heimasíða um andleg málefni
Silfur-Birkir Hver er
Silfur-Birkir? Silfur-Birkir,
eins og við köllum hann, er ekki rauðskinni. Hver hann er vitum við ekki.
Við gerum ráð fyrir að hann noti nafn anda þess ljósvakalíkama sem hann
tjáir sig í gegnum, vegna þess að það er ógerlegt fyrir þá háu tíðni
þeirra andlegu sviða sem hann tilheyrir að birtast nema í gegnum annað
starfstæki. Hann er andlegur leiðbeinandi þes sem nefnt hefur verið
"Heimahringur Hannen Swaffers." "Einhvern
daginn mun ég segja ykkur hver ég er," sagði hann við okkur nú nýlega. "Ég
verð að birtast í formi hógværs indíána til þess að ávinna mér kærleik
ykkar og hollustu, en ekki með einhverju háfleygu nafni og til þess að
sanna sjálfan mig með sannleika þess sem ég kenndi. Það er
lögmálið. Silfur-Birkir
kom inn í líf mitt fljótlega eftir að ég gerðist spíritisti, árið 1924.
Alla tíð síðan hef ég hlustað í klukkustund eða meira hverju sinni á
kenningar hans, leiðsögn og fyrirætlanir og þannig lært að elska og virða
hann meira en nokkra jarðneska veru. Hann birtist
fyrst á alveg sérstakan hátt. Ungur maður á 18. aldursári, trúleysingi,
sem var að kynna sér spíritisma, tók í hálfkæringi þátt í miðilshring í
einu mesta fátækrahverfi Lundúnaborgar. Hann skellti upp úr þegar, svo
notuð séu hans eigin orð, "gömul kona varð að Kínverja og allt hvað heita
hefur," sem varð til þess að hann var ávítaður af miðli, sem úr trans
sagði við hann: "Þú munt verða farinn að gera þetta sama áður en langt um
líður." Þó hann færi
brott tortrygginn og vantrúaður þá kom hann nú samt aftur í næstu viku og
þá, þegar fundurinn var hálfnaður, baðst hann afsölunar á því að hafa
sofnað. "Þú varst í
trans," sagði einhver sem sat næstur honum. "Leiðbeinandi þinn gaf okkur
upp nafn sitt og sagðist hafa verið að þjálfa þig í mörg ár fyrir þetta og
að þú myndir, áður en langt um liði, vera farinn að tala af sviði, á
fundum spíritista." Og aftur hló
hinn ungi maður... Á þessum tíma
talaði Silfur-Birkir ákaflega fá orð í ensku og þessi fáu með mjög
ófáguðum áherslum. Eftir því sem árin liðu jókst þekking hans á tungumáli
okkar, svo að einföld mælska hans tekur nú fram sérhverjum ræðumanni sem
ég hef hlýtt á. Silfur-Birkir
er kennari. Hann stundar ekki heilun og hann flytur sjaldan
sönnunarskilaboð. Hann afsakar það stundum og segir að hann sjái oft eftir
því að hann skyldi takmarka stjórn sína á miðlinum við kennslu. Þó hann
telji kenningar sínar afar mikilvægar þá gerir hann sér ljóst að heimurinn
þarfnast sönnunar um eilíft líf. Á síðustu árum hef ég komið með alls
konar fólk til þess að hlusta á Silfur-Birki, trúarleiðtoga, blaðamenn,
fók hvaðanæva að úr veröldinni. Aldrei, frá nokkru þeirra hef ég heyrt
eitt einasta orð af gagnrýni um neitt af því sem hann sagði. Prestur
nokkur, sem kom með flóknar fræðikenningar sínar, varð orðlaus þegar
Silfur-Birkir útskýrði með einföldum orðum það sem hann kallar "lögmálið."
Fyrir fundinn hafði ég ráðlagt prestinum að skrifa hjá sér þær erfiðustu
spurningar sem hann gæti látið sér detta í hug. Hann kom, fullur áhuga á
að skora nú á hólm einn þessara andlegu leiðbeinenda, sem hann hafði svo
oft heyrt fordæmda af kollegum sínum. Hann fór aftur standandi forviða.
Silfur-Birkir hafði gert flóknar fræðikenningar of einfaldar fyrir
fræðimanninn. Heimahringur
minn, sem Silfur-Birkir leiðir, hélt fundi á hverju föstudagskvöldi, og
reglulega í hverri vikur birti Psychic News orðrétt það sem hann sagði.
