á jörðinni?
Ávarp bróður Bernards í gegnum miðilinn Lucy
Hale. Gott kvöld vinir
mínir.
Það er mér ánægjuefni að
koma hér á meðal ykkar einu sinni enn til þess að ræða við ykkur um stund,
um leið og þið stígið skref ykkar á jarðsviðinu. Okkur langar að biðja
ykkur að doka aðeins við og hugsa eitt andartak um það hvers vegna þið
eruð hér. Hvað eruð þið að gera í efnislíkama, hvaðan komuð þið og hvert
eruð þið að fara? Hver verður leið ykkar? Sérhvert ykkar, maður
kona eða barn, allt það sem lifir ber einnig í sér anda. Anda, sem er sál
ykkar, anda sem er eilífur. Hafið þið nokkurn tíma
staldrað við og hugsað um hvað eilífð þýðir? Það þýðir að þið voruð til
áður en þið komuð til jarðarinnar, alveg á sama hátt og þið munuð verða
til þegar þið yfirgefið jarðsviðið. Þið komuð frá heimkynnum andans,
andlega heiminum. Þið jarðarbúar gefið þeim stað ýmis nöfn. Þið
kallið hann Sumarlandið, Himnaríki, Paradís, Heiminn fyrir handan og svo
framvegis. En allt þetta er mjög óáþreifanlegt efnislíkama ykkar. Besta
samlíkingin sem við getum gefið ykkur er að biðja ykkur að hugsa um
útvarpsbylgjurnar, sjónvarpið, farsímana og sv. frv. Þið vitið að það eru
alltaf að berast bylgjur og að þið þurfið að hafa tæki til þess að nema
þær. Þegar þið hafið numið þær þá eruð þið komin í samband við uppsprettu
þeirra. Án móttakarans eru þær ósýnilegar ykkur svo þið verðið ekki vör
við þær. Samt vitið þið að þær eru til allt í kringum ykkur, og þannig er
það líka með andann, vegna þess að þið hafið líkama, hafið tekið hluta af
efninu, mótað það og byggt þannig að þið getið séð, snert, fundið, bragðað
og lyktað. En allt þetta er af jarðneskum toga, þetta eru efnislegir
hlutir. Líkami ykkar er líkt og kápa, ef þannig mætti segja, sem þið farið
í svo þið getið innt af hendi ákveðið starf. Verkefni ykkar þegar þið
komið á jarðsviðið er að læra, þroskast og vaxa. Þið hafið valið ykkur þá
braut sem þið eruð á á jarðsviðinu. Ekki öll smáatriði en alla helstu
þætti hennar. Þið bjugguð í andaheimi áður en þið komuð til jarðarinnar og
þið völduð ykkar aðstæður, foreldra, og þann tíma sem þið vilduð koma á
til jarðsviðsins að því athuguðu hvað þið gátuð séð fyrir um aðstæður þess
sérstaka lífs sem myndi veita ykkur þau tækifæri sem voru
nauðsynleg, tækifæri sem myndu gera ykkur kleift, ef þið vilduð,
að nudda af nokkur "horn" sem þið eruð með. Tækifæri sem myndi gera ykkur
kleift að vaxa andlega, veita ykkur dýpri skilning, láta í té námsefni
sem mun hafa bætt við anda ykkar þegar að því kemur að þið
yfirgefið jarðsviðið að loknu verkefninu og komið til okkar í
andaheiminum. Þið komið ekki með þá efnislegu hluti með ykkur sem þið
hafið safnað að ykkur meðan á dvölinni á jarðsviðinu stóð. Þið munið hins
vegar koma með þá reynslu sem þið hafið öðlast, þann persónuleika sem þið
hafið þróað og kærleikann sem þið gátuð auðsýnt öðrum. Allt það sem myndar
líf ykkar á jörðinni mun gefa hina endanlegu niðurstöðu. Sál, sem er
svolítið vitrari, svolítið þroskaðri, er komin svolítið lengra á þeirri
leið sem að lokum mun leiða hana til Guðs. Oft spyrjið þið sjálf
ykkur að því hvers vegna sumir hlutir þurfi að koma fyrir ykkur.
Hvers vegna þarf ég að eiga í meiri erfiðleikum en sumir aðrir? Hvers
vegna er svona auðvelt fyrir sumt fólk að komast í gegnum lífið.
