heimasíða um andleg
málefni
|
|
Silfur-Birkir segir af sjálfum sér. Þegar ég var spurður að því, fyrir mörgum löngum árum, hvort ég vildi snúa aftur til heims efnisins og finna á jörðinni hóp fólks sem vildi starfa með mér að því að kynna boðskap andans, þá játti ég því, eins og margir fleiri, og mér var falið hlutverkið. Mér var sagt að ég þyrfti að leita að og finna starfstæki og tengja mig því þannig að ég gæti komið í gegnum það þeim boðskap sem mér var falið að koma til skila. Ég leitaði því í skrám okkar og fann miðilinn minn. Ég fylgdist með honum frá þeim tíma er hann fór að skilja og frá þeirri stundu sem andinn fór að tjá sig, þó í litlum mæli væri, hóf ég afskipti mín og byrjaði þar og þá það samband sem síðan hefur varað öll þessi ár. Ég hjálpaði til við að móta andann og hinnörlitla huga og í gegnum sérhvert þróunarstig lífs hans fylgdist ég með sérhverri reynslu, lærði hvernig komast mætti í náið samband og ég kynnti mér allan huglægan þroska og líkamlegar venjur hans í æsku. Ég rannsakaði starfstæki mitt frá öllumhliðum, huga, anda og jarðlíkama. Og síðan varð ég að leiðbeina honum til skilnings á þessum sannleika andans. Fyrst leiddi ég hann til þess að kynna sér hin margvíslegu trúarbrögð í efnisheimi ykkar, þar til hugur hans gerði uppreisn og fór að verða það sem í ykkar heimi er kallað að vera trúleysingi. Og þegar það tímabil hafði lokið hlutverki sínu í hinni huglægu vakningu, þá var hann reiðubúinn fyrir ætlunarverk mitt, sem var að tala í gegnum hann. Ég leiðbeindi honum til fyrsta miðilsfundar hans. Ég hjálpaði honum til þess að komast í fyrsta þróunarhringinn. Og þar, í þeim krafti sem var til staðar, gerði ég fyrst vart við mig, reyndar mjög ófágað og hversdagslega, en það var samt sem áður mjög mikilvægt, og þar mælti ég mín fyrstu orð í heim efnisins í gegnum talfæri annars. Frá þeim degi lærði ég sífellt betur og betur að ná tökum á starfstæki mínu, þar til þeim árangri varð náð sem þið sjáið nú. Við höfum náð það langt að ég get komið öllum hugmyndum mínum til skila og alltaf skilið frá það sem tengist eigin persónuleika miðilsins. Og nú vil ég gjarna segja ykkur eitthvað frá hugsjón minni. Þeir sögðu við mig: "Þú verður að fara í heim efnisins og, þegar þú hefur fundið þér starfstæki, þá verður þú að beina til hans samsinna sálum sem vilja aðstoða þig við að koma skilaboðum áleiðis. Ég leitaði og fann ykkur öll og leiddi ykkur saman. En stærsta vandamálið sem ég stóð frammi fyrir var það að ég varð að velja á milli þess hvort ég vildi koma aftur til þess að færa ykkur þær sannanir sem heimur ykkar þarft itl þess að verða ánægður sjálfur, og þá meina ég efnislegar sannanir, ekki andlegar, því heimur ykkar skilurþær ekki, eða hvort ég kæmi sem kennari og kenndi sannleikann. Ég kaus erfiðari kostinn. Ég kvaðst myndu, eftir öll þessi löngu ár með öllum þessum margvíslegu reynslutímum sem ég gekk í gegnum í heimi andans, snúa aftur og reyna að höfða, með hjálp kærleikans, til þeirra sem ég ætlaði að reyna að kenna. Ég myndi höfða til skynseminnar og dómgreindar þroskans, þróaðra og þess sem þið kallið menntaðra huga. Ég myndi láta í ljós boðskap andans í öllum einfaldleika sínum. Ég myndi ekki segja neitt sem ofbyði skynseminni. Ég myndi kappkosta að auðsýna kærleika, aldrei átelja í reiði en höfða alltaf til kærleikans og sanna með boðorðum, dæmum og öllu því sem ég kvaðst vera, boðberi andans mikla. Og ég lagði á mig byrði hlutleysisins svo ég myndi ekki skapa áhrif með tignum persónuleika, titli, stöðu eða frægð, heldur yrði dæmdur af því sem ég segði og gerði. Þegar ég var á hinum hærri sviðum á síðustu hátíð, þá hrósuðu þeir mér og kváðu mig hafa náð miklu af ætlunarverki mínu. Þá féllu gleðitár niður kinnar mínar. En hlutverki mínu er enn ólokið. Fleira þarf að gera. Vegna starfs sem aðrir hafa innt af hendi, þess sama og við erum að gera, þá er komið meira ljós í efnisheim ykkar, hamingjan er meiri, tárin færri. Við höfum unnið áfangasigur yfir dapurleikanum. Við höfum komið mörgum til þess að leyfa æðra sjálfi sínu að birtast í lífi þeirra. Við höfum hrakið brott margar rangfærslur hins liðna er hafa hulið augu manna fyrir rættlæti og sannleika. Við höfum hjálpað til við að frelsa marga úr fjötrum græðgi og kreddna, sem hefur þjakað heim ykkar í svo mörg ár, forsmánað skynsemina með bjánalegri fákænsku sinni. --- Meira síðar --- Til aðalsíðu Leiðbeinendur að handan Hver var Silfur-Birkir Upphaf spíritisma á Íslandi Fyrirboðar Hvað sögðu þau? Hvað er lífritmi? Aðrar heimasíður Andleg málefni-titilsíða
|