Fyrirlestrarnir voru ekki veittir til einkanota fyrir heimahring okkar,
heldur til dreifingar um allan heim. Afleiðing þess er sú að Silfur-Birkir
hefur fleiri áhangendur en nokkur jarðneskur predikari. Þeir tilheyra
hverju landi og nánast öllum kynþáttum og eru fólk af öllum litarháttum.
Samt geta orð Silfur-Birkis, komin svona niður á dautt prentletur, ekki
flutt annað en lítið brot af göfugleika manngerðar hans, hlýja vináttu og
eðlislægan virðuleikann í máli hans. Stundum knýja þau fram tár. Við vitum
að við erum í nálægð, hversu hógværlega sem hann annars kann að tala,
mikils og upphafins anda. hann ávítar aldrei og leitar aldrei
yfirsjóna. Kirkjunnar
menn tala um Jesús frá Nazaret, sem þeir þekkja lítið til og hafa engar
sannanir fyrir. Silfur-Birkir talar um Nazaretmanninn, eins og hann kallar
hann, sem æðstan allra andlegra vera er hann hefur samband við og eins og
Silfur-Birkir hefur fært okkur sönnur á í gegnum margra ára náið samband,
þá getur hann ekki sagt ósatt og þess vegna vitum við, þó ekki væri nema
vegna þess að hann segir svo, að Jesús, sem sagt er frá í
Nýja-testamentinu er enn að starfi og að fást við þá eilífu hugsjón sem
eitt sinn leiddi hann til þessarar jarðar. Svo gagnvart okkur þá hafa
orðin "sjáið, ég er með yður alltaf, allt til enda veraldarinnar,"
meiningu sem kirkjan ekki getur útskýrt. Heimsspeki
Silfur-Birkis er, eins og þið munið auðveldlega geta skilið, af algyðistrú
manns, sem gerir sér grein fyrir að guð er að finna í náttúrunni sjálfri,
að til er óbreytanlegt lögmál sem stjórnar öllu og að guð er lögmálið.
"Þið eruð innan hins mikla anda," segir Silfur-Birkir, og hinn mikli andi
er innan ykkar." Svo lærum við að við erum öll verðandi guðir, hluti af
Skapandi frumenfi sem er í öllu. Silfur Birkir
lætur þó ekki staðar numið við fræðilega heimspeki. Hann hamrar stöðugt á
þeirri lexíu að við séum hér til þess að starfa. Hann felur alla trú í
orðinu "þjónusta," og leitast við að kenna okkur að þó við kunnum að vera
klaufaleg verkfæri, að við séum í þennan heim komin til þess að binda endi
á stríð, útrýma fátækt og flýta fyrir komu þess tíma þegar gnægðum
drottins verður dreift með öllu hans örlæti á meðal allra þjóða heimsins.
"Hollustueiður okkar," segir Silfur-Birkir, "er ekki við trúarjátningar,
bók eða kirkju, heldur Lífsandann mikla og eilíft náttúrulögmál hans.
Þannig er það því að meðlimir í hring hans, sem eru sex að tölu, telja þrá
gyðinga og þrjá trúleysingja, sem í spíritisma finna ekki mismun kynþátta
eða trúarsetninga. Þrír þeirra voru efasemdarmenn um yfirnáttúruleg efni
og sá fjórði var meþódistaprestur, sem rétt áður en hann gekk til liðs við
hring okkar, hafði yfirgefið meþódistatrúna, því hann gat ekki lengur
samþykkt kenningar hennar. Á þessum árum
mínum á fundum með Silfur-Birki hef ég aldrei vitað til þess að hann
gleymdi nokkru atriði, þrátt fyrir að við kynnum að gera svo. Og aldrei, í
einu aukateknu orði, hvikar hann frá sjálfskipaðri hugsjón sinni um að
kenna mannanna börnum einfaldari og blessunarríkari
lífsmáta. Heimild:
Teachings of Silver-Birch. Ef þú vilt
lesa meira um Silfur-Birki flettu þá yfir á næstu síðu þar sem Silfur-Birkir segir frá sjálfum
sér. Annað efni á
heimasíðu Verundar: Til
aðalsíðu Leiðbeinendur að handan Bækur
um dulræn málefni Fyrirboðar
(Kynning eftir
leiðbeinanda hringsins sem hann birtist í, Hannen
Swaffer).
Upphaf spíritisma á Íslandi Hvað sögðu þau?
Hvað er lífritmi? Aðrar heimasíður
Andleg
málefni-titilsíða