Það virðist hafa allt það sem það óskar sér, en ég þarf aftur á móti
að berjast fyrir öllu. Hvers vegna þarf ég að vera heilsuveill og hvers
vegna þarf sumt fólk að fæðast vanskapað, þroskaheft, án þessa eða
hins? Hvers vegna dvelja sumar sálir aðeins mjög stuttan tíma á
jarðsviðinu áður en þær koma aftur til andaheimsins en aðrar virðast fara
löngu eftir að efnislíkamar þeirra eru orðnir útslitnir? Það er vegna
þess að það er nauðsynlegt. Til er reynsla sem aðeins
er hægt að öðlast á jarðsviðinu en ekki í andaheimi. Til eru hlutir sem
nauðsynlegt er fyrir annað fólk að læra í gegnum sérstakt líf. Fólk
spyr, ef það missir barn, hvort sem það var fætt eða komst aldrei inn í
heiminn, hver tilgangurinn sé með því að sálin fari af stað en þróist
ekki. Sumt af þessu er vegna þess að þeir sem annt er um viðkomandi,
foreldrarnir kannski, læknarnir, hjúkrunarfræðingarnir, þeir sem annast
hina sjúku, þurfa að öðlast þá reynslu sem fylgir því að líta eftir,
hlú að, jafnvel þó þau geti ekki bjargað í sumum tilfellum, samkvæmt
jarðneskum skilningi. Þú getur ekki sagt til um
hver tilgangur lífs þíns er á meðan þú ert í jarðlíkamanum. Þú getur
aðeins reynt að gera sem best úr kringumstæðum þínum, gera þér grein fyrir
að ef þú ert á erfiðari göngu en samferðamenn þínir, þá gæti það verið
vegna þess að þú ert svolítið þroskaðri andlega en þeir eru. Þú hefur þann
styrk til að bera sem þarf til þess að yfirstíga þær hindranir sem verða á
vegi þínum. Þú færð tækifæri til þess að velja á milli úrlausna. Þið getið
alltaf fundið eitthvað í lífi ykkar sem verður ykkur til hjálpar
andlega. Þið eruð
lánsöm á þessum tíma vegna þess að þið getið tilbeðið á þann hátt sem þið
teljið rétt. Það eru engin lög sem banna ykkur að sækja þá kirkju sem þið
viljið, eða fylgja þeirri trú sem þið óskið. Að vísu, ef þið gerist
spíritistar og komið í spíritistakirkju, þá getið þið svo sem búist við að
verða fyrir vissu háði. Þið gætuð mætt fólki sem staðhæfir að þið séu á
leið til fjandans, og sem hefur áhyggjur af ykkur þar sem þið séuð á leið
til eilífrar útskúfunar. En hver einasta sál á
jörðinni er þar í sama tilgangi. Til þess að læra. Það skiptir ekki máli
hvaða trúarbrögðum viðkomandi hefur fylgt, þau leiða hann öll að lokum til
andans, til Guðs. Eitt af því sem oft er
sagt innan kirkna ykkar er setningin "dæmið ekki svo þið verðið ekki
dæmd." Það ber að skilja að sérhvert ykkar er einstakt. Þú sérð hlutina
frá öðrum sjónarhóli en allir aðrir. Engir tveir á jarðsviðinu eru alveg
eins efnislega, svo þeir eru ekki eins í þróun sálarinnar, á því stigi sem
þeir eru, í því sem þeir þurfa að öðlast. Hvert og eitt ykkar er
einstaklingur og sem slíkur verður þú að skapa þér þína eigin vegferð,
læra þína eigin lexíu. Þú getur ekki elt annað fólk í blindni. Þú getur
hlustað á það sem sagt er, skoðað það sem berst til þín og ef
þér finnst það vera rétt, það falli að skynsemi þinni, þú getir sagt um
sem svo: Já, það er vit í þessu, þá er það leiðin þín. Einhver annar mun
sjá það sama á allt annan hátt en þú. Okkur finnst oft að ef
þið, fólkið á jarðsviðinu, sem eruð öll svo mismunandi, gætuð séð ykkur
sjálf andlega, þá mynduð þið sjá, já, að þið eruð ólík, en samt svo lík
sem birting andans. Þið getið öðlast
efnislega hluti. Okkur finnst ekki að neinn á jarðsviðinu ætti endilega að
neita sér um allt í því efni. Þið getið ekki hætt að lifa efnislegu
lífi ykkar því það er í gegnum það sem þið lærið. En haldið andlegri
viðleitni ykkar, haldið sambandinu við andann, hugleiðið, viðhaldið
kærleika ykkar til leiðbeinenda ykkar og hjálpenda, og viðhaldið
kærleikshugsunum ykkar til þeirra sem hafa horfið til lífsins fyrir
handan. Munið alltaf, að á meðan
að þið eruð á jarðsviðinu, þá eru aðstæður jarðarinnar þær mikilvægustu
fyrir ykkur. Gefið ykkur tíma til þess að sinna jarðneskum metnaði
ykkar, en takið frá vissan tíma til þess að hugsa um andann, tíma til
hugleiðslu og bænar, tíma til þess að senda út kærleikshugsanir og heilun
til þeirra sem þið hittið. Þú hittir ekki fólk fyrir
tilviljun. Hver og einn sem þú hittir hefur sín áhrif, hvort sem þú gerir
þér grein fyrir því eða ekki. Og á lífsgöngu þinni muntu hitta afar margt
fólk af ýmsum þjóðernum, kynþáttum, menningu og litarhætti. Ef þú sendir
sérhverju þeirra svolítið af kærleika þínum, brosir þegar þú hittir
ókunnuga eða gerir lykkju á leið þína til þess að hjálpa öðrum, þá ertu að
öðlast eitthvað, sem mun hjálpa þér að þróa þína eigin sál.
