VERUND
DULRÆNAR
SAGNIR
Dulskynjanir og dulsagnir
úr
handritum Ólafar á Hlöðum
Ólöf Sigurðardóttir, skáldkona á Hlöðum, hafði ætíð mikinn
hug á hvers konar dulrænum efnum. Um
eitt skeið
safnaði hún lítilsháttar sögum um þessi efni, en annars skrásetti hún minnst
af því, sem henni var sagt, eða til hennar barst. Í handritum hennar eru þó
nokkrar sögur af þessu tagi. Hefur hún skráð þær flestar árin 1908 og 1909,
eftir sömu stúlkunni, Jóhönnu að nafni, sem þá var til heimilis á Ytri-Bægisá,
en ættuð úr Hornafirði. Mun Ólöf hafa ætlað sögurnar til birtingar í
þjóðsagnasafni Odds Björnssonar, þótt ekkert yrði úr því.
Um sögukonu sína
farast Ólöfu svo orð að hún sé greindarleg, lítið upplýst, en virðist segja
satt og ýkjulaust frá. Hún hefði verið fremur ófús að segja sögurnar, en gefið
sér þó leyfi til að skrifa þær og nota.
Aldrei mun Ólöf hafa hreinskrifað
sögur þessar. Eru þær skráðar að mestu í samtalsformi, eins og tal hennar og
sögukonu hennar hefur fallið hverju sinni. Hef ég [Steindór Steindórsson] haldið
því óbreyttu, að öðru en því, að ég hef flokkað frásagnirnar eftir efni þeirra
og því orðið að víkja við orði á stöku stað til þess að forðast
endurtekningar.
Sögukona mín, sem nú er 22 ára að
aldri, segist fyrst hafa vitað að hún væri skyggn, þegar hún var 10-11 ára að
aldri. Síðan hefði hún oft séð ýmsar verur. Aldrei kveðst hún geta notað
ófreskisjón sína, ef hún ætlar það, sýnirnar koma einungis ósjálfrátt og óvænt.
Óhrædd kveðst hún ávallt vera við allt það sem hún sér, nema einu sinni.
-
Finnst þér allt þetta , sem þú sérð, vera sams konar verur?
- Nei, mér finnst
það eiginlega þrenns konar: Huldufólk, sem ég held að sé, fylgjur, sem mér
finnst helst vera slæðingur á undan ferðamönnum, og svo fallegar verur, sem ég
held að séu sálir dáinna manna.
- Er þetta þá greinilega hvað öðru ólíkt?
-
Já, segir hún dálítið hikandi.
- Viltu þá reyna að lýsa því hverju fyrir
sig?
- Já, svo glöggt sem ég get.
Fara nú lýsingar og sagnir hennar hér á
eftir.
Huldufólk .
[Huldufólk geldur hrekki]
[Smiðurinn og huldufólkið]
[Fylgjur]
[Svipir]
.
[Til
aðalsíðu]
.
Heimild: Heima er bezt, 1956.