heimasíða um andleg
málefni
Hvað
sögðu þau?
Nokkur orð fólks um spíritisma og lífið
eftir dauðann / Síða 2
|
|
Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup
Íslands:
Vísdómur frá Cree
indíánum: Esther Vagnsdóttir,
þýðandi: [...] Parasálfræðingurinn dr. Werner
Schiebeler hefur kennt eðlisfræði og rafeindafræði við verkfræðiháskóla í
Þýskalandi. Hann hefur stundað rannsóknir á sviði parasálfræði og liggja
eftir hann margar bækur um þau efni. Nefna má "Dauðinn - brú yfir í nýja
veröld," "Sannanir fyrir framhaldslífi," "Örlög einstaklinga eftir
andlátið," "Gagnkvæm hjálp milli heima." Dr. Schiebeler segir:
"Parasálfræðin hefur uppgjötvað mörg tilvik þar sem ég-vitund
einstaklingsins heldur áfram að vera til og getur haft samband við
jarðsviðið þrátt fyrir dauða efnislíkamans. Parasálfræðin telur þetta
beinar reynslusannanir fyrir framhaldsífi. Menn geta velt ýmsu fyrir sér
varðandi framhaldslíf, en ekki verður komist framhjá þeim staðreyndum og
sönnunum sem rannsóknir á sviði parasálfræðinnar hafa fram að
færa." Ragnheiður Laufdal, sjöunda dags aðventisti: Ef Kristur kemur aftur að sækja sitt fólk og reisa látna frá dauðum, sbr. trúarjátningu landsmanna: "hann mun koma aftur að dæma lifendur og dauða." Og "ég trúi á upprisu holdsins og eilíft líf." Af hverju þarf Kristur að koma að sækja sitt fólk, ef það er þegar komið til himins? Er ekki vert að fara að nálgast
sannleikann, vinir, og fræðast ögn meira? Já, Kristur kemur aftur og þá
mun hann hafa launin með sér. Sjá (Jóh. 5.28-29): "Undrist þetta ekki. Sú
stund kemur, þegar allir þeir, sem í gröfunum eru, munu heyra raust hans
og ganga fram, þeir, sem gjört hafa hið góða, munu rísa upp til lífsins,
en þeir, sem drýgt hafa hið illa, til dómsins." Það er því ljóst að við
hvílum í gröfum okkar þangað til hann kemur. Við höfum ekkert farið, við
höfum aðeins hvílst. / ... |
.....
[ Tilbaka ] [ Upphaf
spíritisma á Íslandi ]
[ Fyrirbodar ]
[
Leiðbeinendur að handan ]
[ Hvað er lífritmi? ] [ Aðrar heimasíður ] [ Andleg málefni - titilsíða
] [ Til aðalsíðu
]