Þú getur ekki stjórnað
lífi annarra, þú getur ekki sagt öðrum hvað þeir ættu að gera og hvað
ekki. Það eina sem þú getur gert er að reyna að benda þeim sem þú hittir,
á, að lífið er meira en bara þetta efnislega. Reyndu að sýna þeim hvað það
þýðir að vera spíritisti. Eitt af því sem er mikilvægt er að vera
venjulegur, og í jarðneskum skilningi venjulegri en annað fólk. Stattu
fast í báða fætur, eins og sagt er. Sinntu þeim tækifærum sem
ber að höndum þér til þess að þjóna öðrum. Ef þú gerir það þá ertu að
þjóna sjálfum þér. Eins og við höfum sagt hér áður, þá er það mikil
blessun fyrir ykkur að vita eitthvað um andaheiminn. Það verður þér líka
til blessunar þegar þú getur látið þá þekkingu ganga áfram til annarra sem
eru leitandi í myrkri. Ef fólk er heiðarlegt í
trú sinni, ef það er andlega sátt við það sem það fær, hvort sem það er
frá ensku rétttrúnaðarkirkjunni, í kapellu eða hjá
Hjálpræðishernum, og hvort sem fólk er múslimar eða búddistar, hindúar eða
síkar, þá skiptir það ekki máli. Höfuðatriðið er að það sýni
trúmennsku gagnvart því sem það trúir og þegar upp er staðið,
tilbiðji Guð. Hinn nýtískulegi heimur
ykkar er svo flókinn í dag. Það er svo mikil þekking til staðar en samt er
svo margt sem enn þarf að læra. Þið þurfið að muna að jafnframt því að
vera borgarar þessa lands, kaupstaðar eða þorps, þá eruð þið borgarar
heimsins og jörðin ykkar þarf hvern þann kærleiksneista sem þið getið
veitt henni. Þið finnið oft til
vonleysis varðandi ástandið í heimi ykkar. Þið lesið á hverri blaðsíðu
blaðanna um hræðilega hluti sem eiga sér stað og þið standið ykkur að því
að spyrja sem svo: Er Guð til? Ef svo er hvernig í ósköpunum getur hann
leyft að svona nokkuð gerist? Það er vegna þess að jörðin tilheyrir Guði
og að hún er hluti af "hinni miklu andlegu áætlun," að það verða
líka harmleikir og hamfarir. En á sama tíma er von, því kærleikurinn er
til í heimi ykkar. Ef ykkur væri kleift að
sjá í hjörtu og huga alls þessa fólks, þá mynduð þið komast að raun um að
það er svo mikið gott til þar. Þið þurfið endilega að senda út kærleika
ykkar, ekki bara til þeirra sem næst ykkur standa, þeirra sem þið
finnið til með, eða eruð sammála, heldur líka til allra lífvera Guðs,
til alls mannkyns, þeirra slæmu jafnt og góðu, til dýranna, plantnanna,
fuglanna, trjánna, fiskanna og skordýranna. Munið það, að allt það
sem er hluti af lífinu er hluti af andanum, og mun að lokum sameinast
ykkur á leiðinni til Guðs. Góða nótt og Guð blessi
ykkur öll. Upphaf spíritisma á Íslandi
Leiðbeinendur að handan Bækur um dulræn efni

![]()
![]()
Hvað sögðu þau?
Fyrirboðar Hvað er lífritmi?
Aðrar heimasíður Andleg málefni -
titilsíða
Til aðalsíðu